Þjóðviljinn - 16.06.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 16.06.1988, Qupperneq 1
Fimmtudagur 16. júní 1988 135. tölublað 53. árgangur Velferðarkerfið Fannst löngu látin SkjólstœðingurFélagsmálastofnunarfannstígœrlöngu látinn ííbúð í Vesturbœnum. Skortur á starfsfólki háirþjónustu hjá stofnuninni Reykvísk kona fannst í gær látin að heimili sínu í Vesturbæn- um og er ljóst að hún hafði verið alllengi látin. Lögreglumenn sem að komu urðu frá að hverfa í fyrstu, og var líkið að lokum sótt af mönnum í reykköfunarbún- ingum. Hin látna var skjólstæðingur Félagsmálastofnunar í Reykjavík og bjó í húsnæði á vegum stofn- unarinnar. Hjá Félagsmálastofn- un fékk Þjóðviljann þær upplýs- íngar í gær að mjög væri misjafnt hver þjónusta og eða eftirlit væri veitt. Sumum væri leigt húsnæði án nokkurra afskipta en öðrum veitt betri þjónusta. Birgir Ottós- son hjá húsnæðisdeild stofnunar- innar segir að skortur á starfsfólki og lág laun komi í veg fyrir að stofnunin geti veitt þá heimilis- þjónustu sem nauðsynleg sé. Sjá síðu 3 Skák Jóhann tapaði fyrir Karpov Jóhann Hjartarson tapaði fyrir Anatoly Karpov á heimsbikarm- ótinu í Belfort í Frakklandi í gær. Heimsmeistarinn Garrí Kasp- arov hefur þegar náð forystunni á mótinu þegar tefldar hafa verið tvær umferðir af 15. Sjá skákfrétt Helga Ólafssonar á síðu 6 Landbúnaðarráðuneytið Svört skýrsla um fiskeldi Skipulagsleysi. Gœðamál íólestri í gær voru birtar niðurstöður skýrslu sem Hermann Óttósson hefur gert fyrir landbúnaðar- ráðuneytið um stöðu fiskeldis í dag og hvað sé til úrbóta. Niður- staða skýrslunnar er harður dóm- ur á skipulagsleysi fiskeldis hér á landi þar sem hver sé að grauta í sínu horni og gæðamat sé á reiki. Skýrsluhöfundur leggur til að stefnumótun í fiskeldi verði sam- ræmd og að útflytjendur snúi bökum saman við að framleiða hágæðavöru með virku gæðaeft- irliti. Þá verði lögð áhersla á strandeldi og hafbeit í stað kvía- eldis. Sjá síðu 2 Svona var hann stór... Bera Nordal forstöðumaður Listasafnsins virðist vera að segja lög- Finnbogadótturforseta. Lögmaðurinn kom í gær í opinbera heimsókn manni Færeyja frá síðustu veiðiferð, en sennilega er hún þó að skýra og heimsótti þá Bessastaði, Norræna húsið og Listasafnið og í dag er eitthvert listaverkið út fyrir Atla Dam, konu hans Sólvá og Vigdísi förinni heitið austur á firði. (Mynd: Ari) Byggðamál Landsbyggðin er ekki ein Alþýðubandalagið hélt um síð- ustu helgi velheppnaða ráðstefnu á Dalvík, heimabyggð varafor- mannsins, sem segist mjög ánægð með umræður og gefna tóna, í samtali við Þjóðviljann. í blaðinu í dag er sagt frá ráðstefnunni í máli og myndum, rætt við Svan- fríði Jónasdóttur og birt spjall Björns Þórleifssonar oddvita og skólastjóra í Svarfaðardal um landsbyggð, menningu og við- horf.________________________ Sjá síður 7-9 Kaffibaunamálið Erlendur sýknaður Dómurfallinn íhœstarétti. Hjalti Pálsson: 12 mánaðafangelsi. Hœstiréttur klofinn í afstöðu sinni Þeir Erlendur Einarsson frv. forstjóri SÍS og Arnór Valgeirs- son deildarstjóri fóðurvöru- deildar SÍS voru í gær sýknaðir af öllum ákærum í kaffibauna- málinu. Hjalti Pálsson forstöðu- maður innflutningsdeildar fékk hins vegar 12 mánaða fangelsis- dóm, Sigurður Árni Sigurðsson forstöðumaður skrifstofu SÍS í London fékk 7 mánaða fangelsi og Gísli Theodórsson fékk þrig- gja mánaða fangelsisdóm. Hæsti- réttur klofnaði í málinu og vildu tveir dómarar sýkna alla ákærðu. Hjalta og Sigurði var einnig gert að greiða allan málskostnað bæði fyrir héraðsdómi og hæsta- rétti. Annarmálskostnaðurfellur niður. í dómsorði segir að fresta skuli fullnustu refsinga og þær felldar niður haldi sakborningar skilorð næstu tvö ár. í dómnum segir að SÍS hafi brugðist trúnaðarskyldu sinni við Kaffibrennslu Akureyrar. SÍS hafi leynt endurgreiðslum sem féllu til vegna kaupa á hrákaffi og krafið kaffibrennsluna um greiðslur eftir reikningum þar sem endurgreiðslurnar komu ekki fram. Ekki sé sannað að þetta tvöfalda reikniskerfi hafi verið tekið upp að frumkvæði ákærðu en það hafi hins vegar verið notað til að leyna endan- legu verði hrákaffis til kaupanda. Hæstaréttardómararnir Magn- ús Thoroddsen og Guðmundur Jónsson voru ekki sammála meirihluta dómenda og vildu sýkna alla aðila. í séráliti þeirra segir ma. að það geti ekki ráðið úrslitum í refsimáli, hvaða hug- myndir ákærðu kunni að hafa gert sér um eðli viðskiptanna. Þetta hafi verið flóknir viðskipta- hættir sem ósannað sé hvort for- ráðamenn SÍS hafi átt þátt í að koma á. Þá segir í sérálitinu að ekki sé fullsannað að um umboðsvið- skipti hafi verið að ræða. -hmp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.