Þjóðviljinn - 23.06.1988, Qupperneq 1
Fimmtudagur 23. júní 1988 140. tölublað 53. árgangur
Hvalveiðar
Veiðikvótinn minnkaður um 22 dýr. Bandarísk stjórnvöldfalla
frá staðfestingarkœru. Greenpeace: Þrýstingur vegna her-
stöðvarinnar
Til þess að forðast átök og
vandræði við bandarísk
stjórnvöld út af hvalveiðunum
ákváðu íslensk stjórnvöld að
bakka með upphaflega áætlun
um fjölda veiddra dýra og hefur
kvótinn verið minnkaður umtal-
svert. í staðinn hafa bandarísk
stjórnvöld ákveðið að falla frá
staðfestingarkæru gagnvart ís-
lendingum.
Upphaflega var ráðgert að
veiða 80 langreyðar á vertíðinni í
sumar en sá kvóti hefur verið
minnkaður niður í 68 dýr. Þá var
ennfremur ráðgert að veiða 20
sandreyði en verða þess í stað
veidd 10. Þó er gert ráð fyrir að
veiðarnar verði í samræmi við
upphaflegu rannsóknaráætlun-
ina, eins og hvalveiðarnar eru
nefndar í dag, á næsta ári. Vísind-
aveiðarnar munu kosta íslensku
þjóðina um 20 miljónir á þessu
sumri en minnkun kvótans mun
trúlega stytta veiðitímabilið um 3
vikur.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Banda-
ríkjastjórnar segjast Greenpeace
menn í engu ætla að draga úr
mótmælum sínum gegn hval-
veiðum íslendinga. Yfirmaður
samtakanna í Bandaríkjunum
sagði í samtali við Ríkisútvarpið í
gærkvöld að herstöðinni á Kefla-
víkurflugvelli hefði verið beitt
sem þrýstingi gegn Bandaríkja-
mönnum og til marks um það
hefðu fulltrúar Öryggisráðsins
verið í sendinefnd Bandaríkja-
manna sem funduðu um hval-
veiðar við íslenska ráðamenn.
Sjá síðu 2
Halldór Ásgrímsson siglir lygnan sjó eftir að hafa skorið niður hvalveiðikvótann.
Verðbólgan
Bráðabirgða-
lögin gerðu
illt verra
Kristján Thorlacius:Ávinningum samninga
stefntíalgeratvísýnu. Verðbólguhraðinn um
50% í allt sumar
Kirkjugull
Þjóðkirkju-
skattur
mannrétt-
indabrot?
Þórirlngvarsson: Fer
hugsanlega með mál-
ið alla leið til mann-
réttindanefndarinnar
í Strassbourg
- Ef Borgardómur hefði fallist
á mín sjónarmið þá hefði það haft
í för með sér slíka röskun á
högum og stöðu þjóðkirkjunnar
að ég átti sannast sagna ekki von
á að dómurinn yrði mér í hag.
Svo mælir kaþólikkinn Þórir
Ingvarsson sem stefndi ríkissjóði
til endurgreiðslu á þeim hluta
skattgreiðslna sinna síðustu ár
sem runnið hafa til Þjóðkirkjunn-
ar. Þórir segir málinu ekki lokið.
Áfrýjað verði tii Hæstaréttar og
málið hugsalega flutt fyrir
mannréttindanefndinni í Strass-
bourg.
Sjá síðu 2
Málmiðnaður
Loftmengun
og hávaði
Vinnueftirlitið hefur kannað
aðbúnað málmiðnaðarmanna.
Athuguð voru 53 fyrtæki og voru
niðurstöðurnar heldur dapur-
legar. Víða vantar mikið á að að-
búnaðurinn sé viðunandi.
í ljós kom að endurnýjun á
tækjum og búnaði er mjög hæg og
virðist svo sem íslenskur málm-
iðnaður sé að staðna. Viðgangur
greinarinnar er í hættu.
Sjá síðu 8 og 9
Stjórnvöld hafa ekki sýnt ann-
að af sér til að hemja verðbólg-
una en að fella gengið og krukka í
samninga verkalýðshreyfingar-
innar, segir Kristján Thorlacius,
formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja.
Kristján bendir á að þegar fall-
ið var frá fastgengisstefnunni og
gengið fellt í tvígang hafi fjandinn
orðið laus. - Bráðabirgalögin
hafa síðan aðeins gert illt verra,
sagði Kristján og benti á að á-
vinningum samninganna í fyrra
og hitteðfyrra hafi verið stefnt í
algera tvísýnu.
Þórður Friðjónsson forstöðu-
maður Þjóðhagsstofnunar segir
að ekki sé ástæða fyrir stjórnvöld
að grípa til nýrra efnhagsaðgerða
í kjölfar hækkunar byggingarvíst-
ölunnar. Hann segir að menn hafi
gert ráð fyrir að byggingavísi-
talan hækkaði í kjölfar gengisfell-
ingarinnar og verðhækkana í maí
og verðbólgan haldist milli 40 og
50 af hundraði yfir sumarmánuð-
ina, en hjaðni síðan þegar líður á
haustið.
Sjá síðu 7