Þjóðviljinn - 01.06.1988, Blaðsíða 4
Hafnarfjörður 80 ára
Stúdentar frá Flensborgarskóla
Flensborgarskólanum var
slitið föstudaginn 20. maí sl. og
voru þá brautskráðir 47 stúdent-
ar, 5 nemendur með verslunar-
próf og 1 með lokapróf af tækni-
fræðibraut, alls 55 nememdur.
Við skólaslitin voru kynnt ákvæði
í erfðaskrá Önnu Jónsdóttur
Ijósmyndara, sem lést fyrir
nokkrum mánuðum, en hún gaf
andvirði húseignar sinnar til
sjóðstofnunar til að styrkja efni-
lega nemendur til framhaldsnáms
að loknu prófi frá Flensborgar-
skólanum. Er sjóðurinn helgaður
minningu föður hennar, Jóns
Þórarinssonar, sem var fyrsti
skólastjóri Flensborgarskólans.
Bestum námsárangri á stúd-
entsprófi náðu Guðrún Guð-
mundsdóttir, sem útskrifaðist
bæði af náttúrufræðabraut og
viðskiptabraut með 27A 14B og
2C, en hún stundaði nám í öld-
ungadeild skólans, Þórunn Rakel
Gylfadóttir (30A, 20B og 1C),
sem útskrifaðist af náttúru-
fræðabraut, og móðir hennar,
Þórunn S. Olafsdóttir, (25A, 14B
og 3C), sem útskrifaðist af
málabraut og stundaði námið í
öldungadeildinni.
Skólameistari, Kristján Bersi
Ólafsson, skýrði frá því í skóla-
slitaræðunni, að nýlega hefði
skólanum borist tilkynning um
innihald erfðaskrár Onnu Jóns-
dóttur ljósmyndara, sem lést fyrir
nokkrum mánuðum. Þar var
ákvæði um að selja skyldi húseign
Önnu að Austurgötu 28 í Hafnar-
firði og leggja andvirðið í sjóð er
nefnist Fræðslusjóður Jóns Þór-
arinssonar og er hlutverk hans að
styrkja til framhaldsnáms efni-
legt námsfólk, sem lokið hefur
námi við Flensborgarskólann.
Verður sjóðnum bráðlega sett
skipulagsskrá, en hann á að vera í
umsjá skólanefndar skólans.
Auk skólameistara tóku til
máls við skólaslitin Guðrún Ingv-
arsdóttir, fulltrúi 50 ára gagn-
fræðinga; Ólafur Thordarson,
fulltrúi 40 ára gagnfræðinga, og
Árni M. Mathiesen, fulltrúi 10
ára stúdenta, og færðu þau öll
skólanum gjafir. Einnig talaði
fulltrúi nýstúdenta, Valdimar
Svavarsson, og kór Flensborgar-
skólans söng við athöfnina undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Á merkum tímamótum í sögu Hafnarfjarðar
senda eftirtalin bæjar- og sveitarfélög
Hafnfirðingum sínar bestu kveðjur
fjf Reykj avík
ísafjörður
Kópavogur
Garðabær
Akureyri
Mosfellsbær
Hveragerði
Borgarnes
STOKKSEYRI
Húsavík
Stokkseyrarhreppur
Njarðvík
V estmannaeyj ar
Ölfushreppur
Seltjarnarnes
Neskaupstaður