Þjóðviljinn - 07.06.1988, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 07.06.1988, Qupperneq 9
Aldrei þessu vant mæta James Worthy og félagar hans hjá Lakers ekki liði Boston í úrslitunum í ár. NBA-karfa Lakers sigraði Dallas 117-102 Er tími Detroit loks runninn upp? beggja liðanna á þessu langa og stranga keppnistímabili. Liðin léku 82 leiki yfir tímabilið og fram að þessu hafa þau bæði leikið 17 leiki í úrslitakeppninni. Leikmenn Detroit urðu fyrri til að tryggja sig í úrslitin. Þeir sigr- uðu Boston 95-90 á föstudag og þurfti því ekki oddaleik til að fá fram úrslit. Leikmenn Boston áttu ekki góðan dag og munaði þar mest um slakan leik Larry Bird (aðeins 16 stig) og meiðsli hjá Robert Parish sem varð að yfirgefa völlinn í 1. lotu. Boston byrjaði betur og staðan eftir 1. lotu var 25-21 þeim í vil. Detroit hafði betur í 2. lotu og staðan í leikhléi var 48-46 þeim í vil. Það var síðan í 3. lotu sem leikmenn Detroit gerðu út um leikinn og breyttu stöðunni í 75-63. Stiga- hæstir hjá Detroit voru Vinnie Johnson með 24 stig og Adrian Dantley með 22. Magic og Worthy sáu um Dallas Á laugardagskvöldið fór fram oddaleikurinn milli Lakers og Dallas á heimavelli Lakers. Fram að þessum leik höfðu liðin spilað 9 leiki á þessum velli í vetur og hafði Lakers sigrað í þeim öllum. Lið Lakers var því talið mun sig- urstranglegra fyrir þennan leik. Leikmönnum Dallas tókst að halda Lakers-hraðlestinni niðri í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi 54-53 Lakers í vil. Það var ekki fyrr en í 3. lotu sem leik- menn Lakers komust í gang og munaði þar mest um leik James Worthy sem skoraði 14 stig á þessu tímabili. Dallas náði reyndar muninum niður í 4 stig þegar um 10 mín. voru til loka leiksins en leikmenn Lakers svör- uðu strax með 7 stigum og náðu muninum upp í 11 stig og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Worthy skoraði 28 stig fyrir Lakers og Magic Johnson 24. Magic bætti við 11 stoðsending- um og 9 fráköstum. Hjá Dallas var Mark Aguirre stigahæstur með 24 stig. ið. -Hans Henttinen Eftir að hafa spilað í úrslitun- um síðustu 4 árin er Boston nú úr leik. Detroit lagði Boston 95-90 á föstudaginn og sigraði því samtals 4-2. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem Detroit kemst alla leið í úr- slit. Þar mæta þeir Lakers sem keppir um titilinn í 7. skiptið á 9 árum. Liðin spila mest 7 leiki og er sá fyrsti í kvöld í Forum-höllinni. Ánnars verða leikdagar sem hér segir: 7. og 9. júní í Forum. 12., 14. og 16. júní verður leikið í Det- roit og ef þörf krefur verða tveir síðustu leikirnir í Forum-höllinni 19. og 21. júní. Þess má geta að leikurinn í kvöld verður hundraðasti leikur Isiah Thomas í leik gegn Boston. Hann á einna stærstan þátt í hversu langt Detroit liðið er kom- ---------------2. deild-------------- Fylkir ógnar FH Þróttarar neðstir eftir tap gegn Fylki ígœr. Tindastóll vann í Eyjum. Jafntefli á Siglufirði FH-ingar sitja einir á toppi deildarinnar og eru eina liðið sem ekki hefur tapað stigi. Árbæing- arnir í Fylki fylgja í kjölfarið eftir góðan sigur á Þrótturum í gær- kvöldi. Onnur lið eru í einum hnapp, enda aðeins þremur um- ferðum lokið. Þróttur-Fylkir 2-4 (2-2) Þessi Reykjavíkurfélög áttust við á Valbjarnarvelli í gærkvöldi og var það síðasti leikur umferð- arinnar. Fylkir er nýliði í deildinni eftir fremur stutta veru í 3. deild en þjálfari þeirra er kraftaverkamaðurinn Marteinn Geirsson. