Þjóðviljinn - 14.06.1988, Blaðsíða 2
Þjóðveldisbærinn í gagnið
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal hefur verið opnaður á ný eftir vetur-
inn. Bærinn hefur verið opinn undanfarin tíu sumur fyrir ferðalanga og
hefur aðsókn sífellt færst í aukana.
Bærinn er opinn alla virka daga frá kl. 10-12 og 13-17. Staðarhaldari
er Ásólfur Pálsson fyrrum bóndi á Ásólfsstöðum.
Niðjamót Torfa Björnssonar
Niðjar Torfa Björnssonar bónda frá Asparvík í Bjarnarfirði,
Strandasýslu munu koma saman helgina 9.-10. júlí að Laugum í
Hvammssveit í Dalasýslu.
Niðjatal erísmíðum, en þaðeru þeir bræður Jón E. Asparog Baldur
Aspar sem hafa veg og vanda af því.
Nánari upplýsingar um ættarmótið er m.a. hægt að fá hjá Jónu
Ingólfsdóttur, Rauðumýri, Hauki Torfasyni, Drangsnesi, Torfa Ing-
ólfssyni, Reykjavík og Elínu H. Jónatansdóttur, Ytri-Njarðvík.
Prestskosning
Halldóra Þorvarðardóttir hefur verið kjörin prestur Fellsmúla-
prestakalls. Halldóra tekur vígslu ásamt öðrum prestsefnum 3. júlí
n.k.
Halldóra er 28 ára að aldri og lauk guðfræðiprófi 1986.
Skyndihjálp RKÍ
Annað kvöld kl. 20 hefst skyndihjálparnámskeið á vegum Reykja-
víkurdeildar Rauða krossins. Námskeiðið, sem stendur í fimm kvöld
er haldið að Öldugötu 4 og er öllum sem eru 14 ára og eldri heimil
þátttaka.
Námskeiðinu lýkur með prófi sem unnt er að fá metið í flestum
framhaldsskólum.
Aðalfundur Einingar
Á aðalfundi Verkalýðsfélagsins Einingar, sem haldinn var fyrir
skemmstu, var afnámi samningsréttarins í kjölfar bráðabirgðalaga
ríkisstjórnarinnar harðlega mótmælt.
„Fundurinn er eindregið þeirrar skoðunar, að það sé skylda ríkis-
valdsins að vinna bug á verðbólgu-ófreskjunni, en vill jafnframt benda
á, að sú ófreskja hefur ekki fitnað af samningum verkafólks og at-
vinnurekenda. Það er út í hött, að verðbólgan verði læknuð með því að
afnema samningsrétt þessara aðila,“ segir í ályktuninni.
Fullgildir félagar í Einingu eru 3018. Þar af eru konur í miklum
meirihluta.
Stjórn félagsins var sjálfkjörin, þar sem aðeins einn listi var í kjöri.
Formaður er Sævar Frímansson.
Græningjar í lið með Sigrúnu
Samtök Græningja hafa lýst yfir stuðningi við framboð Sigrúnar
Þorsteinsdóttur til forseta.
í ályktun samtakanna segir m.a. að framboð Sigrúnar grundvallist á
hugmyndum um að dreifa valdinu til almennings.
„Sigrún Þorsteinsdóttir hyggst nota heimild í stjórnarskrá íslenska
lýðveldisins til að vísa mikilvægum ákvörðunum til almennings og
þannig dreifa valdinu,“ segir í ályktun Græningja, sem hvetja alla
umhverfisverndar- og friðarsinna til að stuðla að kosningu Sigrúnar.
Mannaskipti hjá lögreglunni
Bjarki Elíasson, yfirlögreglu-
þjónn almennrar deildar í
Reykjavík, lætur af störfum 20.
þessa mánaðar. Við stöðunni
tekur Guðmundur Guðjónsson.
Frá sama tíma verður sú
breytíng á starfsskiptingu yfirlög-
regluþjóna að Guðmundur
Hermansson, sem farið hefur
fyrir rannsóknadeild, mun gegna
starfi yfirlögregluþjóns í almenn-
ri deild og Guðmundur Guðjóns-
son sem yfirlögregluþjónn rann-
sóknadeildar jafnframt því að
fara með yfirstjórn skipulags-
mála.
Bjarki Elíasson
FRÉTTIR
Flensufaraldur
Óvenju tíð dauðsföll
Asbjörn Björnsson hjá kirkjugörðunum: Dánartíðni ímaíá sér enga
hliðstœðu. Hrafnkell Helgason, Vífilsstöðum: Dánartíðnin óvenju
há. Árni T. Ragnarsson, Grund: Skæðriflensu trúlega um að kenna
Við önnuðumst í síðasta mán-
uði 120 útfarir, en það er tvö-
földun miðað við venjulegan
mánuð. Þetta tímabil er alveg ein-
stakt. Ég man ekki eftir öðru eins
frá upphafi, sagði Ásbjörn
Björnsson forstjóri kirkjugarð-
anna í Reykjavík, en að undan-
förnu hefur nokkuð verið rætt
um óvenju mörg dauðsföll.
Heilbrigðisyfirvöld telja flensu-
faraldur helstu ástæðuna enda
hefur flensan lagst þyngst á aldr-
aða.
Hrafnkell Helgason yfirlæknir
á Vífilsstöðum sagði að ekki væri
hægt að neita aukinni dánartíðni
uppá síðkastið. - Á tímabilinu
aprfl-maí hafa verið hér á Vífils-
stöðum 17 dánartilfelli, en að
jafnaði hefur fjöldi andláta verið
frá 20 uppí 50 á ári. Það breytir
því þó ekki að dánartíðnin er
óvenju há. í 15 tilvikum af þess-
um 17 var um að ræða dánarmein
af völdum lungnasjúkdóma. Tvö
tilvikanna voru óvænt dauðsföll.
