Þjóðviljinn - 10.06.1988, Blaðsíða 6
BYGGINGABLAÐ
Samkvæmt loftrakamælingum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins á árunum 1980-1982 reyndist ekkert hús eða íbúð vera með of rakt loft, en þriðjungur með of þurrt loft.
Könnunin náði til 130 húsa eða (búða.
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
Rakamæhngan husum
Loftrakamœlingar Rb. 1980-1982:130 hús eða íbúðir mœld að vetrarlagi íReykjavík.
Meðal-hlutfallsraki ídes.-mars um 33% ogmeðalhiti um21 gráðu á C.Hœfilegur loftraki talinn30-50%
Hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins að
Keldnaholti er unnið að mar-
gvíslegum rannsóknum sem
að gagni geta komið til að
auka gæði og hagkvæmni
byggingaog mannvirkjaýmis
konar. Fyrir þremur árum gaf
stofnunin út rit sem fjallar um
raka i húsum og eru ma. birtar
niðurstöður hinna fyrstu eigin-
legu loftrakamælingasem
fram fóru á íbúðarhúsnæði í
Reykjavík í byrjun þessa ára-
tugar.
Að þessum mælingum stóðu
Óli Hilmar Jónsson arkitekt og
Daníel Guðbrandsson rann-
sóknamaður, en verkefnið var
unnið í samráði við Hákon Ólafs-
son verkfræðing og núverandi
forstjóra Rb. og Jón Sigurjóns-
son núverandi yfirverkfræðing
Rb.
Hér á eftir verður stiklað á
stóru í loftrakamælingum Rb. og
hvaða niðurstöðaðna þær leiddu
til á sínum tíma og jafnframt til
fróðleiks fyrir lesendur. Stuðst er
við aðra útgáfu Rb. um raka í
húsum sem gefin var út 1985.
Loftrakamœlingar
Haustið 1980 var ákveðið að
hefjast handa við loftrakamæl-
ingar í íbúðarhúsum í Reykjavík
af hálfu Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins. Til þessa
hafði skort upplýsingar af þessu
tagi ma. til að nota við út-
reikninga á rakaþéttingarhættu í
útveggjum. Til að skrá niðurstöð-
ur mælingana voru sérstök spurn-
ingaeyðublöð útbúin þar sem ma.
var beðið um stærð fbúðar, stað,
fjölda íbúa, aldur íbúðar, ástand
út- sem innveggja, lofthæð,
veðurlýsingar, hita inni sem úti,
útloftunarvenjur, kyndingu,
óþægindi af völdum loftraka,
skemmdir af völdum raka osfrv.
Hafist var handa við mæling-
arnar haustið 1980. Frekar lítið
var mælt 1981 en í ársbyrjun 1982
hófust kerfisbundnar mælingar á
loftraka í íbúðarhúsum á Reykja-
víkursvæðinu. Nær allar mæling-
ar fóru fram að vetrarlagi, köld-
ustu mánuði ársins, þegar mest
hætta er á rakaþéttingu í veggjum
og á rúðum. Alls voru 130 hús
eða fbúðir mæld. Pess ber að gæta
að loftraki hækkar töluvert í inni-
lofti þegar útiloft er hlýtt og rakt.
Jafnvel þótt hiti úti sé ekki nema
nokkrar gráður yfir frostmarki og
það rignir, getur raki innilofts
aukist um 10% á skömmum tíma.
Niðurstöður
mœlinga
í ljós kom að meðal-
hlutfallsraki í lofti íbúða í
Reykjavík á tímabilinu des-
ember-mars, er uþb. 33% og
meðalhiti uþb. 21 gráða á C.
Þetta er kaldasta tímabil ársins og
skilgreint sem vetur hjá Veður-
stofu íslands. Magn vatnsgufu í
lofti við framangreind gildi er
rúm 6 gr/m3. Gufuþrýstingur
lofts við 33% hlutfallsraka og 21.
gráðu hita á C er uþb. 0,8 kN/m2.
Meðalgufuþrýstingur útilofts yfir
mánuðina des.-mars er uþb. 0,5
kN/m2. Munurinn er 0,3 kN, sem
þýðir að nokkurt gufustreymi út
híýtur að eiga sér stað. Þegar
hlýnar úti, um sumarið, minnkar
þessi munur og verður óveru-
legur.
Um loftraka
og mœlingarnar
Mesti raki sem mældist var
48%. Var það í íbúð í steyptu
húsi, 390 m3 að stærð og þar voru
3 í heimili. Ekki hafði borið á
rakaskemmdum í íbúðinni og
íbúarnir kvörtuðu ekki um of
rakt loft. Þess ber að geta að þótt
rakastigið hafi verið þetta hátt
við þessa tilteknu mælingu, er lík-
legt að það sé lægra að öllu jafn-
aði í þessari íbúð, annars væri
stöðugt móða á gluggum um
vetrartímann. Loftraki hærri eða
jafnt og 40% mældist í 8 íbúðum,
sem samsvarar 6,1% allra íbúða í
rannsókninni. íbúum í 3 af þess-
um 8 fbúðum þótti inniloft of
þurrt. í þrem íbúðum af 130 var
kvartað um of rakt loft. Þar
mældist 37% hiutfallsloftraki að
meðaltali, sem er þó fjarri því að
vera of hátt. Þess ber þó að geta
að oft getur verið hærri loftraki
en 37% í þessum íbúðum.
