Þjóðviljinn - 01.06.1988, Qupperneq 2
FRETTIR
Hitafundur í Eyjum
Samband íslenskra hitaveitna heldur aðalfund sinn í
Vestmannaeyjum dagana 2. og 3. júní. Á dagskrá fundarins eru marg-
vísleg erindi um, meðal annars, nýjungar hjá hitaveitum, eignarhald á
jarðhita og jarðhitaréttindum, rafkynntar hitaveitur og súrefnisupp-
töku í aðveituæðum úr plasti, svo eitthvað sé nefnt.
í tengslum við aðalfundinn verður sýning á nýjungum hjá hitaveit-
um á 2. hæð í félagsheimilinu við Heiðarveg en þar verður fundurinn
haldinn.
Burt með lögin
Fiskvinnsludeild Verkamannasambands íslands mótmælir harðlega
lagaboði um kjaraskerðingu og afnám samningsréttar og hefur auk
þess skorað á ríkisstjórnina að afturkalla lagasetninguna svo verkafólk
endurheimti frjálsan samningsrétt.
Stjórn deildarinnar hélt fund 30. maí sl. og á honum kom hún sér
saman um að skora á fiskvinnslufólk um land allt að búa sig undir að
fylgja þessari ákvörðun eftir „af fullri einurð ef þurfa þykir.“
ísland í CEN
Um miðjan mánuðinn verður Island aðili að CEN, Vestur-evrópska
staðlasambandinu og eru formaður og varaformaður þess nú hér til að
kynna sér stöðlun hér á landi. Staðlaráð fslands heldur af því tilefni
fund með þeim dr. H.C.Zurrer, formanni CEN, og E.Vardakas,
varaformanni, í húsakynnum Iðntæknistofnunar íslands að Keldna-
holti við Vesturlandsveg. Fundurinn hefst klukkan 14.30 3. júní.
Skólasjónvarp og bætt
myndefni
Alfa-deild Félags kvenna í fræðslustörfum, Delta Kappa Gamma,
hefur hvatt til þess að koma á skólasjónvarpi og bent á að nýta mætti
betur sjónvarpið til fræðslu- og j ákvæðra uppeldisáhrifa. Deildin hefur
gefið út lítinn bækling með upplýsingum um áhrif myndefnis á börn og
í honum má finna hvað rétt getur talist að börn sjái og hvað ekki.
Skólagarðarnir opnaðir
Skólagarðar Reykjavíkur eru nú að hefja starfsemi sína. Innritun
barna verður í dag og á morgun í Skerjafirði, við Ásenda, í Laugardal,
Stekkjarbakka og Jaðarseli í Breiðholti og Ártúnsholti í Árbæ og er
innritunargjald 400 krónur. 9-12 ára börn geta skráð sig en í Skóla-
görðunum fá krakkar leiðsögn við ræktun á grænmeti og plöntum, fara
í leiki og stuttar gönguferðir í nágrenni við garðana til náttúruskoðunar
og fræðslu um borgina.
Samvinnu og friðsam-
legar lausnir
Stuðningshópur um friðaruppeldi og Rauði kross íslands leita nú
eftir stuðningi samtaka, félaga og stofnana á sem breiðustum grund-
velli til að stofna hér á íslandi landsnefnd um friðarfræðslu og friða-
ruppeldi. Hugmyndin að baki henni er sprottin frá WAO, sem eru
samtök er vinna að velferð munaðarlausra og yfirgefinna barna um
allan heim. 7. september 1988 skuli helga eyðingu leikfangavopna og í
kjölfar hans fylgi friðarleikfangavika. Áð henni lokinni friðar-
fjölmiðlavika sem Ijúki með alþjóðlegum friðardegi barna þann 20.
september.
Félagasamtök og stofnanir eru hvattar til að láta í ljós vilja sinn til
þátttöku í landsnefndinni fyrir ll.júní og skulu senda svar sitt í póst-
Stórsveitin
í samkomu-
húsinu
I kvöld verða í Samkomuhús-
inu á Akureyri hinir árlegu jass-
tónleikar Tónlistarskólans með
stórsveit skólans. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30 og eru á
efnisskránni verk eftir, til dæmis,
Duke Ellington, Neal Hefti,
John Lennon og Paul
McCartney, Glen Miller og Mik-
ael Ráberg.
Leifsstöð
Beðið eftir Jóni
Steingrímur Hermannsson: Heflátið gera ítarlega úttekt á
málinu. 120 miljónirnar sem Jón Baldvin neitar að borga eru
reikningar frá fyrra ári. Engar framkvæmdir hafa verið íár
Deila utanríkisráðherra og
fjármálaráðherra um
greiðslur á 120 miljón króna
skuld við verktakana í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar er nú í bið.
