Þjóðviljinn - 13.06.1988, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA
Nr. 608
BRIDGE
1 z 3 4 s L ? 8 =7 ¥ 10 U~ T i
JZ )3 5" )4 U? iS 5~ 2T~ °) ¥ 5 )(? 13 )T ¥
18 /<? ¥ 51 IZ ¥ 2o Zl 18 ZZ zz ¥ S' 22
/<7 y 3' 22 /Ý Z) ¥ if /9 9 S2 22) '22 n
9 r é> ¥ 23 2 II 3' ¥ \ 3 Ý 2f 12
¥ )i IZ ii W~ & 23 23 zU (Vj 1T 2S
>z 9 y & ¥ 9 </- (vj 12 23F~ IT T 23
)Zl Zf i? ¥ 4- T b 22 9 )Z 22 2l 18 1F )T
2? V 2b P 5 ¥ 12 n s 22 Ý “ó 5
28 23 V )Z 4 i sa )3 IT Y-
y 2°) y 22 /Ý- ¥■ )Ý 23 2! 2Ý JZ ¥ Z
9 IZ s? 9 $ ¥■ ¥ 2V ¥ )? ¥ 32 i)
2 )S 7 12 9 S2 í>' /8 Ú )¥ V 32 22
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu á Álftanesi.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6,
Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 608. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send vinningshafa.
21 )5 5 22 )D 2? £ 9 3d 3 J2\
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárótt eða lóðrótt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálþ því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorðið úr krossgátu 604 var
Keldunúpur. Dregið var úr réttum
lausnum, og verðlaunin komu í hlut
Magnúsar Guðlaugssonar, Borgar-
hlíð 7, Akureyri. Verðlaunin voru „Frá
degi til dags“, Austrapistlar Magnús-
ar Kjartanssonar frá ritsjóratíð hans á
Þjóðviljanum.
Verðlaunin fyrir krossgátu 608
verða Kvæðasafn Guðmundar Böðv-
arssonar frá Kirkjubóli, gefið út af
Máli og menningu.
Islands-
mótið
hafið
Undanrásir íslandsmótsins í
sveitakeppni hófust í Geröu-
bergi sl. fimmtudag. 32 sveitir
taka þátt í undanrásunum að
þessu sinni og er spilað í 4
riðlum. Spilamennsku lýkur
annað kvöld (sunnudag).
Úrslitakeppnin verður síðan
spiluð á Loftleiðum um pásk-
ana.
Fljótlega eftir að keppni er lokið
má búast við að landsliðsnefnd
gangi frá vali á liðum til keppni á
NM, sem haldið verður á íslandi í
sumar. _
' S
Reykjanesmótið í tvímenning
er fyrirhugað um næstu helgi.
Skráning þarf að berast til Gísla
ísleifssonar, Ragnars Jónssonar
eða Þrastar Sörenssonar fyrir 14.
mars (á morgun).
Ennþá eru örfá sæti laus í Opna
stórmótið á Akureyri, sem spilað
verðurþarum næstu helgi. Vakin
er sérstök athygli á því að spila-
mennska hefst kl. 10 árdegis. 50
pör munu taka þátt í mótinu, sem
er með barometer-fyrirkomu-
lagi. Spilað er í Gefjunarsalnum.
Keppnisstjóri verður Ólafur Lár-
usson.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Aðaltvímenningskeppni
Bridgefélags Reykjavíkur, bar-
ometerkeppnin, hefst nk. mið-
vikudag. Um 50 pör eru skráð til
leiks.
Friðjón Þórhallsson og Jör-
undur Þórðarson sigruðu opna
mótið á Laugarvatni, sem spilað
var þar sl. laugardag. Mótið var
haldið í tilefni 20 ára afmælis
Bridgefélags M.L. Alls tóku 32
pör þátt í mótinu.
Framhaldsskólamótið 1988
verður spilað í Sigtúni helgina
26.-27. mars n.k. Skráning sveita
er hafin hjá BSÍ. Allir framhalds-
skólar á landinu eru velkomnir til
þátttöku með eins margar sveitir
og þeir geta mögulega útvegað.
Lágmarks keppnisgjald. Umsjón
með mótinu hafa Ölafur og Her-
mann Lárussynir.
Helgina 8.-10. apríl verður
Opið stórmót á Húsavík, með
sveitakeppnissniði. Skráning er
hafin hjá Ferðaskrifstofu Húsa-
víkur eða Björgvini Leifssyni,
formanni bridgefélagsins, sem
jafnframt veita allar nánari upp-
lýsingar. Einnig veitir skrifstofa
BSÍ nánari upplýsingar.
Fyrri hluti landsliðskeppni
Bridgesambandsins í Opnum
flokki og kvennaflokki var spil-
aður um síðustu helgi í Sigtúni. 6
pör spila í hvorum flokki. Síðari
hluti er á dagskrá um næstu helgi.
Bridgekeppnin í sjónvarpinu
sl. laugardag þótti takast nokkuð
vel. Einhverjir voru þó að kvarta
yfir notkun myndavélarinnar í
leiknum, þótti vangasvipur á-
kveðinna manna ekki nægilega
skýr. Hvað um það, sjónvarpið á
heiður skilinn fyrir framtakið.
