Þjóðviljinn - 02.06.1988, Qupperneq 16
—SPURNINGIN—
Ert þú með gigt?
Ingibjörg Guöbjörnsdóttir,
vinnur á rannsóknastofu:
Já að einhverju leyti hin síðari ár.
Þetta fylgir aldrinum.
Lilja Hafliðadóttir
verslunarmaður:
Stundum að ég held, helst í ann-
arri öxlinni. Ég hef aldrei leitað
læknis vegna þessa.
Óskar Lárusson
ellilíf ey risþegí:
Nei, sem betur fer hef ég sloppið
við það. Konan mín er hins vegar
með gigt þó ekki sé hún á mjög
háu stigi.
Arnar Ólafsson
rafvirki:
Nei, ég hef aldrei fundið fyrir
slíku.
Kristjana Birgisdóttir
verslunarmaður:
Nei, ég er svo heppin að hafa
sloppið við það. Ætli maður megi
ekki búast við að finna fyrir henni
síðar.
Tfirdráttur
á téKKareiKninea
launafólKs
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Gigtlœknaþing
Fimmti hver þjáist af gigt
Norræntgigtlœknaþing íReykjavík. Fœrustu lœknar og
vísindamenn haldafyrirlestra. Um 500 ráðstefnugestir
Hluti ráðstefnugesta á einum fyrirlestranna. Mynd: ARI.
í gærmorgun var sett í
Háskólabíói 22. þing norrænna
gigtlækna. Ráðstefnuna sækja
um 500 manns frá Norðurlöndun-
um, Bandaríkjunum, Bretlandi,
Frakklandi, Ungverjalandi og
víðar. Þetta er ein af fjölmennari
ráðstefnum sinnar tegundar sem
haldin hefur verið.
Leiðtogafundur
Gorbatsjov tekur
asigrogg
Gigtsjúkdómar eru meðal erf-
iðustu sjúkdóma mannkynsins og
hrjá miljónir manna víða um ver-
öld. Hér á landi er talið að sjúk-
dómurinn hrjái um fimmta hvern
íslending og útgjöld samfélagsins
vegna þessa eru gífurleg.
Kristján Erlendsson læknir
sem starfað hefur í undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar, sagði að
undirbúningurinn hefði staðið
yfir meira og minna sl. 2 ár. Hann
kvaðst ánægður með hvernig' til
hefði tekist, hingað væri kominn
fjöldi fyrirlesara víða að og marg-
ir fyrirlestrar um sérhæfð málefni
Kristján Erlendsson: íslendingum mikilvægt að sækja og halda sjálfir
ráðstefnur sem þessar. Mynd: ARI.
væru á dagskrá ráðstefnunnar þá
3 daga sem hún stendur yfir.
„Hér gefst læknum gott tæki-
færi til að bera saman bækur sínar
og segja frá reynslu sinni. Þannig
fá ráðstefnugestir betri yfirsýn
yfir það sem er að gerast annars
staðar í heiminum. Þetta er sér-
staklega mikilvægt fyrir okkur ís-
lendinga þar sem aðstæður eru
þannig að okkur hættir til að ein-
angrast í faginu," sagði Kristján.
Samhliða þessu þingi munu
fulltrúar Gigtarfélaga Norður-
landa, sem eru samtök sjúklinga,
ræða sameiginleg hagsmunamál
sín og vandamál tengd sjúk-
dómnum.
-iþ
Babb kom í bátinn á fyrsta
blaðamannafundi Míkhaíls
Gorbatsjovs í Moskvu í gær. Þeg-
ar aðalritarinn hafði talað drjúga
stund á sínu ástkæra og ylhýra
móðurmáli las hann furðu og
gremjusvip af ásjónum ýmissa
fréttamanna. Þar eð ekkcrt í máli
hans gaf tilefni til annarlegra
svipbrigða óskaði hann skýringar
á þessu.
í ljós kom að hinir fýldu frétta-
menn voru af erlendu bergi
brotnir og skildu ekki orð af því
sem hann sagði. Ekki hafði verið
rúm fyrir þá í fremstu bekkja-
röðum en við þær voru tengd
eyrnatól sem fluttu þýdd orð
leiðtogans. Þar höfðu forvitnir
landar Gorbatsjovs nefnilega
hreiðrað um sig.
Leiðtoginn sá að við svo búið
mátti ekki standa og af ákveðni
og festu skólameistarans tók
hann við stjórn. „Sovétmenn sem
ekki þurfa að heyra þýðinguna
sitji þarna! Svona nú, skiptið um
sæti! Af hverju siturðu þarna? Já
þú! Viltu gera svo vel að fara
þangað!“
Þegar öllu þessu var lokið og
hver sat á sínum stað brosti Gor-
batsjov breitt og mælti stundar-
hátt: „Einsog þýskir félagar okk-
ar myndu komast að orði: Ordn-
un8-“ Reuter/-ks.
v