Þjóðviljinn - 14.06.1988, Blaðsíða 14
Laugarvatnsstúdentar
Framhaldsaðalfundur og árshátíð Nemendá-
sambands M.L. verður haldinn fimmtudaginn 16.
júní í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 19.00.
Matur verður framreiddur kl. 20.00. Þátttöku í
borðhaldi og dagskrá þarf að tilkynna í kvöld.
Miðapantanir eru í kvöld í síma 15404 (Ólafur) og
hjá bekkjarfulitrúum. Eftir borðhald og dagskrá
um kl. 22:00 verða miðar seldir við innganginn.
tjf Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
tæknideildar Borgarspítalans óskar eftir tilboðum
í múrhúðun útveggja eldri byggingar Grensás-
deildar Borgarspítalans og viðgerð garðveggja.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5000,- skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 21. júní kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
íbúð
Undirrituð óskar eftir 2-3ja herbergja íbúð til leigu
fyrir hafnfirsk hjón með 2 börn. Reglusemi og
góðri umgengni heitið. Upplýsingar í síma 53444
hjá Kolbrúnu Oddbergsdóttur.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir maímánuð er 15. júní
’88. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Útboð -
lóðargerð
Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölv-
hólsgötu 4, 101 Reykjavík, óskar eftir tilboði í
frágang á lóð við væntanlegt skrifstofuhús að
Kirkjusandi í Reykjavík.
Um er að ræða m.a. eftirtalda verkþætti:
- Fyllingar, um 3.000 m3
- Malbik, um 3.500 m2
- Kantsteinar, um 600 m
- Hellulögn, um 1.600 m2
- Snjóbræðslulögn um 6.600 m
Verkið skal hefjast í lok júní 1988 og skal því lokið
15. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðarThoroddsen hf., Ármúla4, Reykjavík, gegn
5.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4, 108
Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 28. júní
1988 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóóendum sem þess ó.;ka.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSÉN sf
ÁRMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Notaðu
endurskinsmerki
og komdu heil/l heim.
Auðir stólar á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Fulltrúar sjómanna hundsa fundi ráðsins vegna óá-
nægju með fiskverð.
Rækja
Gamla verðið gildir
Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda: Meðalverð rœkju
um 59 krónur. Vérðlagsráð skásti kosturinn til
verðákvörðunar. Góð rækjuveiðiá djúpslóð. Tregtá
grunnslóð
Ameðan rækjudeild Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins er
óstarfhæf vegna fjarveru fulltrúa
sjómanna er gert upp á gamia
verðinu sem ákveðið var fyrr í
vetur og er það að meðaltali rúm-
lega 59 krónur fyrir kílóið.
Að sögn Lárusar Jónssonar
framkvæmdastjóra Félags rækju-
og hörpudiskframleiðenda var
búið að halda tvo fundi í ráðinu
um nýtt verð fyrir rækju og hörp-
udisk án árangurs áður en mót-
mæli sjómanna settu mark sitt á
starfsemi ráðsins. Hann sagði að
Verðlagsráðið væri skásti kostur-
inn við að ákveða verðið hverju
sinni og sagðist ekki sjá í fljótu
bragði aðrar leiðir til þess.
Lárus sagði að engar veiðar
væru stundaðar á hörpudisk í dag
og yrðu ekki fyrr en í fyrsta lagi í
haust. Ástæðan er fyrst og fremst
vegna frámunalélegra markaðs-
aðstæðna á hörpudisknum og var
mikið tap á vinnslu og veiðum
síðast þegar eitthvað var unnið og
veitt af honum, en aðalvinnslu-
og veiðisvæðið er fyrir vestan á
Breiðafirði.
Veiðar á djúprækju hafa
gengið vel upp á síðkastið en ver-
ið tregar á grunnslóð. Lárus sagði
að rækjumarkaðurinn væri þessa
stundina í jafnvægi þó svo að
verðið hefði örlítið lækkað frá
áramótum. Markaðshlutdeild
Norðmanna hefur minnkað frá
því sem áður var en á sama tíma
hefur hlutur Dana, Færeyinga og
Grænlendinga aukist. Samanlagt
hefði þó hlutdeild rækju frá
Norðurlöndum minnkað á mark-
aðnum er stafar af miklum sam-
drætti í rækjuveiðum Norð-
manna.
