Þjóðviljinn - 01.06.1988, Síða 3
FRETTIR
Bráðabirgðalögin
Innlán verötryggð
Seðlabankafalið að setja reglur. Ríkisstjórnin lœtur undan
þrýstingi. Skiptikjarareikningar óbreyttir
Tjörnin lifi
Ráðhúsmálið
í kjörklefana?
Guðrún Pétursdóttir:
Kjörið tœkifceri gefst við
forsetakjörið. Felltí
borgarráði
etta er alveg kjörið tækifæri
fyrir borgaryfirvöld til að
kanna hug borgarbúa með leyni-
legum hætti. Það þarf ekki að
hafa svo mikinn kostnað í för með
sér, sagði Guðrún Pétursdóttir
talsmaður samtakanna Tjörnin
lifl.
Samtökin hafa sent borgarráði
bréf þar sem farið er fram á að
borgarbúum verði gefinn kostur
á að láta í ljós skoðun sína á því
hvort byggja eigi ráðhús í norð-
vestur enda Tjarnarinnar, um
leið og forsetakosningarnar fara
fram 25. júní nk. í gær hafnaði
borgarráð erindi samtakanna
með þremur atkvæðum Sjálfs-
tæðismanna, gegn tveimur at-
kvæðum minnihlutans.
sg
Rfldsstjórnin setti í gær ný
bráðabirgðalög þar sem ný-
settum bráðabirgðalögum um
verðtryggingar var breytt. í nýju
lögunum eru „fjárskuldbinding-
ar“ skilgreindar sem sparifé og
lánsfé og bannað að verðtryggja
þesslags fjárskuidbindingar séu
þær til skemmri tíma en tveggja
ára. Hins vegar er Seðlabankan-
um heimilað í samráði við við-
skiptaráðherra að setja reglur
sem heimila verðtryggingu spari-
fjár og lánsfjár til skemmri tíma
en tveggja ára. ÖIl önnur verð-
tryggingarákvæði haldast
óbreytt. Aðgerðir ríkisstjórnar-
innar fela því í sér að allt er verðt-
ryggt nema ekkert.
Olafur Ragnar Grímsson segir
vaxta- og peningakerfið vera
sömu ófreskjuna og það hefur
verið eftir þessar síðustu aðgerð-
ir. Ráðherrarnir séu í raun að vísa
málinu til úrlausnar hjá embætt-
ismönnum bankakerfisins.
„Þetta sýnir að ríkisstjórnin er
búin að gefast upp á því að greiða
úr flækjunni sem varð til þegar
hún var að semja síðustu bráða-
birgðalög," sagði Ólafur. Eftir
setningu fyrri bráðabirgðalaga
um verðtryggingar lýsti Verk-
takasambandið yfir áhyggjum
sínum í sambandi við gerð verks-
amninga. Verksamningar eru að
meðaltali til tveggja ára og óttað-
ist Verktakasambandið að bráða-
birgðalögin gerðu verktökum
það erfitt að verðleggja sín verk.
Enda ekki ljóst hvaða aðili ætti
að meta verðlagsþróun í landinu
tvö ár fram í tímann eins og þyrfti
að gera væru gerðir fastir verk-
samningar. Pálmi Kristinsson
framkvæmdastjóri Verktaka-
sambandsins segir illframkvæm-
anlegt að gera fasta samninga við
ríkjandi verðbólgustig.
Pálmi segir breytingarnar á
bráðabirgðalögunum viðunandi
hvað verksamningum viðvíkur en
bráðabirgðalögin hindruðu enn-
þá hækkun á útseldri vinnu um-
fram 10% í umþb. eitt ár. Vegna
flókinnar verðmyndunar í verk-
takaiðnaði gæti þetta komið sér
illa.
Friðrik Sophusson starfandi
forsætisráðherra segir breyting-
arnar tryggja áframhald sk.
skiptikjarareikninga og lætur
ríkisstjórnin þar undan þrýstingi
bankakerfisins. En viðskipta-
bankarnir höfðu lýst yfir mikilli
óánægju með að þeir féllu niður.
Þá verður enn hægt að lána fé til
skemmri tíma en tveggja ára með
verðtryggingu og getur viðskipta-
ráðherra hlutast til um þau mál í
gegnum Seðlabankann án þess að
til lagasetningar komi.
Með því að þrengja skil-
greiningu orðsins „fjárskuldbind-
ing“ fellur ýmislegt undan banni
við verðtryggingu. Þaðverðurtd.
ekkert því til fyrirstöðu að húsa-
leiga verði bundin vísitölu,
jafnvel þó húsaleigusamningursé
ekki gerður nema til eins árs. Það
verður því ekki séð í fljótu bragði
hvaða verðtryggingar til skamms
tíma verða bannaðar með bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
-hmp
Seðlabankinn
Viðvömnarkerfið bilað
Breytingaþörfígjaldeyrisviðskiptum. Steingrímur J.
Sigfússon: Markaðskerfið gengur ekki upp í
kunningjaþjóðfélagi
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra segir nauðsynlegt að
verja Seðlabankann gengistapi af
því tagi sem bankinn varð fyrir
nokkrum dögum fyrir gengisfell-
ingu. Hann segir það hins vegar
vera verkefni Seðlabankans og
viðskiptabankanna að komast að
samkomulagi um það mál.
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður Alþýðubandalagsins
segir atburði síðustu daga sýna að
markaðskerflð gangi ekki upp í
iitlu kunningjasamfélagi eins og
íslandi, það sé barnaskapur að
halda því fram.
„Hin hliðin á þessu máli og
miklu nöturlegri," sagði Stein-
grímur, „er að bankarnir skuli
sjálfir hafa fellt gengið og maður
spyr sjálfan sig; er ekkert við-
vörunarkerfi í Seðlabankanum?“
Þá segir Steingrímur það vera
nauðsynlegt að setja reglur svo
hvorki bankarnir né aðrir geti
grætt á því einu að panta gjald-
eyri.
„Ríkisstjórn landsins hefur
ropað um fastgengisstefnu og síð-
ustu dagar sýna hversu mikið
mark er tekið á henni,“ sagði
Steingrímur. Ríkisstjórnin hafi
flaggað fastgengisstefnunni fram
á síðustu stundu en greinilegt
væri að menn hafi misst alla tiltrú
á þessa ríkisstjórn.
Sólon Sigurðsson aðstoðar-
bankastjóri hjá Búnaðarbankan-
um sagðist í samtali við Þjóðvilj-
ann ekki geta ímyndað sér að
Búnaðarbankinn hafi keypt meiri
gjaldeyri dagana fyrir gengisfell-
ingu en aðrir bankar, án þess að
hann vissi um kaup annarra
banka. Gjaideyrisstaða Búnað-
arbankans væri venjulega á ann-
að hundrað miljónir en hafi verið
um 300 miljónir daginn sem lok-
að var fyrir gjaldeyrissöluna.
Sólon sagði eftirspurn eftir
gjaldeyri hafa farið vaxandi alveg
frá fyrstu viku maí og bankinn
hafi gert ráðstafanir til að tryggja
sig fyrir gengistapi. Að hans mati
er málið orðið allt hið furðuleg-
asta. „Það er eins og sé verið að
leita að einhverjum sökudólgi en
ég held að hann sé ekki til,“ sagði
Sólon
Jón Sigurðsson segir engar
breytingar fyrirhugaðar varðandi
viðskipti einstaklinga og fyrir-
tækja við viðskiptabankana.
„Þau verða eins og þau hafa verið
og það getur enginn áfellst einka-
aðila fyrir það að gæta sinna
hagsmuna ef farið er eftir réttum
leikreglum." Jón telur hins vegar
fulla þörf á að hægt sé að svara
spurningum um gjaldeyrisvið-
skiptin hraðar en nú er og hvort
eitthvað svo óvenjulegt sé þar að
gerast að athugunar sé þörf.
