Þjóðviljinn - 14.06.1988, Síða 16
p-SPURNINGIN—^
Hverju spáiröu um úrslit
Evrópukeppni landsliða?
Randver Ármannsson
rafverktaki:
Ég veðja á Hollendingana. Þeir
hljóta að vinna keppnina þrátt
fyrir slysalegt tap á móti Rússum
í sínum fyrsta leik. Þeir eiga eftir
að blómstra enda með létt-
leikandi lið og sókndjarft.
Gunnar Þór Asgeirsson
íiskvinnslumaður:
Ég hef trú á að Sovétmenn
vinni þessa keppni. Þeir eru með
besta liðið og kom það glöggt
fram í þeirrafyrsta leik á móti Hol-
lendingum sem þeir unnu. Þeir
munu keppa til úrslita á móti
Spánverjum.
Þröstur Magnússon
matreiðslumaður:
Ítalía, það er engin spuming.
Þeir eru bestir og þarf ekki að fara
mörgum orðum um hversvegna.
Þeir leika til úrslita á móti V-
Þjóðverjum.
Ragnar Hermannsson
sjómaður:
Hollendingar vinna keppnina.
Þeir virðast vera komnir á gott
skrið eftir lægð síðustu ár. í úr-
slitaleiknum keppa þeir á rnóti
Sovétmönnum sem munu lúta í
lægra haldi að þessu sinni þrátt
fyrir að hafa unnið þá óverð-
skuldað í fyrsta leiknum.
Björn Karl Þórðarson
verkamaður:
Ég segi að Rússar vinni
keppninaverðskuldað. Þeim hef-
ur vegnað vel og sást það best á
móti Hollendingum í þeirra fyrsta
leik sem þeir unnu. I úrslitunum
keppaþeir á móti ftölum.
blÓÐVILIINN
Þriðjudagur 14. júní 1988 133. tbl. 53. árg.
SIMI681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Höggmyndir
Grey styttuma
aleinar...
„Stóðið“ eftirRagnar Kjartansson aftur upp ísumar.
Dagar epoxýs taldir.
Bronsið enn á ný.
Jónas í endurhœfingu
Isumar kcmur „Stóðið“ aftur
heim. Það fór upp að Korpúifs-
stöðum haustið ‘86 og ári síðar til
Englaveldis. Þaðan kom það á
þessu ári og verður nú í sumar
sett upp á sínum gamla, góða
stað; við Hringbrautina.
Upphaflega var styttan úr ep-
oxý en það er hart og í ljós hefur
komið að það þolir illa þenslu,
springur og tærist upp. Einnig
hefur komið í ljós að það er lista-
mönnunum sjálfum ákaflega
hættulegt. 12ungiriistamenndóu
í New York á síðasta ári vegna
eituráhrifa frá epoxý og þeir
myndhöggvarar sem hafa notað
efnið eitthvað á sínum ferli eru nú
lasburða af völdum lifrar-
skemmda og húðkrabba. „Það er
skammarlegt að það skuli ekki
vera varúðarklásúlur á pakkning-
unum frá Málningu hf.,“ segir
Ragnar. Hann er sjálfur með ó-
nýta lifur og fleiri innvortis
krankleika.
Það er sosum ekki mikið að
kippa sér upp við þótt forgengi-
legir líkamar listamannanna sem
í auðmýkt skapa verkin eyðist, en
ef verkin sjáif eyðast þá er fyrst
hrifsað í taumana.
1 I I f
\ ‘
~ n/í/ (r
■ •* 4 j -sjr
>
, ... ui V
Hvar er Jónas?
Bronsið hefur til að bera mun
meiri sveigjanleika en epoxýið og
er betur undir íslenska frostavet-
ur búið. Stallurinn sem „Stóðið“
stóð á er einnig illa farinn af al-
kalískemmdum en til allrar lukku
verður hann lagfærður áður en
styttunni verður upp stillt á hon-
um á ný.
„Ég ólst upp í kringum hesta og
á hestbaki því þar sem ég óx var
mm
Ragnar lætur hér vel að „Stóðinu", hestunum sínum. Með hamar í
hönd er hann þarna að koma sköpunarverkinu fyrir en nú bíður stallur-
inn einn og auður. Mynd: Ari.
hestabú. Þegar ég komst til
manns komst ég minna til að ríða
hestum sjálfur svo mín leið til að
ná aftur til hestaminninganna var
að skapa mína eigin hesta,“ segir
Ragnar og hlær við. Skaparinn í
öllu sínu veldi.
„Þessir hestar eru villtir. Ekk-
ert klipptir eða tilhafðir af mönn-
unum. Bara villtir, grófir og
hærðir íslenskir hestar."
Styttur bæjarins eru svo gott
sem allar í viðgerð nú og eru
sumar þeirra á sama stað og
„Stóðið" var. Ein þeirra er Jónas
Hallgrímsson. „Jónas var sendur
í endurhæfingu, enda kannski
kominn tími til,“ sagði Theódór
Halldórsson en hann sér um stytt-
urnar fyrir Reykjavíkurborg.
Hann sagði enn fleiri styttur vera
í viðgerð. Þvottakonuna í
Laugardalnum, stúlkumyndina í
Tjarnargarðinum og einnig þá
við hafnargarðinn.
„Nú er mest áhersla lögð á að
koma Viðeyjarstofu heilli saman
en ég vona að okkur takist að
koma þó ekki væri nema bara
„Stóðinu" upp í sumar,“ sagði
Theódór.
-tt
Listahátíð
Neyðarkall
í Iðnó
Látbragðsleikurinn
SOS áfjölunum í
kvöld
Théatre de 1‘Abre sýnir í kvöld
í Iðnó á vegum Listahátíðar lát-
bragðsleikinn S.O.S. er fjallar
um lífið eftir atómsprenginguna.
Yves Lebreton túlkar leikinn
ásamt brúðunni Lili.
Yves Lebreton stofnaði
leikhúsið í París 1976. Sama ár
heimsótti hann Listahátfð í
Reykjavík með sýningu sem þótti
einn af betri liðum hátíðarinnar
það árið.
Auk sýningarinnar eru mynd-
listarsýningar á vegum Listahá-
tíðar í ýmsum helstu sýningar-
sölum borgarinnar og sýningin
Byggt í Berlín í Ásmundarsal.