Þjóðviljinn - 23.06.1988, Blaðsíða 14
Kjörfundur
í Kópavogi
við forsetakosningar laugardaginn
25. júní 1988 hefst kl. 10.00 árdegis
og lýkur kl. 23.00.
Kjósendur skipast á kjörstaði og í kjör-
deildir eftir lögheimili 1. desember 1987,
sem hér segir:
Kársnesskóli
1. kjördeild: Ásbraut, Austurgerði, Borgarholts-
braut, Hábraut, Hafnarbraut, Helgu-
braut, Hlégerði, Hófgerði, Holtagerði.
2. kjördeild: Hraunbraut, Kársnesbraut, Kastala-
gerði, Kópavogsbraut, Mánabraut,
Marbakkabraut, Meðalbraut.
3. kjördeild: Melgerði, Skjólbraut, Skólagerði,
Suðurbraut, Sunnubraut, Sæbólsb-
raut, Urðarbraut, Vallargerði, Vestur-
vör, Þinghólsbraut.
Menntaskólinn
1. kjördeild: Álfabrekka, Álfaheiði, Álfatún, Álf-
hólsvegur, Álfatröð, Ástún,
Auðbrekka, Birkihvammur.
2. kjördeild;. Birkigrund, Bjarnhólastígur, Bratta-
brekka, Brekkutún, Bræðratunga,
Bæjartún, Dalbrekka, Daltún, Digran-
esvegur, Efstihjalli.
3. kjördeild: Engihjalli, Eskihvammur, Fagra-
brekka, Fannborg, Fífuhvammsveg-
ur, Fífuhvammur, Gagnheiði, Greni-
grund, Grænatún, Grænatunga.
4. kjördeild: Furugrund, Grænihjalli, Hamraborg,
Hátröð, Hávegur, Hjallabrekka, Hlað-
brekka.
5. kjördeild: Hlíðarhvammur, Hlíðarvegur,
Hrauntunga, Hvannhólmi, Kjarrhólmi,
Lækjarbotnaland.
6. kjördeild: Langabrekka, Laufbrekká, Lindar-
hvammur, Lyngbrekka, Lyngheiði,
Litlihjalli, Lundarbrekka, Melaheiði,
Meltröð, Neðstatröð, Nýbýlavegur,
Rauðihjalli, Reynigrund.
7. kjördeild: Reynihvammur, Selbrekka, Skála-
heiði, Skólatröð, Smiðjuvegur, Star-
hólmi, Stórihjalli, Túnbrekka, Tungu-
heiði, Vallartröð, Vallhólmi, Víðigrund,
Víðihvammur, Víghólastígur, Vogat-
unga, Þverbrekka, Vatnsendablettur.
Kjörstjórn Kópavogs hefur aðsetur
í Menntaskólanum.
Undirkjörstjórn mæti kl. 9.00.
Athygli skal vakin á því að kjörstjórn getur óskað
þess, að kjósandi sanni hver hann er með því að
framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi
hátt.
Kjörstjórn Kópavogs
Snorri Karisson
Magnús E. Guðjónsson
Sverrir A. Lúthersson
Stuðningsmenn
Vigdísar Finnbogadóttur
sem hafa hug á að starfa á kjördag hafi samband
ísíma 17765, 17823, 17985, 18829.
Stuðningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð 1988,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27.
þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. júlí.
Fjármálaráðuneytið
SKÁK
Heimsbikarmótið
Jóhann mætir Kasparov í dag
- vann Nigel Short í gœr
Jóhann Hjartarson vann enska
stórmeistarann Nigel Short í sjö-
undu umferð heimsbikarmótsins
í Belfort og þokast við það upp
listann eftir slaka byrjun, 1V2
vinning úr sex skákum. Jóhann
hafði hvítt og náði snemma betri
stöðu. Short varði ónákvæmni í
viðkvæmri miðtaflsstöðu sem Jó-
hann nýtti sér út í æsar. Skákin
minnti um margt á viðureign
þeirra á IBM-mótinu í fyrra en þá
hafði Jóhann svart og vann. Þetta
var þriðji sigur hans yfir Short á
rúmu ári pg hefur spænski leikur-
inn orðið upp á teningnum í
öllum skákunum.
Að venju settu jafntefli svip á
úrslit mótsins. Karpov gerði stutt
jafntefli með svörtu gegn Ribli en
Kasparov gerði allt það sem hann
gat til að knésetja fyrrum heims-
meistara Boris Spasskí. Það tókst
ekki og Spasskí er því enn taplaus
og er með efstu mönnum. Úrslit
urðu þessi:
7. umferð:
Speelman - Sokolov 1/2:V2
Timman - Jusupov 1/2:1/2
Hubner - Nogueiras biðskák
Ribli - Karpov 1/2:1/2
Spasskí - Kasparov 1/2:1/2
Jóhann - Short 1:0
Ljubojevic - Ehlvest 1/2:1/2
Andersson - Beljavski ■ 1/2:1/2
Skákum Karpovs og Anders-
son og Beljavskí og Ljubojevic úr
sjöttu umferð lauk með jafntefli
en Sokolov vann hinsvegar Jan
Timman. Staða efstu manna á
mótinu er nú þessi: 1.-2. Kaspar-
ov og Ehlvest 5 v. hvor. 3.-5'.
