Þjóðviljinn - 04.06.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 4. júní 125. tölublað 53. árgangur
Fiskverð
Aum 5% í afmælisgjöf
Sjómenn og útgerðarmennfá kaldar kveðjurfrá ríkisstjórn og fiskvinnslu á 50. sjómannadaginn. Öðrum
launþegum tryggð 12,75% tekjuaukningámeðan sjómennfáásig kjaraskerðingu
Sjómenn og útgerðarmenn
fengu heldur en ekki kaldar
kveðjur frá fulltrúum ríkisins og
fískvinnslu í yfirnefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins í gær,
skömmu áður en sjómannada-
gurinn verður haldinn hátíðlegur
í 50. sinn. Yfirnefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins ákvað á
fundi sínum í gær fiskverðshækk-
un upp á tæp 5% með atkvæðum
oddamanns og kaupenda.
Fulltrúar sjómanna og útgerð-
armanna mótmæltu verðákvörð-
uninni harðlega með bókun þar
sem segir að sjómönnum sé ætlað
að sætta sig við stórfellda kjara-
skerðingu á meðan öðrum
launþegum sé tryggð með bráða-
birgðalögum tekjuaukning um
12,75%. Á sama tíma sé fisk-
vinnslunni tryggð 17% tekju-
aukning með gengisfellingum og
vilyrði fyrir 3% til viðbótar.
Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambandsins sagði að
sjómenn myndu leita álits lög-
fræðings vegna verðákvörðunar-
innar og vísa málinu til gerðar-
dóms þar sem hún bryti í bága við
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn-
ar um 10% hækkun til þeirra
hópa sem ósamið var fyrir þegar
lögin voru sett. Sjómenn höfðu
gert þá kröfu að fiskverð hækkaði
um 10% í samræmi við ákvæði
laganna.
Björn Grétar Sveinsson for-
maður Sjómanna- og verkalýðs-
félagsins Jökuls á Höfn sagði
verðákvörðunina með öllu ófuli-
nægjandi og að sjómenn myndu
ekki sætta sig við hana þegjandi
og hljóðalaust.
Sjá síðu 3
Listahátíð
Veislan
hafin
í dag setur Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráð-
herra tíundu Listahátíðina. Að
þessu sinni fer setningarathöfnin
fram í Listasafni íslands við Frík-
irkjuveg. Þar verða opnaðar tvær
málverkasýningar og flutt ávörp.
í gær komu til landsins rúmlega
tvö hundruð Pólverjar, með tón-
skáldið og stjórnandann Pender-
ecki í broddi fylkingar, en síðdeg-
is verða opnunartónleikar hátíð-
arinnar í Háskólabíói. Þar flytur
Fílharmóníuhljómsveitin í Pozn-
an og Fílharmóníukórinn frá
Varsjá Pólska sálumessu eftir
Penderecki sem hann stjórnar
sjálfur flutningi á.
Að sögn Sonju B. Jónsdóttur
blaðafulltrúa Listahátíðar 88 hef-
ur sala aðgöngumiða gengið
mjög vel. Þegar er uppselt á
nokkur atriði. „í gær var ákveðið
að bæta við 100 sætum á tónleika
jassistans Stéphane Grappelli
sem verða í Háskólabíói á mánu-
daginn, en langt er síðan að allt
var uppselt á þá. Þessir hundrað
miðar seldust strax eftir að ein
útvarpsstöðin var búin að flytja
fréttina," sagði Sonja. -sg
Pólska tónskáldið Penderecki á íslandi. í gær þáði hann kvöldverðar-
boð í húsaskynnum Félags íslenskra tónskálda. íslensk tónskáld
bjóða hann velkominn. Talið frá vinstri: Jón Þórarinsson, Þorkell Sig-
urbjörnsson, Barbara Sigurbjörnsson, Áskell Másson og heiðursgest-
urinn Penderecki. Ljósm. Ari.
Sjá nánari umfjöllun um Listahétíð á síðu 7-9.
Palestínskar konur
í lykilhlutverki
Óeirðirnar á herteknu svæðun- sinna nú brýnustu þörfum þessa
um í ísrael hafa nú staðið í rúma samfélags sem býr við hrikalegar
sex mánuði. Palestínskar konur aðstæður á lokuðu svæðunum.
gegna lykilhlutverki á þessum ---------------
svæðum. Þær hafa starfað í leyni- ,
legum nefndum í áraraðir og Sjá SIOU 17
Sjómannadagur
Hálf
öld
50 ár eru liðin frá því sjó-
mannadagurinn var fyrst haldinn
hátíðlegur í Reykjavík og á ísa-
firði. Nú er dagurinn lögboðinn
frídagur sjómanna og haldinn
hátíðlegur í öllum sjávarplássum
landsins.
í tilefni dagsins brá ljósmynd-
ari blaðsins sér í róður með
tveimur gömlum sjóhundum.
Blíða var veðurs og margt
skemmtilegt bar fyrir auga
myndavélarinnar.
Sjá Sunnudagsblað
Skákin
Kasparof
að svífa
fiam úr
Fischer?
Frammistaða Kasparofs á
heimsbikarmótinu í Amsterdam
þótti með ólíkindum og gera
menn því nú skóna að Kasparof
rjúfi Elo-stigamet Bobbys gamla
Fischers, sem álitið hefur verið
óhugsandi.
Helgi Ólafsson skrifar
um Amsterdammótið
í sunnudagsblaðið