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en Þróttarar skoruðu fyrsta mark hans og var það Sigurður Hallvarðsson sem gerði það. Baldur Bjarnason jafnaði fyrir Árbæinga, komust yfir með marki Guðjóns Reynis- sonar en Steinar Helgason jafn- aði fyrir Þrótt, 2-2 í hálfleik. Á 61. mínútu komst Fylkir aft- ur yfir en þá fengu þeir víti eftir að boltinn hafði hrokkið í hönd eins Þróttarans. Gústaf Vífilsson skoraði úr vítinu. Týndi sonurinn Örn Valdimarsson tryggði Fylki síðan sigurinn með fjórða mark- inu. Nikulás Jónsson, Þrótti, fékk rautt spjald rétt fyrir leiks- lok en hann hafði fengið að líta það gula fyrr í leiknum. ÍBV-Tindastóll 2-4 (0-3) Nýliðar Tindastóls komu svo sannarlega á óvart með kröftug- um leik sínum í Eyjum. Eftir að- eins 5 mínútna leik hafði Ingvar Guðfinnsson gert tvö mörk fyrir gestina og Eyjamenn urðu þrumlostnir. Eyjólfur Sverrisson bætti svo þriðja marki þeirra við fyrir leikhlé og enn gátu Vestmannaeyingar ekki svarað fyrir sig. í síðari hálfleik minnkaði Hlynur Jóhannsson muninn en Eyjólfur skoraði aftur fyrir Sauðkrækinga og innsiglaði þannig sigurinn. Ingi Sigurðsson lagaði síðan stöðuna aðeins fyrir Eyjamenn með marki rétt fyrir leikslok. KS-ÍR 2-2 (1-1) ÍR-ingar sóttu eitt stig til Sigl- ufjarðar á laugardag þegar þeir gerðu jafntefli við KS 2-2. Breiðhyltingar náðu forystunni í leiknum með marki Sigurfinns Sigurjónssonar en Steve Rutter jafnaði fyrir heimamenn og stað- an því 1-1 í hálfleik. Jónas Björnsson kom KS síðan yfir í byrjun síðari hálfleiks en ÍR- ingar gáfust ekki upp og jafnaði Eggert Sverrisson fyrir þá, 2-2. Staðan FH ...........3 3 0 0 8-2 9 Fylkir........3 2 1 0 7-4 7 Víðir.........3 1 1 1 5-3 4 UBK..........3 1116-54 KS ....’.....3 1117-74 ÍR............3 1 1 1 5-6 4 ÍBV .........3 1 0 2 6-8 3 Tindastóll....3 1 0 2 6-10 3 Selfoss.......3 0 2 1 5-7 2 ÞrótturR......3 0 1 2 6-9 1 Markahæstir 3 Eyjólfur Sverrisson, Tindast. 3 Guðmundur Magnússon, Selfossi 3 Hörður Magnússon, FH 3 Jón Þórir Jónsson, UBK 3 Pálmi Jónsson, FH 3 Sigurður Hallvarðsson, Þrótti ■Þ°m 3. deild Víkverji enn án stiga Stjarnan vann í Grindavík. IK burstaði Njarðvík. Guðbjartur var hetja Norðfirðinga SV-riðill ÍK-Njarðvík 5-0 (3-0) Kópavogsliðið sýndi klærnar gegn Njarðvíkingum og vann stórsigur. Það skoraði þrjú mörk með stuttu millibili í fyrri hálfleik og voru þeir Úlfar Óttarsson, Jón Elíasson og Steindór Elísson þar að verki. Steindór bætti svo öðru marki við í síðari hálfleik og Guðjón Guðmundsson átti síð- asta orðið í þessum stórsigri. ÍK er nú til alls Iíklegt í sumar en Njarðvíkingar standa höllum fæti með ekkert stig. Grindavík-Stjarnan 1 -2 (0-0) Stjarnan hefur unnið alla sína leiki í deildinni og nú urðu Grind- víkingar þeim að bráð. Leikurinn var jafn framan af en heimamenn voru óheppnir að skora ekki í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik tóku Garðbæingar svo við sér og skoruðu Árni Sveinsson (víti) og Valdimar Kristófersson sitt markið hvor. Páll Björnsson minnkaði muninn fyrir Grindvík- inga. NA-riðill Huginn-Hvöt 0-0 Ekkert mark var skorað í þess- um mikla baráttuleik. Leikurinn fór mest fram á miðju vallarins og lítið varð því um marktækifæri. Hvöt hefur enn ekki náð að skora í deildinni. Þróttur N.