Meira af slíku.
íslandsmótið í tvímenning,
undanrásir, er á dagskrá helgina
16.-17. apríl n.k. Búast má við
geysimikilli þátttöku, en síðustu
árin hafa vel yfir 100 pör tekið
þátt í forkeppninni. Aðeins 23
efstu pörin komast í úrslitakepp-
ni íslandsmótsins. Nánar síðar.
FJOLMIÐLAPISTILL
Hvenœr er mál að linni?
- Hvað finnst þér um með-
höndlun fjölmiðla á SÍS-
málinu? spurði kunningi minn
á dögunum. - Finnst þér ekki
komið nóg af blaðaskrifum?
Mér vafðist fyrst tunga um
tönn en sagði svo eitthvað á
þá leið að það væri seintfjall-
að nóg um slíkan risa sem SÍS
(nú á víst að segja Samband-
ið, þeir í Hvíta húsinu eru búnir
að gefa út skipun um það) er í
íslensku samfélagi. Fyrirtækj-
asamsteypa sem veltir tug-
miljörðum krónaáári, hefur
tugþúsundir manna í vinnu og
stendur fyrir einhverjum
tugum prósenta af saman-
lagðri þjóðarframleiðslu hlyti
að vera viðfangsefni fjölmiðla
flestadagaársins.
Því miður er það nú samt svo
eftir allan hamaganginn í fjöl-
miðlunum að venjulegur fjöl-
miðlaneytandi er í rauninni litlu
nær um hvað SÍS-málið snerist.
Af hverju voru þeir Eysteinn og
Geir reknir? Voru launamál
Guðjóns bara aukaatriði sem
fjendur hans settu á flot til að
drepa málinu á dreif? Misminnti
Erlend í raun og veru eða var um
það samið að Iceland Seafood
greiddi námskostnað barna
Guðjóns? Með hverjum stendur
Valur? Er SÍS-forystan klofin í
hatrammar fylkingar sem standa í
samsærum hver gegn annarri?
Hver stendur fyrir skipulagðri
herferð til að svipta Guðjón
ærunni?
Spurningarnar hrönnuðust
upp í þessu makalausa máli og
þrátt fyrir alla dálksentimetrana,
þrátt fyrir 12 mínútna langt viðtal
við Guðjón forstjóra í upphafi
fréttatíma sjónvarpsins (menn
muna ekki annað eins síðan Helgi
H. þjarmaði að Gvendi jaka á
ganginum hjá Dagsbrún um árið
út af Hafskipsaurunum), - þrátt
fyrir allt þetta og meira til er
öllum spumingunum ósvarað.
Og þá er það spurningin hvort
íslenskir blaðamenn séu svona lé-
legir eða hvort eitthvað annað
valdi þessari miklu leynd.
Eg hef ekki svar við þeirri
spurningu. Hins vegar tók ég eftir
því að barátta þeirra Guðjóns og
Eysteins var háð með nokkuð ný-
stárlegum hætti. Báðir voru eins
og véfréttir framan af og neituðu
að tjá sig um málið fyrr en þeir
hefðu ráðfært sig við lögfræð-
inga. Og til að standa betur í
slagnum var amk. Eysteirin sagð-
ur hafa leitað aðstoðar auglýs-
ingastofu (og benti forsvarsmað-
ur hennar á það í blaðaviðtali að
SÍS ræki einnig slíka stofu).
Kannski er það vegna þess að
báðir hafa þeir Eysteinn og Guð-
jón dvalið langdvölum í Banda-
ríkjunum að þeir leita skjóls hjá
þessum aðilum. Þar vestra ráða
lögfræðingar öllum gangi mála
hjá stórfyrirtækjum og auglýs-
ingastofur hafa fyrir löngu yfir-
tekið almannatengsl viðskipta-
jöfra og stjórnmálamanna. Þetta
er hins vegar nýlunda hér á landi.
Yfirleitt hafa menn séð um að
svara fyrir sig sjálfir og oftar en
ekki bmgðið fyrir sig bundnu
máli. Nú var ekki slíku fyrir að
fara. Alvaran sat í fyrirrúmi,
menn kepptust við að vera ein-
lægir („Mér fannst ekki við-
eigandi að segja þetta, en úr því
sem komið er...“) en sögðu ekki
neitt sem máli skipti í afar löngu
máli. Staðhæfingar stóðu gegn
staðhæfingum og allt var óljóst.
Það var því engin furða þótt
menn leituðu fanga hjá banda-
rískum listamönnum til að reyna
að fá botn í málið. Sumir líktu
þessu við Dallas, Jón Örn Marin-
ósson leitaði í smiðju Edgar All-
an Poe og varð vel ágengt. Mér
líður hins vegar eins og ég sé að
bíða eftir næsta þætti af Löðri.
Vonandi verður ekki hætt að
framleiða þessa nýju syrpu strax.
Við þurfum að fá meira að heyra
um innviðina í SÍS. Þeir eru burð-
arbitarnir í íslensku þjóðfélagi.
18 SÍÐA- ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. mars 1988