Þjóðviljinn - 01.06.1988, Page 6
IÐNSKÓLINN í REYKJAVfK
Innritun ferfram í Iðnskólanum í Reykjavík og Miðbæj-
arskólanum frá kl. 9.00-18.00 1. og 2. júní.
Innritað verður í eftirtalið nám:
1. Samningsbundið iðnnám (Námssamningur fylgi
umsókn nýnema).
2. Grunndeild í prentun.
3. Grunndeild í prentsmíði (setning-skeyting-
offsetljósm.)
4. Grunndeild í bókbandi.
5. Grunndeild í fataiðnum.
6. Grunndeild í háriðnum.
7. Grunndeild í málmiðnum.
8. Grunndeild í rafiðnum.
9. Grunndeild í tréiðnum.
10. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði.
11. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun.
12. Framhaldsdeild í bókagerð.
13. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
14. Framhaldsdeild í hárskurði.
15. Framhaldsdeild í húsasmíði.
16. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði.
17. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
18. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun.
19. Framhaldsdeild í vélsmíði.
20. Almennt nám.
21. Fornám.
22. Meistaranám.
23. Rafsuða.
24. Tæknibraut.
25. Tækniteiknun.
26. Tölvubraut.
27. Öldungadeild í bókagerðargreinum.
28. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og rafeinda-
virkjun.
Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstakar
deildir.
öllum umsóknum nýnema fylgi staðfest afrit prófskír-
teina með kennitölu.
Iðnskólinn í Reykjavík
__________________________________________________________i
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við grunnskóia
Norðurlandsumdæmi vestra:
Stööur skólastjóra viö grunnskólana Hólum í Hjaltadal og Akra-
hreppi.
Stööur sérkennara í fræðsluumdæminu.
Stööur grunnskólakennara viö grunnskólana: Siglufirði, meðal
kennslugreina íþróttirdrengja, raungreinar, samfélagsfræöi, erlend
mál og sérkennsla, Sauðárkróki, meðal kennslugreina danska og
tónmennt, Staðarhreppl V-Hún, Rípurhreppi, Haganeshreppi,
Blönduósi, meðal kennslugreina kennsla yngri barna, tónmennt,
mynd- og handmennt, Höfðakaupstað, meðal kennslugreina
íþróttir, Hofsósi, meöal kennslugreina mynd-og handmennt, dan-
ska og kennsla yngri barna, ódýrt húsnæði í boði, Laugarbakka-
skóla, meöal kennslugreina hannyrðir og íþróttir, ódýrt húsnæði í
boði, Vesturhópsskóla, meðal kennslugreina smíðar og hand-
mennt, Húnavallaskóla, meðal kennslugreina stærðfræði og raun-
greinar, Steinsstaðaskóla.
Norðurlandsumdæmi eystra:
Stöður skólastjóra við grunnskólana: Hrísey, Lundi Öxarf. og
Svalbarðshreppi. Stöður grunnskólakennara við grunnskólana:
Akureyri, meðal kennslugreina íslenska, stærðfræði, danska,
enska, íþróttir, samfélagsfræði, raungreinar, hand- og myndmennt,
tónmennt, heimilisfræði, sérkennsla, Húsavík, meðal kennslu-
greina sérkennsla, Dalvík, meðal kennslugreina danska, Grímsey,
Hrísey, Saurbæjarhreppi, Svalbarðsströnd, meðal kennslu-
greina íþróttir, Bárðardal, Lundi Öxarfirði, Raufarhöfn, meðal
kennslugreina íþróttir, Þórshöfn, meðal kennslugreina íþróttir,
handmennt, raungreinar, Árskógarskóla, Þelamerkurskóla,
meðal kennslugreina heimilisfræði, íþróttir, mynd- og handmennt,
Grenivíkurskóla, meðal kennslugreina íþróttir.
fl
Skólafulltrúi
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar
stöðu skólafulltrúa.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf skulu
berast á bæjarskrifstofuna, Strandgötu 6, eigi
síðar en 17. júní n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veita bæjarritari og
skólafulltrúi.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
FRÉTTIR
Launamisréttið
Konur ekki
hálfdrættingar
í hlunnindum
Konurmeð 10% af bílapeningum á sl. ári. Eruekkihálfdrœttingarí
yfirvinnugreiðslum. Beinn launamunur kynjanna er verulegur hjá
ríkisstarfsmönnum
Konur virðast hafa ekið um
10,2% af þeim kflómetrum sem
atvinnurekendur greiddu laun-
þegum fyrir vegna afnota af bfl-
um þeirra, a.m.k. fengu þær 10%
af bflastyrkjum. 485 konur fengu
þessar greiðslur, og eru það um
20% þeirra sem slíkar greiðslur
fengu. Bendir það til þess að
greiðslur til þeirra hafí að jafnaði
verið helmingi lægri, en greiðslur
til karlamanna vegna bflanotkun-
ar. Þetta er meðal upplýsinga,
sem fram koma í skýrslu til félags-
málaráðherra um launajafnrétti
þjá hinu opinbera, sem gerð var
opinber fyrir skömmu.
í skýrsiunni kemur fram til
samanburðar, að 1982 hafi aðeins
5% greiðslna vegna bflaafnota
runnið til kvenna og konur hafa
þá verið 10% þeirra sem fengu
þessar greiðslur.
í yfirvinnugreiðslum birtist
launa og tekjumisrétti kynjana
kvað skýrast skv. þessari skýrslu.
Innan BSRB fá karlar að meðal-
tali 68,2% ofan á dagvinnutekjur
sínar í formi yfirvinnu, en meðal-
viðbótartekjur kvenna vegna
yfirvinnu var aðeins 34,9%.
