Þjóðviljinn - 20.05.1988, Blaðsíða 10
Um
mann-
flokka
Þau tíðindi berast nú landslýð
til eyrna að kona nokkur Sigrún
Þorsteinsdóttir að nafni hyggist
bjóða sig fram til forseta. Þetta
framboð er þó engan veginn
hugsað sem mótframboð gegn
Vigdísi Finnbogadóttur heldur
segir Sigrún þetta vera
manngildisframboð, rétt eins og
Vigdís hugi lítið að þeim málum.
Sigrún þessi er metnaðargjörn
kona. Hún bauð sig fram til va-
raformanns í Sjálfstæðisflokkn-
um hér um árið en stjörnukortið
var hagstæðara hjá Friðrik. Þetta
fannst Sigrúnu auðvitað ekki
mannúðlegt af félögum sínum í
Sjálfstæðisflokknum og gekk því
til liðs við flokk ákveðins manns,
Péturs Guðjónssonar.
Það er annars furðulegt hvað
hinir og þessir mannflokkar
sækja í forsetaembættið. For-
maður Flokks litla mannsins vildi
verða forseti 1980 en annað
hvort hafa litlu mennirnir svikist
undan merkjum eða þeir voru
ekki nægilega margir til að koma
bjargvætti sínum að þá. Núna
kemur fram kona úr Flokki
mannsins og vill endilega fá að
vera forseti. Til að hleypa síðan
fjöri í leikinn ætti einhver kvenna-
listakona að stofna Flokk eigin-
mannsins og koma karli sínum í
forsetastól. Þá væri hægt að tala
um konuna á bakvið manninn,
forseta mannsins og mann fors-
etans og hvort sem forsetinn yrði
síðan maður eða kona væri
manngildið alla vega tryggt.
Eftir gengisfellingar, margra
ára kjararán og fjöldann allan af
uppboðum á híbýlum fólks hlýtur
síðan að vera kominn grund-
völlur fyrir því að stofna Flokk
pínulitla mannsins. Einhver
oddviti hans gæti síðan boðið sig
fram til forseta. En ( allri þeirri
örtröð sem kann að myndast
þegar mannflokkarnir flykkjast
svo allir á kjörstað, verður svo
auðvitað að tryggja að Maðurinn,
Litli maðurinn, Eiginmaðurinn og
kona hans, traðki ekki á Pínulitla
manninum þegar hann kemur illa
séður á kjörstað vegna smæðar
sinnar.
-hmp
I dag er
20. maí, föstudagur ífimmtu viku
sumars, þrítugasti dagur hörpu, 141.
dagur ársins. Sól kemur upp i Reykja-
vík kl. 3.56 en sest kl. 22.55.
Viðburðir
Þjóðaratkvæðagreiðsla um lýðveld-
isstofnun 1944. Þjóðhátíðardagur
Kamerún. Fæddur Ásmundur
Sveinsson myndhöggvari 1893.
Þjóðviljinn fyrir
50árum:
Stranda samningar ítala og Frakka á
afstöðunni til Spánarmálanna?-
Mússolini vill ráða því hve Frakkar
haf i mikið herlið í nýlendum sínum -
„íslenzkuraðall" komin út. Bók um
æsku fyrirstríðsáranna, hugsjónir
hennar, brauðstrit, rómantík, ástar-
harma og guðlega upphafningu á
augnablikum velgengninnar. Viðtal
við höfundinn Þórberg Þórðarson.
UM ÚTVARP & SJONVARP
i
Nancy Wake
Sjónvarpið kl. 22.35
f kvöld verður sýndur í sjón-
varpinu fyrri hluti nýrrar myndar
um Nancy Wake, áströlsku stúlk-
una sem fluttist til Frakklands á
unga aldri og starfaði þar við
blaðamennsku.
í Frakklandi kynnist hún
manni sem hún fellir hug til og
giftist. Þegar hann er kallaður í
herinn, verður það til þess að hún
gerist virkur þátttakandi í
frönsku andspyrnuhreyfingunni.
20 vinsælustu myndböndin
Nú rekur á fjörur þeirra sem vilja fylgjast með vinsældum myndbanda.
Samtök íslenskra myndbandaleiga hefur ákveðið að standa fyrir vikulegri
birtingu á 20 vinsælustu myndböndunum. Listinn er þannig unninn að 20 leigur
taka saman lista yfir útleigu sjö daga og senda til skrifstofusamtakanna sem
vinnur úr þeim upplýsingum eftir ákveðnum reglum.
Hér birtum við lista samtakanna númer tvö. Merkið (-) táknar að viðkom-
andi myndband sé nýtt á listanum, en talan innan svigans sýnir í hvaða sæti
viðkomandi myndband hafi verið í síðustu viku.
1 (6) Dirty Dancing (J.M. Heildsala)
2 (3) Roxanne (Skífan)
3 (1) Beverly Hills Cops #2 (Háskólabfó)
4 (2) No Mercy (Steinar)
5 (7) Ishtar (Skífan)
6 (-) Raising Arizona (Steinar)
7 (5) La Bamba (Skífan)
8 (11) Robocop (Háskólabió)
9 (4) Jumping Jack Flash (Steinar)
10 (17-19) Hamburger Hill (J.M. Heildsala)
11-12 (10) Fortuna Dane (Skífan)
11-12 (15) Number One With a Bullet Háskólabíó
13 (-) Six Against the Rock (J.B. Heildsala)
14 (8) Living Daylights (Steinar)
15 (14) Secret of My Success (Laugarásbíó)
16 (9) Bigshols (J.B. Heildsala)
17-18 (16 NAM - Tour of Duty (V&S Dreifing)
17-18 (-) Creeps of the Night (Steinar)
19-20 (-) Still Watch (Myndform)
19-20 (-) The Nightfliers (Steinar)
Framganga Nancy Wake meðal franskra andspyrnumanna í síðari
heimsstyrjöldinni, varð til þess að hún skapaði sér mikla virðingu víða
um heim.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
v
Hverjuerhún \ j \- ¦ 0 Já, einkunnunum
m'i að ,'ithvta? Vitnisburðmum. Vitnisburðmum { nk(car
nú að útbýta?
okkar.
Einkunnir. / Auðvitað,
Fáum við apinn þinn.
einkunnir? Hvað hélstu?
Ekki eitt skitið skólaár fyrst
til að æfa sig?
FOLDA
^mv
Enn einn sem hélt að beínt
af augum væri framtíðin ein
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. maí 1988