Pá hafa Kanada- og Banda-
ríkjamenn verið að sækja í sig
veðrið í rækjuveiðum.
- grh
Sameining sveitarfélaga
Dalamenn í eina sæng
Kosið um að gera Dalasýslu að einu sveitarfélagi.
Sveitarstjórnarmönnum munfækka úr34 í 7
Deildar meiningar um málið
r
Íforsctakosningunum 25. júni
nk. munu Dalamenn einnig
kjósa um það hvort sameina eigi
sveitarfélögin átta í Dalasýslu í
eitt. Síðan 9. desember 1986 hef-
ur verið starfandi samstarfs- og
sameiningarnefnd sveitarfélaga í
Dalasýslu.Hefur hvert sveitarfé-
lag átt tvo fulltrúa í nefndinni.Að
sögn Sigurðar Rúnars Friðjóns-
sonar, oddvita í Búðardal, hefur
nefndin gengið frá samþykkt um
málið.
íbúar Dalasýslu eru nú 1013,
og skiptast þannig milli hreppa,
að íbúar í Búðardal og sveitinni í
kring eru um 400, sveitarfélögin
Haukadalur, Hörðudalur og
Skarðsströnd með 50 íbúa hvert,
Saurbæjarhreppur er með 120
íbúa, Fellsströnd og Hvammsveit
með 80 hvor og Miðdalahreppur
með 120 íbúa.
Sigurður Rúnar sagði í samtali
við blaðið, að auðvitað væri þetta
umdeilt mál. „Búðardalur er
óneitanlega langstærsta byggðin
og ekkert óeðlilegt við, að menn
óttist að valdið færist hingað.
Stjórnsýslan mun öll færast híng-
að. Oddvitar munu í sjálfu sér
missa lítið, því að fyrirhuguð
gjaldheimta mun hvort eð er taka
alla innheimtu úr þeirra höndum.
Sveitarstjórnarmönnum mun
hinsvegar fækka úr 34 í 7, sagði
Sigurður Rúnar.
Ljóst er að málið er umdeilt og
ýmsir munu missa spón úr aski
sínum. Að sögn Sigurðar hefur
hvert sveitarfélag hinsvegar
neitunarvald, ef meirihluti í ein-
hverju sveitarfélaginu kýs á móti
sameiningunni, en það kemur
ekki í veg fyrir að af sameiningu
hinna geti orðið.
gjh
Húsafell
Allt unnið fyrir gýg
Engin samkoma um verslunarmannahelgina
Það er Ijóst að sýslumaður
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
hefur gert okkur afar mikinn
óleik með þessum afarkostum
sem hann hefur sett fram vegna
fyrirhugaðs skemmtanahalds í
Húsafelli um nk. verslunarmann-
ahelgi og sem gerir okkur með
öllu ókeift að halda hana. Frá
okkar bæjardyrum séð er hér um
að ræða tilræði við fjáröflun
UMSB og vegið að uppbyggingu
ferðaþjónustu í héraðinu, sagði
Gísli Einarsson ritari UMSB við
Þjóðviljann.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar og Björgunarsveitin Ok
hafa fallið frá fyrirhuguðu sam-
komuhaldi í Húsafelli um nl
verslunarmannahelgi. Undirbúr
ingur var vel á veg kominn o
búið að leggja gífurlega vinnu
skipulagningu o.fl.
Áð sögn Gísla Einarssonar er
það einkum eftirfarandi kröfe
sýslumanns um skemmtanaleyfi
Húsafellssvæðinu sem mótshölc
urum þykja óaðgengilegai
Löggæslukostnaður upp á tæpa
3 milljónir króna, aldurstakmar
bundið við 16 ár, áfengisbann ofl
Ekki náðist í Rúnar Guí
jónsson sýslumann í gær til a
heyra sjónarmið embættisins
þessu máli.
- Sr
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. júní 1988