Þjóðviljinn - 09.06.1988, Page 1
Fimmtudagur 9. júní 1988 129. tölublað 53. árgangur
Ríkisstjórnin
Missir niður um sig
Álit ríkislögmanns kom ríkisstjórninni íopna skjöldu. Stjórnin ráðalaus.
Friðrik Sophusson: Álit ríkislögmanns enginn dómur.
VSÍ og verkalýðsfélögin beðin um að setja saman ritgerðir um ísalsamninginn
Ríkisstjórnin virðist gjörsam-
lega hafa týnt áttum við að fá í
hendur álitsgerð ríkislögmanns.
Eftir að hafa lúrt á álitsgerðinni í
sólarhring, voru fulltrúar VSÍ og
verkalýðsfélaganna 10 sem
sömdu á dögunum í Straumsvík
kallaðir á fund í Stjórnarráðinu í
gær. Pað helsta sem stjórnin
hafði fram að færa var að biðja
VSÍ og verkaslýðsfélögin um að
skila greinargerðum um samn-
ingana fyrir mánudag og meta
hvort þeir samrýmast bráða-
birgðalögunum.
Friðrik Sophusson, sem gegnir
forsætisráðherraembætti í fjar-
veru Þorsteins Pálssonar, segir
niðurstöðu ríkislögmanns ekki
vera dóm, hún sé bara hans prívat
sköðun - aðrir geti sett fram
jafngilt álit og breytt afstöðu
ríkisstjórnarinnar.
Örn Friðriksson trúnaðarmað-
ur í álverinu sagði eftir fundinn
með ráðherra, að verkalýðsfé-
lögin teldu sig hafa fullgildan
samning og eftir honum yrði far-
ið. Til þess hefði ekki verið horft
'við samningsgerðina hvernig ein-
hverjir og einhverjir túlkuðu
Listahátíð
Enn af
samninginn og lögin. Samningar
hefðu verið gerðir til að tryggja
fullan rekstur álversins.
Meðan ríkisstjórnin hefur ekki
enn gert upp við sig hvort Isal-
samningarnir samrýmist bráða-
birgðalögunum eða ekki, eru hin
ýmsu verkalýðsfélög smám sam-
an að ljúka samningum, sem voru
misj afnlega vel á veg komnir fyrir
gildistöku lagasetningarinnar.
Síðast til að semja var verka-
lýðsfélagið Jökull á Höfn fyrir
starfsfólk gaffalbitaverksmiðj-
unnar á Höfn. - Þetta er samn-
ingur sem gengur á svig við bráð-
abirgðalögin, sagði Björn Grétar
Sveinsson, formaður Jökuls.
Sjá síðu 3
Fulltrúar verkalýðsfélaganna 10 í
álverinu ganga úr Stjórnarráðinu
í gær. Ekki var annað að sjá á
þeim en þau skildu áhyggjur
ríkisstjórnarinnar eftir í Stjórnar-
ráðinu. Mynd: E.ÓI
Zsuzsu, Judit og Karl efst
Fornleifar
Viðeyjargrafir
grafnar upp
Margrét Hall-
grímsdóttir: Ég er
himinlifandi yfir
þessum fundi
Tveir kirkjugarðar á sama
stað. Annar frá miðöldum, hinn
frá því eftir að núverandi kirkja
var reist í Viðey. Þetta hefur
komið í ljós við fornleifagröft í
Viðey. Nú er unnið af miklum
krafti við förnleifauppgröft þar.
Því verki stjórnar Margrét Hall-
grímsdóttir fornleifafræðingur.
- Ég er himinlifandi yfir þess-
um fundi hér bakvið kirkjuna,
sagði hún í gær.
Sjá síðu 2
í gærkvöldi var tefld 3. umferð
á opna Austurlandsmótinu, sem
fram fer á Egilsstöðum. í A-flokki
gerðu systurnar Judit og Zsuzsu
Polgar jafntefli og eru efstar með
2 1/2 vinning, ásamt Karli Þor-
steins. Skák hans við Sævar
Bjarnason lauk með jafntefli og
sömu lyktir urðu í skákum Helga
Ólafssonar og Mark Orr, Björg-
vins Jónssonar og Þrastar Þór-
hallssonar.
Hannes Hlífar Stefánsson vann
skák sína við James Plasket, sem
féll á tíma og hefur Hannes nú 1
1/2 vinning. 1 B-flokki heldur sig-
urganga Zofi Polgar áfram. í gær
vann hún Guðmund Ingva Jó-
hannesson og hefur því hlotið 3
vinninga í þremur fyrstu umferð-
unum.
í dag verður 4. umferð tefld en
á föstudaginn er hvflst. Zsuzsu og
Judit nota fríið til að tefla fjöltefli
á Stöðvarfirði og Seyðisfirði og
hefjast þau kl. 21 á föstudags-
kvöldið.
mj
Hernaðarumsvif
Hefur eitthvað þokast?
í Danmörku var efnt til kosn-
inga vegna átaka um afstöðuna
gagnvart kjarnorkuvopnum
NATÓ. Er ólíku saman að jafna
hér og þar? Eru samþykktir al-
þingis um að hingað skuli ekki
flutt kjarnorkuvopn marklaust
plagg?
Steingrímur J. Sigfússon fjallar
um afstöðu alþingis.
Sjá síðu 5
menningunni
I
ÍUmfjöllun um viðburði á
Listahátíð er ríkuleg í blaðinu í
dag. Andrés Sigurvinsson kemur
lesendum fyrir sjónir í ítarlegu
viðtali, en hann er einmitt leik-
stjóri leikrits Þorvarðar Helga-
sonar Ef ég væri þú, sem Þjóðl-
eikhúsið frumsýnir í kvöld.
Sverrir Hólmarsson skrifar
gagnrýni á verðlaunaballett
Hlífar Svavarsdóttur og kórverk-
ið Tímann og vatnið, tónlistar-
gagnrýni og fleira.
Sjá síðu 8-9
Fótbolti
ÍBK stöðvar Fram
Ólafsfirðingar tapa í fyrsta sinn ífyrstu
deild
Nokkrir leikir voru í fyrstu deild Víkingum tókst að leggja Öl-
fslandsmótsins í fótbolta í gærkvöldi. afsfirðinga að velli á nýja grasinu 2-1.
Á Húsavík lögðu Valsmenn Völs-
unga að velli 1-3, Keflvíkingar gerðu
1-1 jafntefli við Fram, Þórsarar gerðu
einnig 1-1 jafntefli við Skagamenn en
Sjá síður 14 og 15.