Þjóðviljinn - 01.06.1988, Síða 15

Þjóðviljinn - 01.06.1988, Síða 15
IÞROTTIR Fótbolti Breiðablik úr leik Guðjón er einn af hinum efnilegu unglingum íslands í fimleikum sem gert hafa mjög góða hluti erlendis að undanförnu. Fimleikar Guðjón í 1. sæti Frábœr árangur hjá íslenskafim- leikalandsliðinu í landskeppni við Skota Ogþetta líka... McEnroe kom með nokkur gullkorn á frétta- mannafundi um helgina. „Yngri tenn- isspilarar eiga að sína þeim eldri meiri virðingu, jafnt innan sem utan vallar. Þeir sem hafa spilað lengi hafa sýnt sig og sannað". Ekki verður sagt um McEnroe karlinn að hann hafi ver- ið neinn engill þegar hann var ungur tennisspilari. Skotar ætla sér áreiðanlega í heimsbikar- keppnina 1990. Því til staðfestingar skipuleggja þeir keppnistímabilið þannig að leikir í skosku úrvals- deildinni stangist ekki á við leiki í heimsbikarkeppninni. Stapleton heill Jack Charlton, þjálfari írska lands- liðsins, hefur valið Frank Stapleton i liðið sem leikur gegn Noregi á mið- vikudaginn. Ekki var víst að Stapleton myndi sleppa í gegnum læknisskoð- un en það gekk og sömuleiðis slapp John Anderson í gegnum læknis- skoðun og í liðið. Vöruskipti Bayer verksmiðjurnar í Þýskalandi, sem á fyrstudeildar liðið Bayer Le- verkusen, hefur gert samning við Pogan Stettin i Póllandi um kaup á landsliðskappanum Marek Lesniak. Verðið er talið vera ein miljón marka auk þess að Pólverjarnir fái vörur frá Bayer verksmiðjunum. AC Milan keypti á dögunum Hollendingin Frank Rijkaard frá Sporting Lissa- bon. Þegar eru fyrir tveir samlandar hans hjá Milan, Ruud Gullit og Marco von Basten, en líklega verður Argent- ínumaðurinn Claudio Borghi, sem er í láni hjá Como á Italíu, látinn fara frá félaginu. Sænskir knattspyrnumenn ganga kaupum og sölum þessa dagana. Sænska liðið Gautaborg hefur þegar selt tvo sterka og um daginn var Johnny Ekström seldur frá ítalska liðinu Empoli til Bay- ern Munchen. Alþjóðaboxráðið gaf Mexikananum Gilberto Roman leyfi til að keppa við Yoshiyki Uchida frá Japan. Roman sem er heimsmeistari í fluguvigt var settur í bann eftir að leifar af eiturlyfinu Mari- juana fannst í honum fyrir bardaga gegn Sugar Baby Rojas. Leynilegt rugby-mót verður haldið í Suður- Afríku í sumar segir Danie Craven, formaður suður-afríska rugbysam- bandsins en þá er meiningin að halda uppá 100 ára afmæli sambandsins. Englendingar, Walesbúar og Skotar hafa bannað eða beðið sína kepp- endur að keppa ekki í Suður-Afríku en það eru sterkustu rugbylöndin. En Craven segir að liðið verði nógu sterkt til að vinna landa sína og liðið verði ekki tilkynnt fyrr en allir kepp- endur eru komnir til Suður-Afríku. Ólæti eru ekki bara hjá aðallandsliðum. í Aþenu stendur yfir keppni landsliða undir 21 árs og i leik Frakka og Grikkja urðu mikil uppþot sem leiddu til þess að slíta varð leiknum. UEFA hefur fengið skýrslu um málið og mun hún fara fyrir aganefnd. Hvað veldur þessu ofbeldi? Schuster í vanda Þýski landsliðsmaðurinn, Bernd Schuster, sem leikur með Barcelona hefur verið kærður fyrir skattsvik og forseti liðsins Luis Nunez einnig fyrir að vera vitorðsmaður. Þeim var sleppt eftir yfirheyrslur en gert að skilja eftir um 15 miljónir fyrir hugsan- legum sektum. Schuster er talinn hafa stungið undan sem svarar tveim og hálfri miljón á árunum 1983 til 1986. Þess má geta í leiðinni að hann mun spila með Real Madrid næsta keppnistímabil. Knattspyrnuskóli Breiðablik verður með knattspyrnu- skóla sem hefst 6. júní. Kennarar verða Sigurður Víðisson, Eiríkur Þor- varðarson og Gregor Bilatowitz en nánari upplýsingar fást hjá Sverri í síma 641499. Grindavík sló Breiðablik út úr bikarkeppninni í gærkveldi þegar fyrsta umferð hennar var háð. Þá máttu Vestmannaeyingar þakka fyrir sigur sinn gegn Aftureldingu en vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit. Úrslit í mjólkurbikarnum: