Þjóðviljinn - 28.05.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 28. maí 119. tölublað 53. tölublað
FriðrikPálsson hjá SH: Gengishagnaðurfiskvinnslunnar nœr uppurinn og staðan mjög erfið. Útlitfyrir
að vísitalafari 3 prósentframmyfirrauttstrikínóvember. Mótmœlahrinafrá stéttarfélögunum
Árangur af aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar virðist ætla að
verða klénni en vonir ráðherra
stóðu til, og gengisfellingin,
sprautan í æðar útflutningsat-
vinnuveganna, virðist ekki hafa
haft nema skömm deyfiáhrif.
Friðrik Pálsson hjá Sölumið-
stöðinni segir nær upp urinn
hagnað í fiskvinnslunni af gengis-
fellingu, sem einkum átti að rétta
af stöðu útflutningsatvinnuveg-
anna, og veldur þar verðlækkun á
erlendum mörkuðum.
Margir telja, meðal annars
Þórir Guðbergsson hjá Fylki í
Grimsby, að sú lækkun verði
meiri, enda kemur hún eftir met-
tíma í fiskverði.
Friðrik Pálsson segir að í upp-
siglingu sé „óleysanlegt vanda-
mál" ef ekki tekst að stöðva
kostnaðarhækkanir innanlands,
- það er að segja verðhækkanir
vöru og þjónustu, því að kaup-
liðir eru lögfestir næstu ellefu
mánuði.
Hvert stéttarfélagið eftir ann-
að fylgir í kjölfar ÁSÍ og BSRB
og mótmælir bráðabirgðalögun-
um um bann við kjarabaráttu, en
í stjórnarráðinu sitja menn
sveittir við að semja bráðabirgða-
lög til breytinga á báðabirgða-
lögum útaf verðtryggingar-
klandrinu.
Sjá síður 2-3 og 5
Forsetakosningar
Þjóðin þekkir mig
Vigdís forseti ætlar ekki að
beita sér í kosningunum sem hefj-
ast eftir helgi með utankjörstaða-
atkvæðagreiðslu. Stuðnings-
menn hennar opna hinsvegar
„bækistöð" í Reykjavík nú um
helgina. „Þjóðin þekkir mig,“
segir forsetinn í spjalli við Pjóð-
viljann í dag. Mótframbjóðandi
Vigdísar, Sigrún Þorsteinsdóttir,
er þegar byrjuð kosningabaráttu
sína.
Sjá síðu 3
Leiðtogafundur
Öldungar samþykkja
flaugasamninginn
Á elleftu stundu! Loks gengu
bandarískir öldungadeildarþing-
menn til atkvæða um samning
Reagans og Gorbatsjovs um
eyðileggingu allra meðaldrægra
kjarnflauga Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna. Og staðfestu
hann.
Það er alkunna að samningur
sá var undirritaður á þriðja fundi
leiðtoganna en á morgun hefst sá
fjórði þannig að ekki var seinna
vænna fyrir öldungana að firra
forseta sinn vandræðum.
Sjá síður 4 og 13
s
Isal
Ragnar
rekinn!
Á aðalfundi ísal í Zurich í vik-
unni var ákveðið að Ragnar Hall-
dórsson hætti störfum sem for-
stjóri álverksmiðjunnar við
Straumsvík.
í ársskýrslu félagsins er sér-
stakiega minnt á samskipta-
örðugleika við starfsmenn í
verksmiðjunni, og segir þar að
kjarasamningar gangi hægt og
illa.
Ragnar verður nú stjórnarfor-
maður fsal í stað Halldórs H.
Jónssonar, og bjargar þarmeð
andlitinu, en telja má víst að ný-
afstaðin kjaradeila í ísal hafi riðið
baggamuninn.
Sjá síðu 3
Megas: Höfuðlausnir meira spennandi en Loftmyndin. Mynd - E.ÓI.
ALLT ÖDRUVÍSI
Ef ég væri ekki bundinn af
markaðnum gæti ég nánast gefið
út plötu svona á mánaðar fresti,
segir Megas í viðtali við Þjóðvilj-
ann í dag.
Nýjasta plata meistarans,
Höfuðlausnir, er nýkomin út,
rúmum sex mánuðum eftir að sú
síðasta, Loftmynd, sá dagsins
ljós. Megas er helst á því að
Höfuðlausnir sé meira spennandi
plata en Loftmyndin, þar geri
hann alla hluti allt öðruvísi en
áður.
Sjá síðu 7