Þjóðviljinn - 19.05.1988, Blaðsíða 13
■" ÖRFRÉTTTIR""**
Sjö þúsund
sýrlenskir hermenn eru í við-
bragðsstöðu en hafa ekki enn
blandað sér í átök tveggja fylk-
inga síta í Vestur-Beirút. Það er
kunnara en frá þurfi að segja að
Hizbollah (vinir írana) og Amal
(vinir Sýrlendinga) hafa að und-
anförnu borist á banaspjót í suð-
vestur hverfum borgarinnar.
Mörg hundruð manns hafa fallið.
Heldur hefur hallað á Amalliða og
hafa menn furðað sig á því að
sýrlenskir hermenn skuli ekki
hafa lagt þeim lið. Einn af leið-
togum Amal gaf skýringu á því í
gær. Hann sagði Sýrlendingum
hafa borist orðsending frá fyrirlið-
um Hizbollah þess efnis að ef
þeir réðust inní hverfi sín yrðu allir
erlendir gíslar skotnir þegar í
stað. „Sýrlendingar kæra sig ekki
um að þeim verði kennt um gísla-
rnorð."
Michael Dukakis
skaut Jesse Jackson ref fyrir rass
enn einu sinni er hann bar sigur
úr býtum í prófkjöri Demókrata-
flokksins í Oregon fylki. Fékk
hann um 58 af hundraði atkvæða
en Jackson 37. Fjögur nöfn voru
á kjörseðlinum og þótt þeir Albert
Gore og Richard Gephardt séu
báðir hættir keppni fengu þeir sín
tvö prósentin hvor. George Bush
varsjálfkjörinn hjá repúblikönum.
Nú beinast sjónir manna að Kali-
forníu, fjölmennasta fylki Banda-
ríkjanna, en íbúar hennar munu
ganga að kjörborðinu þann ní-
unda næsta mánaðar.
ERLENDAR FRETTIR
Palestína
183 fallnir
Ungur Palestínumaður skotinn til bana ígœr.
Stjórnskipuð nefnd leggurað ráðamönnum
að halda ísraelskum menntaskólanemumfrá
palestínskumföngum
r
| sraelskir hermenn skutu ungan
Palestínumann til bana á her-
tekna svæðinu vestan Jórdanar í
gær og særðu níu skotsárum eftir
„átök“ við grjótkastara.
Hinn látni hét Majdi Hilal og
var 16 ára gamall. Að sögn ísra-
elskra heryfirvalda var hann í
Hermenn og palestínskur fangi.
Guð forði honum frá ísraelskum
menntaskólanemum.
Frakkland/íran
Stjómmálasamband á ný
Mitterrand forseti og Rocardforsœtisráðherra hyggjast efna heit
Chiracs
Frakkar hyggjast taka ,upp
stjórnmálasamband við Irani
á ný eftir níu mánaða hlé. Nýir
valdsherrar gáfu út yfíriýsingu
um þetta í gær og gátu þess jafn-
framt að þeir væru með þessu að
efna loforð sem forverar þeirra
gáfu klerkastjórninni og leiddi til
frelsunar franskra gísla í Líban-
Michel Rocard, nýskipaður
forsætisráðherra, greindi frétta-
mönnum frá því að þeir Francois
Mitterrand forseti hefðu ákveðið
að Frakkland stæði við samninga
þá er forveri hans í embætti,
Jacques Chirac, gaf írönsku ríkis-
stjórninni fyrir skemmstu.
„Forsetinn og ríkisstjórnin eru
á einu máli um að halda beri
skuldbindingar og heit Frakk-
lands hvað varðar viðræður þær
er fyrri ríkisstjórn hóf við ríkis-
stjórn íranska lýðveldisins um
formlegt stjórnmálasamband
ríkjanna," sagði Rocard. Chirac
hefði heitið írönum þessu og
heimt í staðinn þrjá Frakka úr
„helju“; vörslu íransvina í
Vestur-Beirút.
Það er alkunna að Frakkar
rufu stjórnmálasamband við
írani í júlílok í fyrra. Orsökin var
sú að fyrirmenn franska sendi-
ráðsins í París vildu ekki vera lög-
regiuyfirvöldum innan handar
við rannsókn á hryðjuverkum,
sprengingum, er grönduðu fjöl-
mörgum íbúa höfuðborgarinnar
á haustmánuðum í hittifyrra.
Grunur lék á að einn starfsmanna
sendiráðsins, íraninn Gordji,
væri höfuðpaurinn í glæpum
þessum en hann leitaði griða
innan vébanda sendiráðsbygg-
ingarinnar og dúsaði þar uns sam-
ið var um að hann fengi að halda
óáreittur heim til föðurtúnanna.
Reuter/-ks.
hópi ungra Palestínumanna er
grýttu dáta í þorpinu Abwein,
steinsnar frá Ramallah, vestan
Jórdanar.
