Þjóðviljinn - 31.05.1988, Page 3
FRETTIR
Gjaldeyrisfárið
Seðlabankinn tapaöi 100 miljónum
Viðskiptabankarnir keyptu gjaldeyrifyrir rúman miljarð umfram
sölu. Viðskiptaráðherra: Breytinga þörfá reglum um gjaldeyrissölu
Seðlabanki íslands tapaði 100
miljónum vegna sölu á gjald-
eyri til viðskiptabankanna síð-
ustu dagana fyrir gengisfellingu.
Viðskiptabankarnir keyptu
gjaldeyri fyrir 1010 miljónir um-
fram það sem þeir seldu einstak-
lingum og fyrirtækjum. Meiri-
hluti þess gjaldeyris sem viðskipt-
abankarnir höfðu pantað hjá
Seðlabankanum lá óafgreiddur
hjá Seðlabankanum þegar geng-
isskráning var lögð niður þann
15. maí sl. En bankarnir fengu
hann samt afgreiddan á gamla
verðinu og högnuðust á öllu sam-
an.
Viðskiptabankarnir keyptu á
síðustu þremur dögunum áður en
gengisskráning var lögð niður
tæplega helming þeirra 2400 milj-
óna sem fuku út á þeim tíma. Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
segir þetta gefa fulla ástæðu til að
breyta reglum um gjaldeyrissölu
Seðlabankans til banka og spari-
sjóða. Óhófleg gjaldeyriskaup
Gjaldeyrisútstreymið
Miljarður
í inn-
flutning
10% þjóðarinnar fengu
ferðamannagjaldeyri á
þremur dögum.
Skipafélögin fengu 112
miljónir
Það voru innflutningsfyrir-
tækin sem högnuðust mest á
gjaldeyrisútstreyminu dagana
þrjá fyrir uppstigningardag, það
er að frátöldum bönkunum sjálf-
um, en alls var afgreiddur tæpur
miljarður króna eða 953 miljónir
til innflutningsaðila þessa daga. í
frétt frá viðskiptaráðuneytinu
um þetta mál er ekki að finna
sundurgreiningu á þessum
innflutningsaðilum en sennilega
eru bifreiðaumboðin stærstu að-
ilarnir.
Þegar skoðuð er flokkun á
gjaldeyrisútstreyminu kemur í
ljós að á þessum dögum nam
gjaldeyrir til ferðamanna alls um
184 miljónum króna. Ef reiknað
er með að venjulegur
ferðamannagjaldeyrir liggi á bil-
inu 70-100 þúsund krónur á mann
lætur nærri að 10% þjóðarinnar
hafi tekið út slíkan gjaldeyri á
fyrrgreindu tímabili. Þetta kemur
heim og saman við þá frétt Þjóð-
viljans skömmu eftir að gjald-
eyrisútstreymið var stöðvað um
að forráðamenn ferðaskrifstofa
hérlendis hafi þegar byrjað að
vara sína viðskiptamenn um
gengisfellingu í vikunni á undan
uppstigningardegi.
Þriðji hæsti liðurinn í flokkun-
inni er síðan 112 miljónir króna
sem skipafélögin fengu í sinn hlut
en hinsvegar virðist sem flugfé-
lögin hafi „verið tekin í bólinu"
eins og ríkisstjórnin því þeirra
gjaldeyrisyfirfærsla nemur aðeins
9 miljónum króna. Hér er að vísu
um að ræða gjaldeyrissölu aðra
en afborganir og vexti af er-
lendum endurlánum.
-FRI
bankanna brjóta engin lög eins
og löggjafinn býr um hnútana í
dag en gengisáhættan er öll hjá
Seðlabankanum í þessum við-
skiptum.
Frá því að gjaldeyrispantanir
eru staðfestar hjá Seðlabanka
geta liðið nokkrir dagar þar til
þær eru afgreiddar. Þegar gengis-
skráningu var hætt þann 16. maí
áttu bankarnir meirihluta sinna
pantana eftir óafgreiddar. Tíu
prósent gengisfelling gaf þeim því
um 100 miljónir í hagnað vegna
gengismunar. í aprílmánuði seld-
ist gjaldeyrir að meðaltali fyrir
330 miljónir á dag. Hina þrjá
svörtu daga seldist hins vegar
gjaldeyrir að meðaltali fyrir 800
miljónir króna á dag og fór hæst
upp í 1230 miljónir þann 11. maí.
Bankarnir sjálfir hafa því keypt
að meðaltali gjaldeyri fyrir 35
miljónir á dag þessa þrjá daga.
Viðskiptaráðherra telur æski-
legt að upplýsingar um gjaldeyr-
isviðskipti gætu legið fyrr fyrir en
nú er. Hefur ráðherra farið fram
á það við Seðlabankann að hann
kanni leiðir til úrbóta í þessum
efnum.