-hmp
FÍF
Magn-
afslátt
takk!
Fiskmjölsframleiðendur
vilja afslátt aforkuverði
Félag íslenskra fískmjölsfram-
leiðenda hélt aðalfund á dögun-
um og kom þar fram að verk-
smiðjueigendur telja mjög mikil-
vægt að leitað verði allra mögu-
legra leiða til að lækka olíu- og
rafmagnskostnað verksmiðj-
anna.
íslenskar verksmiðjur greiði
helmingi hærra raforkuverð en
verksmiðjur til dæmis í Noregi og
Danmörku og eðlilegt sé að
kanna jafnvel möguleika á nýjum
orkugjöfum ef verksmiðjunum
verði ekki veittur svipaður magn-
afsláttur og annarri stóriðju, því
vissulega sé fiskimjölsiðnaður
stóriðja landsbyggðarinnar.
-tt
Fiskmarkaðir
Spara sporin
Samtengingfiskmarkaða íReykjavík,
Hafnarfirði, á Suðurnesjum og í Eyjum á
döfinni. Kaup og sala á sama stað
Haldnir hafa verið tveir sam-
eiginlegir fundir með forráða-
mönnum fískmarkaða í Reykja-
vík, Hafnarfírði, á Suðurnesjum
og í Vestmannaeyjum um fyrir-
hugaða samtengingu markað-
anna og verður þriðji fundur að-
ila fljótlega í næsta mánuði. Verði
samtengingin að veruleika þurfa
jafnt kaupendur sem seljendur
ekki að ferðast á milli markaða
heldur geta sinnt öllum sínum
viðskiptum frá einum fískmark-
aði.
Að sögn Bjarna Thors fram-
kvæmdastjóra Faxamarkaðar er
samtenging markaðanna búin að
vera lengi á döfinni en án þess að
nokkuð hafi gerst. Það sem hefur
staðið samtengingunni fyrir
þrifum hingað til er fyrst og
fremst spurningin um hvort hún
komi til með að tefja fyrir upp-
boðunum þegar allar tölur þurfa
að berast á milli svæðanna á með-
an uppboðin fara fram. Bjarni
sagði þetta vera spurningu um
ákveðið tæknivandamál sem
þyrfti að leysa áður en að sam-
tengingunni yrði.
Af starfsemi Faxamarkaðar er
það helst að frétta að í dag verður
seldur fyrsti alvöru grálúðufarm-
urinn og verða það 190 tonn úr
Engey RE. Kílóið af henni hefur
selst á 22-23 krónur en fór upp í
32 í Hafnarfirði í gær og var það
vegna fiskleysis meðal fiskverk-
enda.
Bjarni sagði að vegna sjó-
mannadagsins í vikulok mætti bú-
ast við miklu magni fiskjar á
markaðina þegar skipin koma inn
vegna dagsins en stðan verður allt
fisklaust í næstu viku og má þá
búast við að fiskverð hækki að
mun vegna skorts á fiski.
-grh
SVR
Tuttugu mínútur milli ferða
Sumaráœtlun tekur gildi í dag
Tuttugu mínútur verða á milli
ferða Strætisvagna Reykja-
víkur frá og með deginum í dag
þegar sumaráætlun SVR gengur í
gildi.
Ekki verður um að ræða neinar
breytingar á akstri vagnanna á
kvöldin og um helgar. En þá aka
vagnarnir á hálftímafresti. Leiðir
13 og 14 eru þó undantekningar,
því á kvöldin og um helgar verður
klukkutími á milli ferða á þeim
leiðum. Einnig verða smá
breytingar á brottfarartíma ein-
stakra vagna.
Leiðabók með öllum nánari
upplýsingum er væntanleg fljót-
lega. —sg
Miðvikudagur 1. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3