Selfoss-Haukar 7-1 (6-0) Mörk Selfoss: Jón B. Kristjánsson, Vilhelm Fredriksen, Björn Axelsson, Sævar Sverrisson, Guðmundur Magnússon, 2 sjálfsmörk. Mark Hauka: Helgi Eiríksson. Hveragerði-Grótta 4-3 (1 -2) Mörk Hveragerðis: Ólafur Jósefsson 2, Jóhannes Björnsson 2. Mörk Gróttu: Erling Aðalsteinsson, Valur Sveinbjörnsson, Kristján Björg- vinsson. Vormót Kópavogs í frjálsum íþróttum var haldið um helgina og var þátttaka góð í flestum greinum. Við miklu var búist af Pétri Guðmundssyni sem ætlaði að kasta yfir 20 metra. Honum tókst það í tveimur fyrstu köstunum en bæði voru dæmd ógild vegna þess að útfærsla hans var ekki nógu góð. Þriðja kastið var þó gilt en þar vantaði 40 sentimetra uppá tuttugu metrana. Pétur mun því enn reyna við blessaðan múrinn í bili. Súsanna Helgadóttir FH náði bestum árangri í langstökki kvenna og hlaut glæsilegan bikar sem gefinn var til minningar um Rögnu Ólafsdóttir. -ste Úrslit 100m hlaup karla Friðrik Arnarsson UBK......11,4sek Stefán Þ. Stefánsson ÍR....11,4sek Bjarni Jónsson UBK.........11,7 sek Hannes Garðarsson UNÞ......11,7 sek 1000m hlaup karla Steinar Johannsson FH.....2.37,8 mín GuðmundurSigurðsson UBK ...2.37,8mín Á opna franska tennismótinu skiptast menn í tvo flokka yfir hugmynd sem forráðmenn tenn- isíþróttarinnar hafa lagt fram. Þeir vilja breyta reglunum þannig að í stað þess að keppendur fái Síðastliðinn sunnudag fór fram í Laugarda) Ársþing Borðtennis- sambands íslands. Gunnar Jó- hannsson formaður flutti skýrslu stjórnar og lofaði helst frammi- stöðu landsliðsins þegar það sigr- aði í 3. deild Evrópukeppninnar og komst upp í 2. deild. Samþykkt var að breyta flokk- akeppninni þannig að liðin spila nú heima og heiman í stað þess að allt sé spilað á tveimur helgum á árinu. Reglum um val á Borð- tennismanni ársins var breytt Grindavík-UBK 2-0 Mörk Grindavíkur: Freyr Sverrisson, Páll Jóhannsson. Afturelding-ÍBV 3-5 Öll mörkin skoruð í vítakeppni eftir framlengingu. Reynir S.-ÍK 4-2 (3-0) Mörk Reynis: Pétur Sveinsson 2, Grétar Sigurbjörnsson, Sigurjón Sveinsson. Mörk ík: Úlfar Óttarsson 2. Víöir-Ármann 4-0 (3-0) Mörk Víðis: Sævar Leifsson, Björn Vilhelmsson, Heimir Karlsson, Svan- ur Þorsteinsson. Hvöt-Magni 1-3 Mark Hvatar: Gísli Gunnarsson. Mörk Magna: Jón Ingólfsson 2, Þor- steinn Jónsson , , -þom Björn Pétursson FH..............2.48,4 mín Langstökk karla Agnar Steinarsson |R............6,34 m Stefán Þ. Stefánsson |R.........6.29 m Arnaldur Gylfason IR............5,69 m Kúluvarp karla PéturGuðmundssonHSK............19,60 m AndrésGuðmundssonHSK............13,67m ÁrniJensenlR.....................13,48 m Spjótkast karla UnnarGarðarssonHSK...............68,44 m StefánÞ. Stefánsson |R............47,1 Om AgnarSteinarssonlR..............44,18m 100m hlaup kvenna Guðrún Arnardóttir UBK........12,8 sek Hafdís Sigurðardóttir Á.......13,2 sek Halldóra Narfadóttir UBK..........13,3 sek 800m hlaup kvenna Fríða Þórðardóttir UMFA.....2.27,0 mín Margrét Guðjónsdóttir UBK...2.48,2 mín ÞorbjörgJensdóttirlR............2.56,1 mín Langstökk kvenna Súsanna Helgadóttir FH............5,80 m Guðrún Valdimarsdóttir |R.........4,91 m Guðrún Ásgeirsdóttir |R...........4,65 m Kúluvarp kvenna Sigrún Jóhannsdóttir KR.........10,65m Spjótkast kvenna Sigrún JóhannsdóttirKR...........24,26 m HalldóraHinriksdóttirUBK........19,10m tvær tilraunir til uppgjafar komi aðeins ein. Forseti Alþjóðatennissam- bandsins, Philippe Chartier, segir að sambandið vilji gera tennis að meiri list en ekki bara þannig að í stað þess að stjórnin velji, fá allir meistaraflokks- menn, stjórnarmenn BTÍ, lands- liðsnefnd og landsliðsþjálfari at- kvæðaseðla. Gunnar Jóhannsson var endur- kosinn formaður en aðrir í stjórn voru kosnir Árni Siemsen, Hall- dór Haralz, Ingólfur Arnarson og Valgarð Halldórsson. í vara- stjórn voru kosnir Hjálmar