-Reynir Á. 3-0 Norðfirðingar áttu ekki í vand- ræðum með Reyni og var sigur þeirra síst of stór. Guðbjartur Magnason skoraði öll mörkin í leiknum og hefur hann þá gert öll mörk Þróttara í sumar. Þróttarar hafa fullt hús stiga og verða ef- laust erfiðir heim að sækja í sumar. Magni-Daivík frestað Staðan Þróttur N.....2 2 0 0 4-0 6 ReynirÁ.......2 10 13-4 3 Huginn........2 0 2 0 2-2 2 Dalvík........1 0 1 0 2-2 1 Hvöt..........2 0 110-11 Einherji .....0 0 0 0 0-0 0 Magni.........0 0 0 0 0-0 0 Sindri........10 0 1 1-3 0 Markahæstir 4 Guðbjartur Magnason, Þrótti N. 4 Steindór Ellsson, lK 3 Hjálmar Hallgrímsson, Grindavfk 3 Jóhann Viðarsson, Leikni R. 3 Páll Björnsson, Grindavík -þóm Frakkland Toppliðin töpuðu Le Havre og Brest Í2. deild og Niort í hœttu Víkverji-Leiknir 2-4 (1-3) Nýliðar Víkverja náðu sér ekki á strik í leiknum og hafa því enn ekki hlotið stig í deildinni. Jó- hann Viðarsson kaffærði glím- ufélagið í þessum leik og skoraði þrjú marka Leiknis. Níels Guð- mundsson jafnaði 1-1 eftir að Jó- hann hafði gert fyrsta markið. Þá fengu Víkverjar á sig sjálfsmark og Jóhann bætti því þriðja við fyrir leikhlé. Albert Jónsson minnkaði í 3-2 með skalla strax í upphafi síðari hálfleiks en Vík- verjar náðu ekki að jafna og Jó- hann skoraði sitt þriðja mark og jafnframt fjórða mark Leiknis skömmu fyrir leikslok. Staðan Stjarnan 3 3 0 0 5-1 9 Grótta 3 3 0 0 4-1 9 Grindavík 3 2 0 1 10-4 6 ÍK 3 2 0 1 7-3 6 ReynirS 3 1 0 2 1-2 3 LeiknirR 2 1 0 1 5-7 3 Víkverji 2 0 0 2 2-5 0 Aftureíding 2 0 0 2 2-6 0 Njarðvík 3 0 0 3 1-8 0 Þó að Rainer fursti af Mónakó kallaði Mark Hateley og Glenn Hoddle heim úr fríi tókst liðinu ekki að vinna síðasta leikinn í frönsku 1. deildinni. Samt unnu þeir deildina með glæsibrag í 5. sinn og voru 6 stig frá næsta liði. Bordeaux, sem er í 2. sæti tap- aði einnig 2-0 og í þetta sinn fyrir Metz. Patrice Eyraud sksoraði fyrra markið rétt fyrir leikhlé en Senegalmaðurinn Ábdoulaye Di- allo það síðara á 58. mínútu. Það liggur fyrir Le Havre og Brest að spila næsta tímabil í 2. deild og Niort mun leika við Caen um hvort liðið haldi sér í fyrstu deild eða falli. Lens tókst að hanga í 1. deild eftir 3-1 sigur yfir Niort. Strassborg og Sochaux koma upp úr 2. deild í staðinn fyrir Le Havre og Brest. -ste Úrslit Nantes-Lille.......................1-1 Montpellier-Toulouse...............4-2 Le Havre-P.St.Germain..............0-1 Lens-Niort.........................3-1 Marseille-Monaco...................2-0 Auxerre-Cannes.....................1-0 Metz-Bordeaux......................2-0 Nice-Toulon........................0-2 M.Racing P.-Brest..................1-1 St.Etienne-Laval...................2-1 Lokastaða Monaco .38 20 12 6 53-29 52 Bordeaux .38 18 10 10 46-30 46 Montpellier .38 18 9 11 64-36 45 St.Etienne . 38 18 6 14 54-56 42 Toulon . 38 14 13 11 41-26 41 Marseille .38 18 5 15 49-43 41 M.RacingParis 38 12 17 9 35-42 41 Metz .38 16 8 14 46-40 40 Auxerre .38 12 15 11 37-29 39 Nantes .38 13 13 12 46-41 39 Lille .38 14 9 15 45-39 37 Cannes .38 13 11 14 42-52 37 Toulouse .38 14 7 17 35-47 35 Nice .38 16 3 19 44-45 35 Laval .38 12 10 16 38-38 34 P.St.Germain... .38 12 10 16 36-45 34 Lens . 38 13 7 18 40-62 33 Niort .38 11 10 17 34-42 32 Brest .38 11 10 17 32-52 32 Le Havre .38 8 11 19 35-56 27 Þriðjudagur 7. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.