Minnsti loftraki sem mældist
var 21%. Var það steypt hús,
íbúð 275 m3 og íbúar 3. Mánuði
síðar var mæling endurtekin í
íbúðinni. Loftraki í íbúðinni
mældist þá tæp 29%, eða töluvert
hærri en í fyrri mælingu, enda
íbúðareigandi búinn að fá sér
rakatæki. íbúðin hafði geislahit-
un. Loftraki minni eða jafnt og
25% mældistíóhúsum. Þar afvar
þó aðeins á tveim stöðum kvartað
um of þurrt loft. Aftur á móti
mældist raki 30% eða minni í 43
íbúðum eða 33% af heildarfjöld-
anum. Af þessum 43 íbúðum
kvörtuðu 16 íbúar um of þurrt
loft eða 37,2%.
Það virðist litlu breyta um
rakastig lofts hvort íbúð var stór
eða lítil, gömul eða nýleg. Einnig
virtist litlu skipta hvort hús voru
úr timbri eða steini. Inniloft var
þó heldur þurrara í timburhús-
um, heldur en í steinhúsum, en
munurinn er aðeins um 1% að
meðaltali.
Meðalloftraki í íbúðum með
geislahitun var aðeins 28,5%,
enda kvörtuðu 60% íbúa þeirra
um of þurrt loft, en aðrir höfðu
fengið sér rakatæki til að bæta
ástandið. Meðalhiti í þessum
íbúðum reyndist vera um 22
gráður á C eða einni gráðu hærri
en meðalhiti allra íbúða í könn-
uninni.
Loftraki hefur verið flokkaður
á eftirfarandi hátt. Þurrt loft
minni en 30% raki, hæfilegur
loftraki 30-50% og rakt loft meira
en 50% raki. Eftir þessari flokk-
un að dæma er ekkert hús í
könnuninni með of rakt loft en 43
með of þurrt loft eða þriðjungur
íbúða.
Meðalinnihiti húsa reyndist
vera 21 gráða á C, sem telst vera
mjög hæfilegt. Sama var hvort
um litlar eða stórar íbúðir var að
ræða, en hús byggð fyrir 1945
höfðu þó aðeins lægri innihita að
meðaltali, eða 20,4 gráðu á C.
Lægsti hiti sem mældist var 15,7
gráður C og var það í tveim hús-
um. Annað var steinhús byggt
1958, hitt timburhús byggt 1918.
Til undantekninga taldist ef inni-
hiti mældist undir 18 gráðum C.
Skiptar skoðanir eru um hvað
sé hæfilegur loftraki. Oft er talað
um 30-50%. Sumir telja 25-45%
hæfilegt. Hvað sem því líður er
ljóst að of þurrt loft getur haft
skaðleg áhrif á slímhúð öndunar-
færa, getur jafnvel orsakað hósta
og jafnvel sýkingu. Ekki er talið
að rakt inniloft sé skaðlegt heilsu
manna en vitað er að hár loftraki
getur orsakað ýmsar skemmdir á
byggingarefnum td. fúa, svepp-
agróður og raka í útveggjum.
Tillögur
til úrbóta
Ef loftraki er of lágur þe. minni
en 30% má auka hann á eftirfar-
andi hátt: Nota rakatæki í íbúð,
hafa vatnsílát á ofnum og einnig
ef fólk hefur mörg pottablóm td.
20-30 stykki og vökvar þau reglu-
lega stuðlar það að auknum loft-
raka.
Of rakt loft virðist ekki vera
vandamál í íbúðum í Reykjavík
samkvæmt könnuninni en þó get-
ur, um stundarsakir, raki hækkað
verulega td. við þvotta og þurrk-
un á taui í íbúðum. Litlar íbúðir
eru að sjálfsögðu viðkvæmari í
þessum efnum en stórar. Helstu
ráð til að minnka loftraka í íbúð-
um eru eftirfarandi: Lofta vel út,
helst gegnumtrekkur, forðast að
þurrka tau í íbúð, skrúfa vel fyrir
vatnskrana, sjóða ekki mat í lok-
lausum pottum, loka hurð á að
baðherbergi við böðun, staðsetja
ofna undir gluggum og ef saggi
eða raki er þrálátur, skal ganga úr
skugga um að ekki sé um að ræða
leka eða sprungnar vatnsleiðslur.
-grh
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN