Þjóðviljinn - 31.05.1988, Page 7

Þjóðviljinn - 31.05.1988, Page 7
IÞROTTIR Fótbolti Þrír úr A-landsliði í „U-21“ Youri Sedov velur landsliðið undir 21 árs Markverðir ÓlafurGottskálksson............ÍA PállÓlafsson..................KR Lokastaðan í B-riðli Ítalía..........8 5 3 0 11-1 13 A-Þýskaland...8 4 3 1 12-5 11 Portúgal ......8 2 4 2 4-6 8 Holland .......8 1 3 4 6-12 5 ísland........8 116 5-14 3 íslenska landsliðið skipað leik- mönnum undir 21 árs leikur vin- áttulandsleik gegn Svíum í Vestmannaeyjum í kvöld og hefst leikurinn kl.20.00. { íslenska liðinu eru þrír leik- menn sem eru einnig í A- landsliðinu. Pað eru þeir Arnljót- ur Davíðsson, Rúnar Kristinsson og Porsteinn Guðjónsson en tveir þeir síðarnefndu eru báðir úr KR. Aðrir leikmenn Bjarki Jóhannesson.. Alexander Högnason.. Haraldurlngólfsson . HaraldurHinriksson. Þorsteinn Halldórsson Þorsteinn Guðjónsson Rúnar Kristinsson.. Einar Páll Tómasson. Steinar Adolfsson.. ÓlafurKristjánsson... Þórhallur Víkingsson. Baldur Bjarnason... PéturÓskarsson..... Arnljótur Davíðsson .. Helgi Bjarnason.... HlynurBirgisson.... Dómari verður Óli P. Ólsen og honum til aðstoðar verða Eyjólf- ur Ólafsson og Ólafur Sveinsson. -ste ... IA ... ÍA ... ÍA ... ÍA ,.KR ..KR ..KR . Val . Val ..FH ..FH Fylki Fylki Fram Fram .. Þór GuðmundurTorfason átti ágætan leikgegn ítölsku harðjöxlunum. Hérmunarminnstuaðhannnáiaðskalla boltann eftir hornspyrnu. y, Fótbolti Islendingar engin hindrnn Loks sigraði Steingrimur Hörkuspennandi keppni. Jón og Steingrímur jafnir í íslandsmeistarakeppninni Italirfara til Seúl eftir öruggan sigur á Islendingum. Agœtir kaflar í leik Islendinga sem áttu við ofjarla sína að etja Steingrímur Ingason og Witek Bogdanski sigruðu í annarri rallkeppni sumarsins sem haldin var um hclgina. Keppnin var æsi- spennandi og lágu úrslit ckki fyrir fyrr en á síðustu sérleið. Islands- meistararnir Jón R. Ragnarsson og Rúnar Jónsson misstu af sig- rinum með því að sprengja dekk í lok rallsins. í þriðja sæti urðu Guðmundur Jónsson og Bjartmar Árnason en Guðmund- ur hefur hingað til keppt með tví- burabróður sínum, Sæmundi, sem nú er erlendis. Steingrímur og Witek höfðu forystu eftir fyrri daginn og héldu henni fram eftir laugardeginum. Þá fór Jón að keyra eins og vitlaus maður og ætlaði svo sannarlega ekki að gefa fyrsta sætið baráttu- laust. Þegar tvær leiðir voru eftir voru kapparnir jafnir upp á sek- úndu! A næstsíðustu leiðinni fengu Steingrímur og Witek sek- úndu betri tíma en feðgarnir og átti þá aðeins eftir að keyra ís- ólfsskálaveg sem er 19 kílómetr- ar. Pað var því ljóst að báðir myndu gefa allt til að vinna rallið á síðustu leiðinni. Undirritaður fylgdist með hamförunum úr lofti, en þannig er mjög auðvelt að taka eftir stöðu bílanna. Er þeir komu yfir fyrsta hálsinn hafði Jón þegar unnið upp einnar sekúndu for- skotið og spennan í hámarki. Þá tókum við eftir að skyndilega komst Escortinn ekkert áfram og því greinilega eitthvað að. í ljós kom að stór steinn varð á vegi þeirra með þeim afleiðingum að dekk sprakk og draumurinn því úr sögunni. Þeir keyrðu leiðina á sprungnu og töpuöu um hálfri þriðju rnínútu á því. En leiðin gekk ekki áfallalaust hjá Steingrími heldur. Gírkass- inn í bílnum bilaði og aðeins 5. gír nothæfur. Þetta hafði hins vegar ekki nema góðar afleiðingar í för með sér því þeir náðu betri tíma á leiðinni en nokkru sinni fyrr! Steingrímur hefur þá loks sigr- að rallkeppni enda nú með „topp kóara“ og bílinn kláran. Hann er nú jafn Jóni að stigum til íslands- meistaratitils en báðir hafa hlotið 30 stig. f keppni aðstoðaröku- manna er Rúnar Jónsson lang ef- stur með 30 stig. -þóm „Við lékum ágætlega á köflum en það er bara ekki nóg gegn liði sem Itölum. Leikmenn báru á stundum virðingu fyrir mótherj- anum en þcgar hann er svona sterkur þá eru engin mistök leyfð og því fór sem fór. ítalir eru mcð citthvert alsterkasta Olympíulið heims og eru verðugir sigurvegar- ar í riðlinum. Ég á því von á að þeir komist á verðlaunapall í Seúl og cigi jafnvcl möguleika á sigri þar,“ sagði Sigfried Held lands- liðsþjálfari eftir 0-3 tap íslands Handbolti Fimm manna framkvæmdastjórn Ársþing HSÍ var haldið um helgina. Nú var kosin fimm manna framkvæmdastjórn og var Jón Hjaltalín Magnússon að sjálfsögðu kosinn formaður hennar. í henni sitja einnig Steinar J. Lúðvíksson varafor- maður, Gunnar Kjartansson gjaldkeri, Ólafur Jónsson ritari og Kjartan Steinbach meðstjórn- andi. Aðrir í sambandsstjórn HSI verða: Sigurður Ananíasson, Pálmi Pálmason, Valdimar Björgvinsson, Friðrik M. Sig- urðsson, Sigurður Hjaltason, Helga Magnúsdóttir, Ingvar Viktorsson, Björn Jóhannesson, Davíð Sigurðsson, Gunnar Þór Jónsson, Guðnrundur Björns- son, Sigtryggur Sigtryggsson, Snorri Kjartansson, Hermann Þórðarson, Gunnar K. Gunnars- son og Hilmar Björnsson. gegn ítölum í síðasta leik undan- keppni Olympíuleikanna. Vissulega er það rétt að ítalir eru með mjög sterkt „áhuga- mannalið". Leikmenn liðsins leika allir með bestu liðum Ítalíu og því er stigsmunur á þessum tveimur landsliðum. íslenska lið- ið lék alls ekki illa en andstæðin- gurinn var einfaldlega of góður. Leikurinn fór frekar rólega af stað og lítið uni færi fyrstu mínút- urnar. Okkar menn voru talsvert með boltann en komust þó lítið áleiðis á hinum vallarhelniingn- um. Þeir reyndu yfirleitt að spila boltanum frá aftasta rnanni en slíku upp ur sliku spu fyrsta markið. Ag Ólaf ili kom einmitt gúst Már sendi á laf Þórðarson á hægri vængnum sem missti boitann frá sér beint í fæturna á ítala. Þeir geystust upp með það sama, Ancelotti gaf á Virdis sem var kominn inn fyrir vörnina, hann sendi þá á Carne- vale í dauðafæri og honum urðu á engin mistök. 0-1 eftir 25 nrín- útna leik. Aðeins níu mínútum síðar fengu íslendingar á sig annað mark. Þá svaf vörnin illa á verðin- um er Cravero gaf á Romano sem skyndilega var aleinn inn í víta- teig. Friðrik kom út úr markinu og litlu munaði að honum tækist að verja skot hans sem hafnaði í tómu markinu. Eftir mörkin náðu íslendingar aðeins að komast inn í leikinn. Á 38. mínútu átti Guðmundur Torfason ágæta sendingu frá vinstri kanti inn í vítateig á kol- linn á Ólafi, en Tacconi átti ekki í vandræðum með að verja. Skömmu síðar fengu íslendingar aukaspyrnu rétt utan vítateigs ít- ala. Fast skot GuðmundarTorfa- sonar strauk einn ítalann og það- an framhjá markinu. í síðari hálfleik höfðu gestirnir enn undirtökin. 20 mínútur liðu þar til þeir bættu þriðja markinu við sem kom eftir hornspyrnu. Colombo sendi háan bolta fyrir markið og Virdis skallaði undir Friðrik og framhjá Val Valssyni sem stóð á marklínunni. Sérlega klaufalegt mark. Það sem eftir lifði leiks voru ítalirnir yfirleitt skrefinu á undan. íslendingar reyndu þó oft að spila boltanum og fengu jafnvel tíma til þess. En þegar komið var að vítateig ítala dekk- uöu þeir mjög vel upp og íslend- ingar áttu þá ekki annan kost en að leika til baka og þá stundum alla leið til Friðriks. Sigur ítala var því sanngjarn og við verðum einfaldlega að sætta okkur við slíka hluti. -þóm Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefánsson Þriðjudagur 31. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 I kvöld Fótbolti Mjólkurbikarinn hefst á fullu i kvöld og verður fyrri hlutinn í kvöld. Allir leikirnir hefjast klukk- an 20.00. Afturelding-ÍBV Grindavík-UBK Hveragerði-Grótta Selfoss-Haukar Reynir S.-ÍK Víðir-Ármann Hvöt-Magni Einherji-Huginn Sindri-Austri E.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.