Innan BHMR fá karlar 48,7% en
konur 39,1%. Innan KÍ fá karlar
48,8% en konur 22,3%. Meðal
grunnskólakennara í HÍK fá karl-
ar 54,2% ofan á dagvinnulaunin
en konur 27,7%. Af framhalds-
skólakennurum í HÍK fá karlar
100,4% ofan á dagvinnulaun sín,
en konur 63,0%
Af þessu sést skýrt að konur
eru ekki hálfdrættingar á við
karla hvað yfirvinnugreiðslur
varðar, þegar þessar upplýsingar
eru skoðaðar og meðaltal fundið.
Þetta felur í sér gífurlegan mis-
mun hvað varðar atvinnutekjur.
Samkvæmt skýrslunni er beinn
launamunur kynjanna að jafnaði
um 5-6% hjá ríkisstarfsmönnum.
Hjá BHMR-félögum er hann
rösk 17%, hjá framhaldsskóla-
kennurum innan BK er hann
2,47% og hjá grunnskólakennur-
um 7,92%. Hjá félagi frétta-
manna er launamismunurinn
3,8% og 5,5% hjá fálagi háskóla-
menntaðra starfsmanna stjórnar-
ráðsins.
gjh
Skák
Meistarafans
í leikhúsinu
Fyrsta sinnið sem ríkjandi heimsmeistari
tekurþátt ískákmóti á íslandi. Borgarleik-
húsið hýsir skáksnillingana íoktóber
Nú hefur endanlegur listi yfír
keppendur á heimsbikarmótinu í
skák sem haldið verður í Borgar-
leikhúsinu nú í október verið gef-
inn út. Margir af allra sterkustu
skákmönnum veraldarinnar
keppa á mótinu og er meðal
ELO-stigafjöldi þeirra um 2620
stig miðað við síðustu áramót en
verður hærri nú í júlí þegar ný
stigatafla verður gefín út.
Stöð 2 stendur að mótinu í sam-
vinnu við Stórmeistarasamband-
ið og er það eitt af sex mótum sem
haldin verða á þessu og næsta ári
og sá sigrar og hlýtur útnefning-
una „Heimsbikarmeistari í skák“
sem stendur sig best í þremur
mótum samtals. Hann fær
aukreitis 20 þúsund dali í verð-
laun.
Keppendur sem nú hafa stað-
fest þátttöku sína eru: Gary
Kasparov, Jan H. Timman, Al-
exander G. Belyavsky, Victor
Kortsnoj, Mikhail N. Tal, Pre-
drag Nikolic, Jonathan S. Spe-
elman, Zoltan Ribli, Arthur Yus-
upov, John D. M. Nunn, Lajos
Portisch, Gyula Sax, Ulf Ander-
son, Andrei Sokolov, Jóhann
Hjartarson, Jaan Ehlvest, Boris
Spassky og Margeir Pétursson en
hann mun tefla sem sérstakur
gestur mótsins. -tt
Ráðhúsið
Húsvörðurinn í höfn
Reykjavíkurborg að kaupa íbúana við Tjarnargötuna út. Tjarnargata 10,
lOa, lOb, lOc oglOd vegna út- og innkeyrslu íbílakjallarann?
Reykjavíkurborg hefur nú
keypt íbúð handa ráðhúsverði í
húsinu við Tjarnargötu 10. Fyrst
um sinn er áætlað að byggingar-
stjórar við ráðhúsið dvelji í íbúð-
inni en þegar byggingunni er lok-
ið á væntanlegur húsvörður þess
að hafa aðsetur þar.
Fasteignasalar höfðu í síbylju
haldið því fram að verðið á fast-
eignum við Tjarnargötuna lækk-
aði og íbúarnir stóðu flestir í
þeirri meiningu en nú hefur það
sumsé komið á daginn að
Reykjavíkurborg er tilbúin til að
festa kaup á húsakosti Tjarnar-
götubúa á sanngjörnu verði, en
eigandinn fékk raunandvirði íbúð-
arinnar fyrir.
Heyrst hafði að borgin hygðist
kaupa Tjarnargötu 18, þar sem
íslensk-erlenda er til húsa, en
borgin á númer 20 fyrir. Friðrik
Sigurbjörnsson, forstjóri íslensk-
erlenda, sagði það algjörlega úr
lausu lofti gripið og ekki fyrir því
flugufótur en hinsvegar hafi hann
heyrt af því að Reykjavíkurborg
hyggðist kaupa Tjarnargötu 10,
lOa, lOb, lOc og lOd til niðurrifs
og í staðinn kæmi inn- og út-
akstursbraut í bflageymslurnar
undir ráðhúsinu. Þetta fékkst þó
ekki staðfest í gær.
Nú liggur fyrir í félagsmála-
ráðuneytinu kæra íbúanna vegna
byggingarleyfis ráðhússins.
Byggingarnefnd hefur látið ráð-
herra í té umsögn sína en hún er á
þann veg að kæran skuli hundsuð
og undir það skrifa fulltrúar
íhaldsins. Fulltrúar minnihlutans
lögðu hinsvegar til við byggingar-
nefnd að hún leggði til við fél-
agsmálaráðherra að fallist yrði á
kröfu kærenda, íbúa við Tjarn-
argötuna, um ógildingu bygging-
arleyfisins.
Ráðherra er nú útí sveit en fyrir
liggur að hún ákvarði hvort bygg-
ingarleyfið sé ógilt eða ekki. -tt
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 1. júní 1988