Aðspurður um hvort hugsan-
legt væri að sk. hermannaveiki
ætti hér hlut að máli, sagði
Hrafnkell að sýkill hennar hefði
fundist í vatni á Vífilsstöðum, -
en annars berst hún með loft-
ræstikerfum. Ekki hefur sannast,
að hún eigi þátt í auknum dauðs-
föllum hér. Frá 1985 til 1988 hafa
aðeins sjö tilfelli af hermanna-
veiki verið staðfest hér á landi.
Árni Tómas Ragnarsson yfir-
læknir á Grund sagði að þar
hefðu 20 manns látist á undan-
förnum tveimur mánuðum, en
þar er fjöldi andláta að jafnaði
milli 60-80 á ári. Árni sagðist telja
dauðsföllin heldur fleiri en venju-
lega, en tók þó fram að sveiflur
gætu verið miklar milli mánaða.
Árni sagði að að líkindum mætti
kenna um óvenju skæðri flensu,
sem kæmi þungt niður á öldruðu
fólki með lítið mótstöðuafl.-gjh
Allaballar á byggðaráðstefnu. Þátttakendur á ráðstefnu Alþýðubandalagsins um byggðastefnu á Dalvík
um helgina voru sammála um að ráðstefnan hefði heppnast einkar vel, og áttu staðarval og veðurfar ekki
sístan þátt. Myndinsýnirhluta hópsins við Dalvíkurhöfn, kominn um borð íferjunatil Hríseyjar. (Mynd: ÞH).
LÍN
Vmnubrögðin ámælisverð
Sigurbjörn Magnússon hlýtur ákúrur. Ráðgjafanefndfjárlaga- og
hagsýslustofnunar skilar skýrslu um tölvukaup LÍN: Valkostir
einfaldaðir, kostnaðarliðum sleppt, upplýsingar úr samhengi
Ráðgjafanefnd um upplýsinga-
og tölvumál hjá fjárlaga- og
hagsýslustofnun hefur gert
skýrslu um fyrirhuguð tölvu- og
hugbúnaðarkaup Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Útdráttur
úr skýrslunni hefur verið sendur
sjóðnum en þar hefur hann verið
meðhöndlaður sem trúnaðarmál.
í útdrættinum kemur fram áfell-
isdómur um vinnubrögð Sigur-
björns Magnússonar stjórnarfor-
manns LIN varðandi tölvu-
kaupin. En eins og kunnugt er var
hann kominn að því að gera
samning við IBM sem þótti tor-
kenniiegt bæði vegna vinatengsla
og pólitískra tengsla hans við
ýmsa aðila hjá því fyrirtæki.
Sigurbjörn var á sínum tíma
harðlega gagnrýndur fyrir skort á
faglegum vinnubrögðum í mál-
inu. Hann sá því þann kost væn-
stan að biðja ráðgjafanefndina
um ráðleggingar. Niðurstaða
nefndarinnar er langt í frá að vera
Sigurbirni hagstæð og hefur verið
farið með útdrátt skýrslunnar
sem trúnaðarmál.
f útdrættinum kemur m.a.
fram að ráðgjafanefndin telur
málsmeðferð LÍN vera ábóta-
vant. „Flestar áætlanir á
stofnkostnaði og rekstrar-
kostnaði tölvukerfa sem stjórn
LÍN hefur látið gera eru óná-
kvæmar og rangar,“ segir í út-
drættinum. Ákveðnir valkostir
hafi verið einfaldaðir um of,
kostnaðarliðum sleppt, upplýs-
ingar teknar úr samhengi og
gengið út frá hæpnum forsend-
um.
í skýrslunni kemur einnig fram
að ákveðnu fyrirtæki hafi verið
sköpuð óeðlileg aðstaða umfram
önnur og að núverandi þjónustu-
aðili LÍN hafi ekki notið
sannmælis. Nefndin sér ástæðu til
að minna Sigurbjörn á að aðrar
kröfur verði að gera til málsmeð-
ferðar ríkisstofnana en einkafyr-
irtækja við val á viðskiptaaðilum.
Jóhann Gunnarsson var einn af
þeim sem sáu um gerð skýrslu
ráðgjafanefndarinnar. Hann
sagði við Þjóðviljann að þar sem
stjórn LÍN hefði tekið nógu
snemma við sér í þessu máli og
ekki gengist við neinum skuld-
bindingum væri enginn skaði
skeður.
- hmp.
Forsetakosningarnar
Vigdís hafnar áskomn
Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, hafnaði áskorun Sig-
rúnar Þorsteinsdóttur forseta-
frambjóðanda um að mæta henni
í sjónvarpssal, með bréfi sem
barst Sigrúnu í síðdegis í gær.
í svari sínu til Sigrúnar segir
Vigdís að þau 10 mínútna ávörp
sem þær munu flytja hvor um sig
þann 23. júní séu nægileg til að
skýra málstað beggja og frekari
þörf á því að koma persónulega
fram sé því ekki fyrir hendi.
í fréttatilkynningu frá stuðn-
ingsmönnum Sigrúnar segir að
með þessu sýni Vigdís af sér and-
lýðræðislega hegðun og drembi-
læti gagnvart mótframbjóðand-
anum og þjóðinni.
Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla vegna forsetakosning-
anna fer fram í Ármúlaskóla í
Reykjavík og hjá fógetaembætt-
um víða um land. Þegar hafa um
1200 manns kosið og er það held-
ur meira en venja er til. -iþ
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. júní 1988