Þjóðviljinn - 19.05.1988, Síða 6

Þjóðviljinn - 19.05.1988, Síða 6
Tjaldsvæði lokuð á Þingvöllum Gróður er skammt á veg kominn á Þingvöllum. Tjaldsvæðin verða því lokuð enn um sinn. Þjón- ustumiðstöð Þjóðgarðsins erhinsvegaropin. Þar er hreinlætisaðstaða fyrir almenning og margvís- leg fyrirgreiðsla önnur. Leiðsögn um þingstaðinn er einnig í boði án endurgjalds að vanda. Þeim sem hug hafa á leiðsögn er bent að snúa sér til þjóðgarðsvarðar á Þingvallabæ, sími 99-2677. Stangaveiði fyrir landi Þjóðgarðsins er öllum heimil endurgjaldslaust til maíloka. Þó eru menn beðnir að varast veiði í Lambhaga um varp- tímann. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum Útboð Verðkönnun Tilboð óskast í ca 10.000 m2 af túnþökum vegna Gatnamálastjórans í Reykjavík. Túnþökurnar skulu vera lausarvið húspunt. Annað illgresi eins og snarrótarpuntur má ekki vera yfir 5% af flatar- máli þeirra. Túnþökurnar skulu afhentar á brettum víðsvegar um borgina. Tilboð berist skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík eigi síðar en miðvikudaginn 25. maí nk. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Rafmagnsveitu Reykjavíkur óskar eftirtilboðum í utanhússviðgerðir á tveim aðveitustöðvarhús- um, þ.e. aðveitustöð 4 við Heiðargerði og að- veitustöð 6 við Álfhólsveg. Verkið felst í múrviðgerð, málun og glerísetningu auk dúklagningar á þaki annarrar aðveitustöðv- arinnar. Heimilt er að bjóða í aðra eða báðar. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Forval vegna væntan- legs útboðs fyrir Hitaveitu Reykjavíkur Vegna fyrirhugaðs lokaðs útboðs á byggingu út- sýnisstaðar á Oskjuhlíð er þeim bjóðendum sem áhuga hafa á að vera með í forvali bent á að forvalsgögn sem sýna verkið, án þess að vera á nokkurn hátt skuldbindandi, liggja fyrir á skrif- stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík og verða afhent gegn skilatryggingu, 10.000 krónum. Þeir sem áhuga hafa á að bjóða í verkið þurfa að skila inn útfylltum forvalsgögnum fyrir 26. maí 1988 til Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. INNKAUPASTCFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800 FRÉTTIR Torfusamtökin Aðaifundur íkvöld Aðalfundur Torfusamtakanna 1988 verður haldinn að Litlu- Brekku á Torfunni (yfir Sveini bakara) fimmtudaginn 19. maí og hefst hann klukkan 20.30. Á dag- skrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Torfusamtökin eru félags- skapur áhugafólks um umhverfis- vernd og varðveislu menningar- verðmæta á fslandi. Á síðasta ári kom út á vegum samtakanna bókin um KVOSINA, sem er byggingarsaga miðbæjar Reykja- víkur, eftir þau Guðmund Ing- ólfsson, Guðnýju Gerði Gunn- arsdóttur og Hjörleif Stefánsson og verður hún til sölu á fundin- um. Fráfarandi stjórn skipa þau Guðjón Friðriksson formaður, Guðmundur Ingólfsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Hörður Ág- ústsson og Jóhannes Kjarval. Hjörleifur Stefánsson og Þor- steinn Bergsson eru varamenn. Stjórnin Áfengisvarnaráð Ahyggjur vegna uppsagna Á fundi sínum 11. maí s.l. sam- þykkti Áfengisvarnaráð eftirfar- andi bókun: Áfengisvarnaráð lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þess að tveir reyndir menn, sem unnið hafa að fræðslu um skaðsemi vímuefna, hafa sagt störfum sín- um lausum vegna afstöðu ráð- herra og alþingismanna til sölu áfengs öls hér á landi. Ljóst er, eins og þeir benda á, að fræðsla um vímuefni kemur að litlu gagni enda víða erlendis nú lögð meiri áhersla á annað for- varnarstarf. Áfengisráð skilur vel og er sammála rökum þeirra sem hyggjast hverfa frá störfum en vekur athygli á að ef til vill hefur aldrei verið meiri þörf mannvals við forvarnarstörf en nú. Því væntir Áfengisvarnaráð þess að þeir ágætu menn, sem nú eru lík- ur á að hverfi frá störfum, sjái sér fært að beita kröftum sínum áfram í þágu forvama og bindind- isuppeldis. Húsavík Söngtónleikar í Bamaskólanum í kvöld kl. 21.00 munu þær Anna Júlíana Sveinsdóttir óperu- söngkona og Lára Rafnsdóttir pí- anóleikari halda tónleika á vegum Tónlistarfélags Húsavíkur í Iþróttasal Barnaskólans. Efnisskráin er mjög fjölbreyti- leg, þannig að sem flestir megi njóta hennar, jafnt þeir sem van- ari eru að hlýða á hefðbundna tónlist og svo hinir sem vilja heyra eitthvað nýstárlegt. Flutt verða verk eftir Sigvalda Kaldalóns, Atla Heimi Sveins- son, Jónas Tómasson og Sigfús Einarsson. Jafnframt verða flutt verk eftir Dvorák, Dprums- gaard, Szymanowski, Bizet og Augustin Lara. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN )\ TONUSMRSKOU AÁ KOPWOGS Frá Tónlistarskóla Kópavogs Skólanum verður slitið og skírteini afhent föstu- daginn 20. maí kl. 16 í Kópavogskirkju. Skólastjóri Auglýsing Staða næturvarðar í Arnarhvoli er laus til um- sóknar. Umsóknum sé skilað í fjármálaráðuneytið fyrir 26. maí. Fjármálaráðuneytið 18. maí 1988 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Fteykjavík Félagsfundur fimmtudaginn 19. maí kl. 20.30. Steini Svavar Þeir skammta okkur frelsi, þeir skammta okkur brauð. Steini Þorvaldsson formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu og Svavar Gestsson alþingismaður fjalla um nýliöin og yfirstandandi stéttaátök. Félagar! Fjölmennum og ræðum hvað við sem sósíalistar getum lært af atburðum undanfarinna vikna og hvernig við eigum að bregðast við. Stjórn ABR Sumardvöl á Laugarvatni Hinar sívinsælu sumarbúðir Alþýðubandalagsins á Laugar- vatni verður í sumar vikuna 18. - 24. júlí Umsjón verða í höndum Margrétar Frímannsdóttur og Sigríðar Karlsdóttur. Allar nánari upplýsingar í síma 17500. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur Fundurí bæjarmálaráði mánudaginn 23. maí (annan í hvítasunnu) kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: 1) Fundargerðir bæjarstjórnar fyrir fund bæjarstjórnar þriðjudaginn 24. maí. 2) Önnur mál. Nefndarmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta. Gestur kvöldsins er Svavar Gestsson alþingismaður. Svavar Stjórnin Ráðstefna um byggðamál Dalvík 10.-12. júní 1988 Alþýðubandalagið boðar til ráðstefnu um byggðamál á Dalvík 10.-12. júní n.k. Ráðstefnan hefst kl. 14.30 föstudaginn 10. júní og er áætlað að henni Ijúki síðdegis sunnudaginn 12. júní. Dagskró: Föstudagur 10. júní Kl. 14.30 Framsöguerindi Umræður Kl. 19.00 Farið til Hríseyjar. Eyjan skoðuð og snæddur kvöldverður. Laugardagur 11. júnf Kl. 09.00 Framsöguerindi Umræður Kl. 16.00 Skoðunarferð um Dalvík - söfn og fyrirtæki. Snætt á Grund í Svarfaðardal. Þátttakendum kenndur svarf- dælskur mars. Sunnudagur 12. júní Kl. 09.00 Sundskálaferð Kl. 10.30 Hópavinna - skil og umræður Eftirtaldir hópar starfa: I Stjórnkerfið og þjónusta II Atvinnumál og þjónusta III Menning og viðhorf IV SfS og kaupfélögin. Ráðstefnunni lýkur síðdegis. Gisting verður í heimavist Dalvíkurskóla (Sumarhótel). Allar nánari upplýsingar veita Svanfríður Jónasdóttir í síma 96-61460 og Þóra Rósa Geirsdóttir í síma 96-61411. Þær taka einnig við þátttökutilkynn- ingum. Nánar auglýst síðar Alþýðubandalagið

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.