Þjóðviljinn - 19.05.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 19. maí 1988 112. tölublað 53. árgangur
Ríkisstjórnin
Ollu samstarfi
hafnað
Ríkisstjórnin ein á báti. Öllu samstarfi við
verkalýðshreyfinguna hafnað. Ásmundur Stefánssonforseti
ASI: Launin ekki vandamálið. Viljum taka á rótum vandans.
Þorsteinn Pálssonforsœtisráðherra: Samstaða um að verja
niðurstöðu láglaunasamninganna
Samráð ríkisstjórnarinnar við
verkalýðshreyfinguna um að-
gerðir í efnahagsmálum er úr sög-
unni, eftir að slitnaði upp úr við-
ræðum aðila í gær. Forystumenn
stjórnarflokkanna gerðu það að
skilyrði að einungis yrði rætt um
kjaramál, en verkalýðshreyfingin
segir að taka verði á raunveru-
legum rótum efnhagsvandans,
óráðsíunni í fjármála- og efna-
hagsstjórn landsins.
Ráðherramir lögðu þunga
áherslu á það í gær að verkalýðs-
forystan tryggði að þau stéttarfé-
lög sem enn eiga ósamið semdu á
sömu nótum og önnur verka-
lýðsfélög hafa gert. Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra segir
vera samstöðu í ríkisstjórninni
um að verja niðurstöðu „Iágl-
aunasamninganna". Forystu-
menn iðnaðarmanna og fulltrúar
starfsmanna Álversins segjast
ekkert hafa með að gera að semja
við ríkisstjórnina um sín kjara-
mál.
- Ríkisstjórnin ekki tilbúin
að ræða við verkalýðshreyfing-
una um raunverulegar orsakir
efnahagsvandans. Við höfum
hent bjarghring til stjórnarinnar
en svo virðist sem hún viiji ekki
grípa hann enn sem komið er,
sagði Ásmundur Stefánsson for-
seti ASÍ í gær.
Forsætisráðherra neitar að ræða raunverulegar ástæður efnahagsvandans, óráðsíuna og óstjórn
stjórnvalda. Hann vill hins vegar viðhalda „láglaunasamningunum".
Sjá bls. 3 og leiðara
Utvegur
Eins dauði
annars brauð
Fiskmiðlun Norðurlands á
Dalvík gerir það gott á meðan
Fiskmarkaður Norðurlands á
við mikla erfiðleika að etja.
Humarvertíðin hefst eftir
næstu helgi og hefur heildar-
kvótinn verið skertur um 100
tonn. Hafís hefur hamlað
veiðum úthafsrækjuskipa við
Kolbeinsey en er á útleið með
hækkandi sól.
Sjá bls. 7
Hver bensínhækkunin á fætur annarri hrellir nú bíleigendur.
Bensín
Skólafólk
Ljúfsár harmkvöl
í sumar fyllist vinnumarkaður-
inn af sprækum ungmennum
sem, milli lestrartíða, þræla og
púla í sveita síns andlitis til að
eiga fyrir brýnustu „nauðsynj-
um".
Þjóðviljinn ræddi við skóla-
nema um sumarvinnuna þetta
sumar og önnur sumur en hvort í
þeim speglast til fulls þau viðhorf
sem með skólafólki í landinu
hrærast er óvíst. En viðhorfín eru
altént að mörgu leyti fræðandi.
Sjá bls. 8 og 9
Ný hækkun í júní
Tvœr hœkkanir íröð og ein til viðbótar
vœntaleg. Bensínverð úr31,90 Í36,20
Á aðeins viku hefur bensín-
verð hækkað tvívegis. Fyrst um
5,1% þegar blýlausa bensínið
kom á markaðinn og aftur um
2,4% í fyrradag vegna gengisfell-
ingarinnar.
Verðlagsstofnun gerir ráð fyrir
að næsta bensínhækkun verði
þegar um miðjan júní þegar nýr
bensínfarmur kemur til landsins
og þá verði bensínlítrinn kominn
uppí 36,50 kr. Fyrir tæpri viku var
bensínlítrinn nær 5 kr. ódýrari.
Þetta gerir hátt í 250 kr. hækkun í
hvert skipti sem keyptur er fullur
tankur á bílinn.
Sjá bls. 3