íbúar þorpsins greindu frétta-
mönnum frá því að fjölmargir
hermenn hefðu reynt að halda
inní það árla í gærmorgun en orð-
ið að leggja á flótta undan palest-
ínsku ungmennunum. Þeir hefðu
margsinnis reynt á ný en án
árangurs þangað til þeim „hug-
kvæmdist" að beita skotvopnum
og táragasi. Þá hefði þeim loks
tekist að ryðja sér braut. Á göt-
um lágu eitt lík og níu alvarlega
særðir unglingar.
Á þeim fimm mánuðum sem
liðnir eru frá því uppreisn Palest-
ínumanna gegn herraríkinu hófst
á herteknu svæðunum hafa 183
Palestínumenn fallið hið minnsta
og tveir ísraelsmenn, einn her-
maður og ung stúlka er skotin var
fyrir slysni af byssuglöðum landa
sínum og trúbróður.
Víða á Gazasvæðinu og spild-
unni vestan Jórdanar urðu Pal-
estínumenn að halda sig innan
dyra. Erlendir fréttamenn fengu
eicki að fara til Abwein í gær.
Stjórnskipuð nefnd lagði í gær
að ráðamönnum í Jerúsalem að
koma í veg fyrir að menntaskóla-
nemar í herþjálfun yrðu sendir í
herbúðir þar sem Palestínumenn
eru hafðir í haldi. Einsog komið
hefur fram í fréttum hefur það
gerst þrásinnis að ísraelsku ung-
mennin réttu gæslumönnum
hjálparhönd við misþyrmingar
fanga. Reuter/-ks.
Afganistan/Sovétríkin
Uppreisnaimenn færast í aukana
Hermenn stjórnvalda í Kabúl reyna líttað verja afskekktfjallavígi eftir
brottför Sovétmanna. Rúslan kominn heim til Ljúdmílusinnar
„Guð sé oss næstur." Afganskir uppreisnarmenn gera bæn sína.
Afganskir upprcisnarmenn
virðast hafa tekið þann pólinn
í hæðina að láta sovéska hermenn
á heimleið afskiptalausa en leggja
þess í stað til atlögu við landa sína
úr stjórnarhernum jafnskjótt og
Rauði herinn er á brott úr bæjum
og þorpum. Heimildamcnn úr
röðum skæruliða og sendimanna
Vesturveldanna í Kabúl og íslam-
abad herma að sveitir skæruliða
hafi þegar lagt undir sig ýms
hernaðarlega mikilvæg héruð
sunnan höfuðborgarinnar.
„Við óskum þess að sovésku
hermennirnir verði á brott hið
fyrsta en hyggist þeir fara með
báli og brandi munum við hefna
þess grimmilega," sagði einn af
forystumönnum Jamiat-I-Islami
flokksins í gær.
Að sögn ofannefndra heim-
ildamanna virðist sama sagan
endurtaka sig æ ofaní æ í smærri
vígjum sunnan og austan Kabúl.
Sovésku hermennirnir yfirgefa
þau og dátar stjórnvalda leysa þá
af hólmi. Skæruliðar leggja til at-
lögu og hrekja stjórnarhermenn í
burtu.
Najibullah álítur skynsamlegt
að láta uppreisnarmönnum ýms
afskekkt þorp eftir án bardaga en
sá galli fylgir gjöf Njarðar að með
því styrkir hann stöðu þeirra,
fjendur hans eiga þá greiðari að-
gang að stærri bæjum og borgum.
Afleiðingu þessa má til dæmis sjá
við borgina Kandahar í suðri en
þar hefur uppreisnarmönnum
vaxið ásmegin við brotthvarf
Sovétmanna og hafa þeir hvað
eftir annað ráðist inní úthverfi og
gert usla.
Fyrirmenn skæruliða segjast
hafa náð tveim mikilvægum
fjallaskörðum á sitt vald, um 40
kílómetrum suðaustan höf-
uðborgarinnar. Fyrir vikið komi
þeir vistum og liðsauka frá landa-
mærum Pakistans til Kabúlsvæð-
isins á einum degi en það hafi
áður verið vikuverk.
Síðdegis í gær komu 1,200 sov-
étdátar til ættjarðarinnar en þeir
voru hinir fyrstu sem kvaddir
voru heim frá Afganistan. Áætl-
að er að allir landar þeirra og
stríðsfélagar hafi fetað í fótspor
þeirra að níu mánuðum liðnum.
Hermönnunum var tekið með
kostum og kynjum. Lúðrar voru
þeyttir og fánum veifað þegar far-
artæki dátanna óku yfir brú á Ox-
usfljótinu, sem skilur að Sovét-
ríkin (Uzbekistan) og Afganist-
an, og sem leið lá inní þorpið
Termez.
Glaðleg stúlka stóð í brúðar-
skarti og skyggndist um í her-
mannaþvögunni. Þetta var Ljúd-
mfla en hún er þrítugur einkarit-
ari og búsett í Termez. Hún var
að leita Ruslans, „fjallmyndar-
legs liðsforingja.“ Hún hafði ekki
séð hann í átta mánuði en vissi að
hann var í hópi þessara fyrstu
dáta sem snúa heim. „Ég bað
bara til guðs að hann kæmi heill á
húfi heim til mín. Þetta verður
einsog nýtt brúðkaup.“
Reuter/-ks.
Flmmtudagur 19. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13