-hmp
Sjálfsbjargarþingið
Viðamikil
stefnuskrá
Jóhann Pétur Sveinsson kosinn formaður
Viðamikil stefnuskrá í öllum
helstu málaflokkum sem snerta
hagsmuni fatlaðra, kröfur um
öfluga heimahjúkrun um land allt
og andóf gegn söluskatti á bif-
reiðatryggingargjöldum fatl-
aðra. Þetta voru meðal megin
mála á þingi Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, sem lauk nú
um helgina
Jóhann Pétur Sveinsson ný-
kjörinn formaður Sjálfsbjargar
sagði Þjóðviljanum að stefnu-
skráin hafi veriö meginmál þings-
ins. „í henni tökum við á öllum
málaflokkum sem snerta
hagsmunamál okkar, og með
þessari stefnuskrá höfum við á-
kveðnari línur til að vinna eftir
um leið og við höfum skerpt
vopnin.“
Stefnuskráin fjallar um sjö
málaflokka, atvinnumál, hús-
næðismál, menntunarmál, ferli
og farartækjamál, heilbrigðism-
ál, tryggingamál og síðast en ekki
síst félagsmál, „en við leggjum
mikla áherslu á að ná til fatlaðs
fólks og gera það virkt í
hagsmunabaráttu sinni“, sagði
Jóhann Pétur.
Auk stefnuskrár voru fjöl-
margar ályktanir samþykktar á
þinginu og vildi nýkjörinn for-
maður sérstaklega leggja áherslu
á kröfu um niðurfellingu sölu-
skatts á bifreiðatryggingum fatl-
aðra, en rekstur þeirra væri stórt
fjárhagslegt mál fyrir fatlaða.
Éinnig lagði Jóhann mikla
áherslu á samþykkt þingsins um
heimahjúkrun, sem væri brýnt
úrlausnarefni. „Þessi starfsemi er
óvirk nema á Reykjavíkursvæð-
inu, en við leggjum áherslu á að
þessi starfsemi færist um land
allt, enda þjóðhagslega hag-
kvæmara að hjúkra fötluðu fólki
heima heldur en á rándýrum
stofnunum.
Jóhann Pétur, sem er lögfræð-
ingur með sérþekkingu á lögum
sem varða fatlaða, tekur við af
Theodór A. Jónssyni sem nú
lætur af formennsku eftir 28 ár.
-gjh
Jóhann PéturSveinsson
nýkjörinnformaður
Sjálfsbjargar. mynd: E.ÓI.
S-Afríku samtökin
Öflugur stofnfundur
A annað hundrað manns hjá S-Afríku samtökunum. Skrifstofa opnuð á
Klapparstíg
Kraftmikil stemmning, segja
forsvarsmenn Suður-Afríku sam-
takanna gegn apartheid um
stofnfund samtakanna á laugar-
daginn í Gerðubergi. Þrátt fyrir
blíðskaparveður kom á annað
hundrað manns á fundinn, mikið
af ungu fólki og fulltrúar nokk-
urra af stærstu fjöldasamtökum í
landinu sem eru meðal stofnaðila
ásamtt einstaklingum.
Meðal félagasamtaka í hópi
stofnaðila eru ASÍ, Verka-
mannasambandið, Dagsbrún,
Samband ungra jafnaðarmanna,
Alþýðubandalagið, SÍNE og Iðn-
nemasamband Islands. Yfir 200
einstaklingar hafa þegar gerst
stofnfélagar og er raunar hægt að
gerast stofnfélagi í mánuð eftir
stofnfundinn.
Fundinum bárust ýmsar kveðj-
ur, meðal annars frá Afríska
þjóðarráðinu í Kaupmannahöfn
og æðstu stjórn þjóðarráðsins í
Lúsaka í Zambíu. Einnig barst
merkilegt skeyti á fundinn frá Al-
bertínu Sísulu, sem er ein af
þremur forsetum sameinuðu
lýðræðisfylkingarinnar UDF en
það eru stærstu samtökin sem
berjast gegn aðskilnaðarstefnu
hvíta minnihlutans í S-Afríku.
Innan UDF eru 650 samtök, sem
innihalda yfir tvær miljónir
manna. Maður Albertínu Sísulu
er Valter Sísulu, en hann var
dæmdur í ævilangt fangelsi 1962
ásamt Nelson Mandela.
Næsta skref S-Afríku samtak-
anna hér á landi er að sögn tals-
rnanna þeirra að berjast gegn
kynþáttakúgunarstefnu hvíta
minnihlutans, fyrst í stað með út-
gáfustarfsemi og baráttu fyrir því
að fólk hætti að kaupa ávexti frá
S-Afríku. í því skyni munu sam-
tökin opna húsnæðisaðstöðu á
Klapparstíg 26 1 .hæð, nk. laugar-
dag og eru allir baráttuglaðir liðs-
menn hjartanlega velkomnir.-gjh
Fiskverð
Fundað án
árangurs
Fundur yfirnefndar Verðlagsráðs í
gær leiddi ekki af sér ákvörðun um
fiskverð. Annar fundur var boðaður í
dag.
Fiskverð skal ákveðið fyrir 1. júní
og því eru það síðustu forvöð fyrir
yfirnefndina að ákveða verðið í dag.
- tl
VR - KRON
Samið á lands-
byggðarnótunum
VR hefur undirritað nýjan kjara -
samning við KRON. og er hann
sambærilegur við samninga verslun-
armannafélaganna á landsbyggðinni,
og því heldur hagstæðari verslunar-
mönnum en samningur VR við VSÍ.
Um fjögur hundruð starfsmenn
KRON taka laun samkvæmt hinum
nýja samningi.
Þri&judagur 31. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3