Þjóðviljinn - 31.05.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 31. maí 1988 121. tbl. 53. órgangur
Myrki miðvikudágurinn
100
miljóna
banka
gróoi
Viðskiptabankarnir grœddu velágengisáhlaupinu. Ráðherra villendurskoða,
seðlahankastjórar segja allt eðlilegt
Einsog marga grunaði voru
það fyrst og fremst bankarnir
sjálfir sem högnuðust á gengisá-
hlaupinu í vikunni sem kennd er
við myrka miðvikudaginn, -
nema auðvitað Seðlabankinn
sem tapaði stórfé á öllu saman.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur sent frá sér úrdrátt úr
skýrslu Seðlabankans um gjald-
eyrisútstreymið dagana 9.-11.
maí þegar fjórðungur gjaldeyris-
forða okkar var tekinn út úr
Seðlabankanum. Viðskiptabank-
ar og sparisjóðir tóku til sín rúm-
lega miljarð króna umfram endu-
rsölu og nemur gengishagnaður
þeirra því 100 miljónum króna.
Ráðherra segir að full ástæða
sé nú til að breyta reglum um
gjaldeyrissölu Seðlabankans til
banka og sparisjóða þannig að
dregið verði úr gengisáhættu
hans.
Bankastjórar Seðlabankans
segja hinsvegor í athugasemdum
með skýrslunni að miðað við þær
óvissuaðstæður sem skapast
höfðu hafi ekki verið um óeðlileg
gjaldeyriskaup að ræða.
Sjá síöu 3
Moskva
Burt með Ligaisjoví
Jeltsín krœfur við blaðamenn. Hnútur um
mannréttindi, en árangur nokkur á leiðtogafundinum
Nokkuð virðist þokast áleiðis í
meginmálum leiðtogafundarins í
Moskvu, afvopnunarviðræðun-
um, en þarsem fréttamönnum
gengur illa að brjótast gegnum
leyndarmúr um aðalmál beinist
athyglin að öðru, hnútukasti um
mannréttindamál og ýmsum upp-
ákomum laustengdum fundi risa-
veldaleiðtoganna.
Það vakti mikla athygli í gær að
Boris Jeltsín hélt því fram á
blaðamannafundi að næstvalda-
mesti maður Sovétríkjanna,
Lígatsjov yrði að víkja ef um-
skiptastefna Gorbatsjovs ætti að
eiga möguleika. Jeltsín var ný-
lega vikið úr hárri stöðu fyrir of-
urkapp í umbótamálum.
Guömundur Torfason fæst við ítölsku vörnina.
ítalskur gæðabolti
Heimavarnarliðið varð undir suðrænni mulningsvél
íslenska Ólympíulandsliðið
lenti í ítalskri mulningsvél á
sunnudagskvöldið. ítalir komu
Sjá síðu 13
með sitt besta lið og áttu ekki í
miklum vandræðum með
„heimavarnarlið" íslendinga.
Þegar yfir lauk höfðu ítalir gert
þrjú mörk en landinn ekkert.
Leikurinn var sá síðasti í B-
riðli undankeppni Ólympíu-
leikanna. Með sigrinum hafa ftal-
ir tryggt sér farseðilinn til Seúl
en íslendingar hvíla á botni riðils-
ins.__________________________
Sjá síðu 15
ASI
Vilja lögin
ógild
Formannafundur ASÍ talar um
að undirbúa aðgerðirgegn
afnámi samningsréttarins
Formannafundur ASÍ í gær
mótmælti bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar um afnám
samningsréttar og ákvað að halda
áfram að reka málið á alþjóð-
legum vettvangi. Formönnunum
leist ekki á að reyna að hnekkja
lögunum með aðgerðum strax,
en hvatti félög og sambönd til að
undirbúa aðgerðir til þess.
f samtali í gær sagði Karvel
Pálmason varaformaður VMSÍ
og þingmaður Alþýðuflokksins
að hann hefði ekki átt neinn þátt
að samþykkt laganna í þingflokki
krata. Jón Karlsson á Sauðár-
króki sagði að það væri þessa
daga „nokkuð flókið" að vera í
senn Alþýðuflokksmaður og
verkalýðsleiðtogi.
Sjá síðu 2
J