Þjóðviljinn - 14.06.1988, Síða 8
ÍÞRÓTTIR
1. deild
Rauða spjaldið
gerði útslagið
KA yfirspilaðilO Völsunga
Það gerði útslagið þegar Snæ-
var Hreinsson gaf Bjarna
Jónssyni duglegt spark í aftur-
endann og fékk rautt spjaid hjá
Baldri Scheving að Iaunum. Eftir
að Völsungar voru orðnir 10 réðu
KA-menn léttilega við þá og skor-(
uðu mark 7 mínútum síðar, 1-0.
Fyrri hálfleikur var frekar tíð-
indalftill og fór mest fram á miðj-
unni en Völsungar voru meira
með boltann. Björn Olgeirsson
átti eina almennilega færið í fyrri
hálfleik þegar hann tók lúmska
aukaspyrnu úti við kantlínuna.
Boltinn fór fyrir markið og rétt
yfir en áhorfendur fögnuðu vel
þeim sýndist boltinn sýndist fara
inní markið.
Akureyringarnir voru betri
strax eftir leikhlé og færin létu á
sér standa. Þegar 27 mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik tók
Snævar Hreinsson sig til, eftir að
hafa átt í rimmu við Bjarna Jóns-
son, og þrumaði í botninn á hon-
um. Það kom fáum á óvart þegar
hann fékk að sjá rauða spjaldið
fyrir vikið og hann mátti vita það
sjálfur. Eftir þetta misstu Völ-
sungar mann úr sókninni og
sköpuðu litla hættu en KA-menn
sóttu af krafti. Á 79. mínútu ætl-
aði Arnar Björnsson að gefa bolt-
ann fyrir inní teig en boltinn fór
rakleiðis yfir Þorfinn í markinu
og í hliðárnetið 1-0, sérlega
skemmtilegt mark þó að það hafi
hálfvegis verið óvart. Enn fengu
KA-menn færi þegar Stefán
Viðarsson gaf laglega sendingu á
Valgeir Barðason sem skaut rétt
framhjá markinu og á 91. mínútu
skaut Antony Karl hörkuskoti að
Húsavíkurmarkinu en Þorfinnur
var réttur maður á réttum stað.
-kh/ste
Akureyri 13.júni
KA-Völsungur..............1-0 (O-O)
1 -0 Arnar Bjarnason........79.min
Liö KA: Haukur Bragason, Arnar Freyr
Jónsson, Arnar Bjarnason (Friðiinnur Her-
mannsson 85. mín), Erlingur Kristjánsson,
Jón Kristjánsson, Bjarni Jónsson, Gauti
Laxdal, Örn Viðar Arnarson (Guðjón Þórð-
arson 85. mín), Þorvaldur örlygsson, Valg-
eir Barðason, Antony Karl Gregory.
Lið Völsungs: Þorlinnur Hjartarson, Aðal-
steinn Aðalsteinsson, Snævar Hreinsson,
Helgi Helgason, Björn Olgeirsson, Theo-
dór Jóhannsson, Sveinn Freysson (Skarp-
héðinn Ivarsson 78. mín), Eiríkur Björns-
son, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Stet-
án Viðarsson, Grétar Jónasson (Jónas
Hallgrímsson 82. mln).
Spjöld: Amar Bjarnason KA gult og
Snævar Hreinsson Völsungi rautt.
Dómari: Baldur Scheving
Maður leiksins: Þorvaldur Örlygsson KA.
-kh/ste
l.deild
Vinningstölurnar 11. júní 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.061.189,-
1. vinningur var kr. 2.033.628,- og skiptist hann á milli 3ja vinnings-
hafa, kr. 677.876,- á mann.
2. vinningur var kr. kr. 608.612,- og skiptist hann á 142 vinnings-
hafa, kr. 4.286 á mann.
3. vinningur var kr. 1.418.949,- og skiptist á 4.683 vinningshafa,
sem fá 303 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Stórsigur Skagamanna
Botninn dattúr Víkingsleiknum viðfyrsta affjórum mörkum
Skagamanna
Fyrri hálfleikur var frekar jafn
og hefði hvort liðið sem var getað
náð yfirhöndinni ef þau hefðu
fengið færi á að skora.