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra segir að hann hafi
látið gera ítarlega úttekt á málinu
í sínu ráðuneyti og ætlaði hann að
birta þær upplýsingar opinber-
lega nú í vikunni en fékk þá boð
frá Jóni Baldvin Hannibalssyni
fjármálaráðherra um að bíða
með það þar til Jón hefði átt kost
á því að kynna sér upplýsingarn-
ar. Jón Baldvin er nú staddur í
Kaupmannahöfn en er væntan-
legur til landsins annað kvöld.
Steingrímur Hermannsson
segir í samtali við Þjóðviljann að
engar framkvæmdir hafi verið í
raun við Leifsstöð í ár og að þær
120 miljónir sem hér um ræðir
séu uppgjör á verktakasamning-
um frá síðasta ári auk þess sem 34
miljónir hafi verið viðhalds-
kostnaður til að halda flugstöð-
inni vind- og vatnsheldri.
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra segir að hann
geti ekki, sem gæslumaður ríkis-
sjóðs, greitt þessa upphæð þar
Sem ekki sé gert ráð fyrir henni á
fjárlögum fyrir árið 1988.
Verktakar þeir sem hlut eiga
að máli eru nú að íhuga máls-
höfðun, fáist þessir peningar ekki
greiddir og raunar hefur Jón
Baldvin þegar falið ríkislögmanni
að kanna lagastöðu ríkisins með
tilliti til hugsanlegra málshöfð-
ana. Einn af viðkomandi verk-
tökum orðaði þetta svo í samtali
við Þjóðviljann að ef Jón Baldvin
héldi sínu sjónarmiði til streitu
ættu lögmenn að gera hann að
heiðursfélaga í sínum hóp vegna
þeirra miklu verkefna sem hann
myndi útvega þeim.
í skýrslu sem Jón Baldvin bað
um frá hagsýslustjóra koma fram
aðrar upplýsingar um fram-
kvæmdir við Leifsstöð í ár en hjá
utanríkisráðherra. I skýrslunni
segir m.a. að ástæðan fyrir bak-
reikningunum nú séu auknar
framkvæmdir þrátt fyrir að ekki
hafi verið ráð fyrir þeim gert á
þessu ári. Og í lok skýrslu sinnar
segir hagsýslustjóri að taka þurfi
afstöðu til þess hvort sigla eigi
áfram á nótum byggingarnefndar
eða hvort grípa eigi inn í málið og
fyrirskipa stöðvun framkvæmda
og eiga þá von á eftirkröfum frá
verktökum. -FRI/gjh
Grjótaþorpið
Ófært fyrir slökkvilið
Snorri Snorrason: Hingað kom slökkvilið ísíðustu viku til að
kanna aðstœður en komsthvergi á stóru bílunum. Ekkert
hefur verið gert. Grunnur á Fjalakattarlóðinni til mikilla
vandrœða
„Það er með ólíkindum hvað
þetta hefur verið látið líðast lengi.
Hingað kom í síðustu viku
slökkvilið til að kanna aðstæður.
Þeir komu á stórum bílum en
komust ekki inní þorpið, hvorki
upp Bröttugötuna né inn Mjóst-
rætið,“ sagði Snorri Snorrason
tóniistarmaður, en hann býr í
Grjótaþorpinu. íbúar þorpsins
eru mjög óánægðir með ástandið
þar.
íbúarnir hafa ekki aðeins
áhyggjur af brunavörnum. Síð-
astliðið haust var hafist handa við
að grafa grunn fyrir stórhýsi sem
Sölusamband íslenskra fiskfram-
Ieiðenda og Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hyggjast reisa á lóð
Fjalakattarins. Þærframkvæmdir
voru síðan stöðvaðar vegna þess
að ekki var búið að staðfesta
deiliskipulagið fyrir Kvosina.
Grunnurinn hefur síðan verið til
sífelldra vandræða. Lengi var
engin girðing, þannig að íbúarnir
höfðu eilífar áhyggjur af börnum
í hverfinu. Núverandi girðing er
að hruni komin þar sem hún
stendur meðfram Bröttugötu,
enda er kantur götunnar mjög lé-
legur og hrynur stöðugt úr hon-
um ofan í grunninn.
Ekki er vitað hvenær fram-
kvæmdir hefjast við byggingu
þessa húss. Heyrst hefur að SH
og SIF séu jafnvel að draga í land
með þessar framkvæmdir.
„Það er alla vega á hreinu að
þeir menn sem hafa umsjón með
þessum grunni ættu að skammast
sín fyrir ástandið. Það er ótrúlegt
að svona sóðalegur staður skuli
finnast í hjarta höfuðborgar okk-
ar,“ sagði Snorri Snorrason.
-sg
Girðing umhverfis grunninn í Að-
alstræti er að hruni komin. Kantur
á götunni gefur sífellt meira eftir.
Rafmagnskaplar eru óvarðir.
Sóðaskapurinn er ótrúlegur.
Mynd: ARI.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 1. júní 1988