Aðal- steinsson, Albrecht Ekmann og Eiríkur Arnarson. Engin kona hlaut kosningu. -ste Framförin hjá íslenska hml- eikalandsliðinu heldur áfram. Fyrir skömmu varð Fjóla Ólafs- dóttir norðurlandameistari og um helgina kepptu íslendingar í landskeppni við Skota. Noregur Loksins sigur Stóllinn farinn að kólna undir Teiti aftur Brann, lið sem Teitur Þórðar- son þjálfar og Bjarni Sigurðsson leikur með, vann loks sigur í norsku 1. deildinni. Það var Lilleström sem Brann vann 1-0 og er það fyrsti sigur liðsins á heimavelli. Stóllinn fer því að kólna aftur undir Teiti því venjan er sú í Noregi að ef illa gengur hjá liði er þjálfarinn rek- inn. Gunnar Gíslason og félagar hjá Moss unnu einnig sigur. Það var gegn Voleringen og fór leikurinn 2-0 sem kemur Moss uppí þriðja sætið. -ste ónákvæmum þrumuskotum. „Ein uppgjöf myndi breyta tenn- isíþróttinni svo að menn myndu nota hausinn meira,“ sagði Chartier. John McEnroe og nokkrir af Svíum er sammála honum en ekki eru allir á sama máli. Ivan Lendl, Pat Cash og Boris Becker eru í þeim hópi. „Þetta er alveg fáránlegt. Þetta myndi einfalda tennis of mikið og taka alla spennu úr leiknum. Það væri eins og að banna forhandar- skot,“ sagði Pat Cash. Forsetanum finnst ekki mikið til um kvartanir leikmanna: „Það er allt í lagi að fá þeirra álit en hvað með áhorfendur sem sjá leikmönnum óbeint fyrir launum. Og hvað með sjónvarps- áhorfendur sem þurfa að horfa uppá þrjátíu ónákvæm þrumu- skot í hverjum leik? Hreint út sagt er það hundleiðinlegt! Hug- myndin er kannske 10 árum á undan tímanum en hún er komin fram og deyr ekki.“ Enn hefur engin ákvörðun ver- ið tekin en vitað er að forráða- menn Wimbledon keppninnar eru að hugsa málið. -ste Guðjón Guðmundsson vann einstaklingsflokkinn, í 3. sæti lenti Axel Bragason og Jóhannes Sigurðsson náði í 5. sætið. Guð- jón vann einnig hringi og tvíslá, Axel á svifrá og Kristján Stefáns- son í stökki. Bryndís Guðmundsdóttir náði í 3. sæti í einstaklingskeppninni og í þriðja á jafnvægislá en Fjóla varð þar í 1. sæti. Drengirnir kepptu einnig í landskeppni en Skotarnir báru þar naumlega sigur yfir fslend- ingum með 220,30 stigum gegn 218,60. í landskeppninni unnu Is- lendingar í stökki, hringjum, tví- slá og svifrá en töpuðu í gólfi og á bogahesti þar sem tapið var nógu stórt til að færa gestgjöfunum sigur í landskeppninni. _ste Tennis Úlfhildur vann tvöfalt Fullorðnir keppa um næstu helgi Um helgina fór fram í Kópa- vogi NIKE-Dunlopmótið í flokki unglinga í tennis. Keppt var utan- húss í sæmilegu veðri en þetta var fyrsta útimótið í sumar. Úrslit Drengir: Jónas Björnsson Víking vann Stefán Pálsson ÍKI einliðaleiks úrslitum 3-6, 6-3 og 6-4. Stefán og Fjölnir Pálssynir ÍK unnu tviliðaleikinn. Stúlkur: Úlfhildur Indriðadóttir ÍK vann Ellsa- betu Sveinsdóttir í úrslitum einliða- leiks. Anna Pála Stefánsdóttir ÍK og Úlfhild- ur Indriðadóttir unnu tvíliðaleikinn. Um næstu helgi fer fram flokk- un fullorðinna og hefst keppni í Kópavogi kl.17.00 á föstudaginn. Skráningarlistar liggja frammi hjá flestum tennisvöllum en einn- ie er hægt að skrá sig hjá Einari í síma 52941. -ste I kvöld Fótbolti Mjólkurbikarinn heldur áfram og kl.20.00 hefst síðari hluti 1. umferðar. Árvakur-Skotfélagið Leiknir R.-FH Ægir-Fyrirtak Njarðvík-Víkverji Ernir-ÍR Fylkir-Snæfell Hvatberar-Þróttur R. Augnablik-Víkingur Ól. Tindastóll-Dalvík Valur Reyðarf.-Höttur Þróttur N.-KSH Léttir-Hafnir Leik KA-ÍBK og ÍA-Vals er frest- að til föstudagslns. Mlövikudagur 1. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Frjálsar Pétur náði ekki Tvisvar ógilt kast yfir tuttugu metra Tennis Ein uppgjöf í stað tveggja Ekki allir sammála um hugmyndir sem leyfa aðeins eina uppgjöfí tennis Borðtennis Ársþingið um helgina Nýjar reglur við val á Borðtennis- manni ársins

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.