Þjóðviljinn - 02.06.1988, Síða 10
í DAG
Tekið
til
hendinni
Nú er skólinn búinn og krakk-
arnir komnir á kreik út um borg
og bí. Unglingarnir nota þó
sumarfríið sitt flestir til þess að
vinna. f>ess vegna verða flestir
varir við það þegar þeir flykkj ast
út á vinnumarkaðinn á vorin eftir
að hafa verið lokaðir allan vetur-
inninniískólastofunni. Hérí
Reykjavík er þetta mjög áber-
andi þegar krakkarnir flykkjast
um borgina eins og hvítur storm-
sveipurogtaka til hendinni. Það
er unglingum þessarar borgar að
þakka að rusl og óþverri vetrarins
hverfur sjónum okkar. Þá geta
erlendu ferðamennirnir sem
heimsækja okkur talað um hvað
höfuðborgin okkar er hrein og
falleg. Þetta vill oft gleymast hjá
okkur sem eldri erum. Sú vinna
sem unglingarnir leggja af mörk-
um er landi og þjóð meira virði en
margur vill vera láta. Það býr
mikill kraftur og þor í æsku þessa
lands sem oft á tíðum er ekki gef-
inn gaumur. Menn gleyma sér í
vandamálum líðandi stundar.
Drukkna í síbylju fjölmiðlanna
og gleyma því að til er eitth vað
annað en axarsköft misviturra
stjórnmálamanna sem setja slag-
síðu á þjóðarskútuna. Nú þegar
sá tími fer í hönd að yngsta kyn-
slóðin á vinnumarkaðinum
leggur hönd á plóginn þá er okk-
ur hinum eldri hollt að sýna henni
dálítið þakkiæti og taka eftir því
sem vel er gert um borg og bí.
-gsv
í dag er
2. júní, fimmtudagur í sjöundu
viku sumars, þrettándi dagur
skerplu, 154. dagurársins. Sól
kemur upp í Reykjavík kl. 3.19 og
sest kl. 23.34.
Viðburðir
Fardagar hefjast (flutningadag-
ar, nýirábúendurtaka viðjörð-
um, þrír dagar sex vikum eftir
sumardaginnfyrsta). Dýridagur
(minning síðustu kvöldmáltíðar-
innarog heilagssakramentis,
kristslíkamadagur, hátíðfyrir-
skipuð á íslandi 1326, leggst nið-
ur með pápísku). Jarðskjálftinn
mikli á Dalvík 1934. Þjóðhátíðar-
dagur Ítalíu. Stúdentinn Benno
Ohnesorg skotinn í mótmælum í
Berlín 1967.
Þjóðviljinn
fyrir 50árum
Þýskum árásarher stefnt saman
við landamæri Tékkóslóvakíu.
Henlein krefst þess að stjórnin
segi upp samningunum við So-
vétríkin og Frakkland. Bretar
leggjast á sveif með Henlein. -
„Skjaldborgin" á Norðfirði gerir
samfylkingu við afturhaldið og
svíkurgerðasamninga. Bæjar-
stjórnarkosningar á Norðf. í
haust. 7 Lárus Salómonsson
vinnur Íslandsglímuna.
UM ÚTVARP & SJÓNVARP #
Stangveiði í
Sjónvarpinu
Sjónvarpið kl. 20.35
í kvöld verður sýndur fyrsti þátt-
ur í breskum fræðslumyndaflokki
um stangveiði. í fyrsta þættinum,
en alls eru þeir sex, verður fjallað
um silungsveiði í ám og vötnum.
Morðgáta
aftur á
dagskrá
Stöð 2 kl. 20.50
Stöð tvö hefur að nýju sýningar á
þáttunum Morðgáta með
Íeikkonuni Angela Lansbury.
Þættir þessir hafa notið mikilla
vinsælda víða um heim.
Þátturinn í kvöld gerist í París
þar sem aðalpersónan Jessica
Fletcher (Angela Lansbury) er í
heimsókn hjá vinkonu sinni en
hún er Tískuhönnuður. f miðri
tískusýningu vinkonunnar finnst
meðeigandi hennar myrtur að
tjalda baki. Grunur fellur á vin-
konuna.
Angela Lansbury leikur aðalhlutverk i þáttaröðinni Morðgáta.
Fréttir á ensku
í sumar verða fréttir á ensku í
útvarpinu eins og nokkur undan-
farin sumur. Sú breyting verður
nú á þessum fréttaútsendingum
að þær verða á rás 1 á morgnana
að loknu fréttayfirliti klukkan
7:30. Með því að senda „Fréttir á
ensku“ út á rás 1 nást þær um land
allt og miðin umhverfis landið.
Þessar fréttasendingar eru eink-
um ætlaðar erlendum ferða-
mönnum. Þar verður stutt yfirlit
erlendra frétta, helstu innlendar
fréttir, sem varða útlendinga,
fréttir af menningar og listvið-
burðum, leiðbeiningar til er-
lendra ferðamanna varðandi um-
gengni um landið og fréttir af
vegum og umferð. I lok fréttanna
verður svo veðurspá fyrir allt
landið.
Ágrip af fréttunum verður les-
ið inn á símsvara, sem verður op-
inn allan sólarhringinn. Síminn er
91-69 36 90. Fréttir á ensku
verða á dagskrá útvarpsins fram
til 1. september.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Er hann A Ég held það, en hann
lifandi? / er særður. Ekki meira
en svo að hann dragi
Komum ekki
við hann ef
hann hefur
meitt sig.
Passaðu hann
þá meðan ég
næ í mömmu
Vonandi
kann hún á
svona lagað.
Auðvitað. Það er ekki
hægt að verða
mamma nema maður
geti græjað allt
á sfundinni.
“V
m
FOLDA
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. júní 1988