Lengi vel börðust bæði liðin í
síðari hálfleik en við fyrsta mark
Skagamanna datt botninn alger-
lega úr leik Víkinga og ÍA bætti
stöðugt við mörkum. Gunnar
Jónsson skoraði fyrsta markið,
en hann kom inná sem varamað-
ur, Heimir næsta úr vítaspyrnu,
Mjólkurbikarinn 2. umferð
Augnablik missti
niðmm sig
Glutraði 3-2 forystu niður Í8-3 tapá20
mínútum
Árvakur-Hafnir..........2-0
Jálkarnir í Árvakri börðust að-
allega við vindinn í fyrri hálfleik
en í þeim síðari skoraði Björn
Pétursson beint úr aukaspyrnu og
þar með var pressan búin. Guð-
mundur Jóhannsson bætti síðan
öðru við fyrir Árvakra.
Augnablik-ÍBV...........3-8
Þegar 20 mínútur voru til leiks-
loka var staðan 3-2 Augnabliki í
vil. En úthald Blika var gersam-
lega búið og í hroðalegum lokak-
afla misstu Augnabliksmenn alg-
erlega niður um Sig og Vest-
mannaeyingar skoruðu 5 mörk í
röð og Tómas Ingi Tómasson þa-
raf 4.
FH-ÍR...................4-0
Þetta var leikur einn fyrir
Gaflarana eins og markatalan
sýnir. Gamla brýnið Janus Guð-
laugsson skoraði tvö markanna,
Guðmundur Magnússon eitt og
Pálmi Jónsson eitt.
Sindri-Einherji.........0-3
Þetta var fjörugur leikur en
Vopnfirðingarnir voru aðeins
betri. Njáll Eiðsson skoraði eitt
mark en Kristján Davíðsson tvö.
BÍ-Hveragerði...........3-1
Stefán Tryggvason er nú aðal-
hetjan á ísafirði því hann skoraði
öll mörk ísfirsku badminton-
mannanna en Kristmann Björns-
son náði að pota inn einu fyrir
Hveragerði.
Grindavík-Ægir.........11-0
Það var svipað uppi á teningn-
um og í leik Augnabliks og ÍBV.
Þegar 20 mínútur voru til leiks-
loka var staðan 3-0 en áður en yfir
Iauk bættu Grindvíkingar við 8
mörkum. Símon Alfreðsson
skoraði 4, Freyr Sverrisson 3 og
Júlíus Pétur Ingólfsson, Hjálmar
Hallgrímsson, Dagbjartur Will-
ardsson og Páll Björnsson eitt
hver. Ægismenn stóðu sig sæmi-
lega en gekk engan veginn að
finna leiðina að markinu.
Selfoss-Víðir...........2-1
Sigurmarkið kom í framleng-
ingu í hörkuleik þar sem Ingólfur
Jónsson skoraði bæði mörk Self-
yssinga.
Valur Rf.-Þróttur N......0-1
Þróttur-Njarðvík ........2-0
Tindastóll-KS............4-2
Ólafur Þórðarson það þriðja og
Sigurður B. Jónsson innsiglaði
sigurinn þegar skammt var til
leiksloka.
Akranes 13.júni
ÍA-Víkingur....................4-0
1- 0 Gunnar Jónsson
2- 0 Heimir Guðmundsson (v)
3- 0 Ólafur Þórðarson
4- 0 Sigurður B. Jónsson
Dómari: Úlafur Sveinsson
Maður leiksins: Ólafur Þórðarson.
-ste
0g þetta
líka..
Úrslitin 1996
Belgar og Hollendingar vilja halda
úrslitakeppni Evrópukeppninnar
1996 en það er í fyrsta sinn sem tvö
lönd sameinast um keppnina. En
Belgar eru enn í 10 ára banni eftir
harmleikinn á Heysel leikvanginum
þegar 39 fórust svo að óvíst er hvort
þeir fái ósk sína uppfyllta.
Loksins
Fallkeppninni í Bundesligunni lauk í
vikunni. Mannheim lék við Darmstadt
og vann í vítaspyrnukeppni 5-4 eftir
að liðin höfðu unnið sitthvora leikina,
með jafna markatölu og ekkert mark
skorað í síðasta leiknum aö loknum
90 mínútum. Mannheim verður því
áfram í 1. deild, en þeir urðu í þriðja
sæti í vetur.
__________________________________________________________-ste
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. júní 1988