Karpov, Spasskí og Sokolov 4. v.
hver.
Jóhann er í 15. sæti með 2'/2
vinning.
Skák Jóhanns og Shorts frá því
í gær fylgir hér á eftir. Þeir tefla
afbrigði af spænskum leik sem
verið hefur í mikilli tísku undan-
farin ár. Segja má að Jóhann beiti
leikaðferð mótstöðumannsins
því hann fylgir forskrift Shorts frá
skák þeirra á IBM-mótinu í fyrra.
Nú tefla þeir með skiptum litum.
Strax eftir byrjunina kemur upp
mjög spennt staða þar sem Short
fer helst til geyst í sakirnar. Fram-
rás f-peðsins þarfnast meiri
undirbúnings, 20. ..f5. Betra var
20. ..Rf4 ásamt - Kh8 og síðar
f7-f5. Svo virðist sem Short hafi
sést yfir 23. Rxe5! (sjá stöðu-
mynd) en þessi leikur leggur í
raun stöðu hans í rúst og byggist á
möguleikum biskupsins eftir
skálínunni a2-g8, 23. ,.dxe5 24.
d6! og - Hxf4+. 24. ..Db8 er afar
einkennilegur leikur. Betra virð-
ist 24. ..Bd8 en hugsanlega hefur
Short óttast 25. Rc6 Rxc6 26.
Hxf4 o.s.frv. Hann reynir að fá
mótspil með því að láta drott-
ninguna af hendi fyrir hrók, og
mann en staða Jóhanns er alltof
virk og hann knýr fram vinning
með nokkrum hnitmiðuðum
leikjum:
Jóhann Hjartarson
- Nigel Short
Spænskur leikur
1. e4 eS 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4
He8 11. Rbd2 Bf8 12. a3 g6 13.
Ba2 Bg714. b4 h615. Bb2 Rh516.
d5 Re7 17. Rb3 Hf8 18. c4 bxc4
19. Ra5 Bc8 20. Hcl f5 21. exf5
Rf4 22. Hxc4 Bxf5
abcdefgh
23. Rxe5 Bxh3 24. Rb7 Dc8 25.
Rxd6 cxd6 26. Hxc8 Bxc8 27. Dd2
g5 28. Rc6 Rf5 29. Bbl Rh4 30.
He7 Rh5 31. Bxg7 Rxg7 32. Dc3
Rhf5 33. g4 Rxe7 34. Rxe7+ Kf7
35. Bg6+ Kxe7 36. Dxg7+ - og
svartur gafst upp.
Þó allmikið sé um jafntefli í
Belfort þá eru ýmsir sem leggja
metnað sinn í að tefla til þrautar í
hverri skák. Garrí Kasparov er
einn þeirra. Hann veittist hart að
Boris Spasskí í skákinni í gær með
svörtu en „gamli“ maðurinn var
harður í vörninni og hélt jöfnu.
Spasskí hefur allra manna bestan
árangur gegn Kasparov, státar af
tveimur sigrum og nokkrum
jafnteflum. Sjálfsagt hefur Spas-
skí rifjað upp 8. skákina í einvígi
sínu við Fischer því eftir níu leiki
fengu þeir upp sömu stöðu og
Fischer, öllum á óvart, lék 10.
Bg5 - sem þá var „nýr“ leikur - og
vann eftir hrikaleg mistök Spas-
skís sem fór alveg úr sambandi.
Kasparov tefldi að venju af fít-
onskrafti. Peðsfórnin 15. ,.b5!
má heita dæmigerð fyrir hann og
það kemur á daginn að Spasskí á í
mestu erfiðleikum með að ráða
fram úr vandamálum stöðunnar.
Eftir 21. ..Bg4 er útlitið ekki
bjart, hvítur að vísu peði yfir, en
menn hans standa illa. Spasskí er
margreyndur og hann meðhöndl-
ar hina viðsjárverðu stöðu af
mikilli útsjónarsemi, 22. Bg5r er
bráðsnjall leikur. Þó frumkvæðið
sé enn í höndum heimsmeistar-
ans er ekki hægt að finna snöggan
blett á stöðu hvíts og Spasskí get-
ur meira að segja leyft sér að
fórna manni f lokin til að tryggja
jafntefli. Takið eftir að 41. Khl
er svarað með 41. ..g3! með hót-
uninni 42. ..Hh2 mát! Skemmti-
leg skák:
Boris Spasskí
- Garrí Kasparov
Enskur leikur
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 c5 4. Bg2
Rc6 5. 0-0 cxd4 6. Rxd4 0-0 7. c4
Rc6 8. Rc3 Rxd4 9 Dxd4 d6 10.
Dd3 a6 Bf4 11. Bf5 12. e4 Be6 13.
Hacl Rd7 14. b3 Re5 15. De2 b5
16. cxb5 axb5 17. Rxb5 Da5 18.
Rc3 Hfc8 19. Ra4 Dxd2 20. Bxd2
Rd3 21. Hxdl Bg4 22. Bg5 Bxdl
23. Hxdl Rb2 24. Bxb2 Rxb2 25.
Bxe7 Hxa2 26. Bxd6 Hal 27.
Hxal Bxal 28. Bfl Hc2 29. g4 Bd4
30. Bg3 f6 31. h4 h6 32. g5 hxg5
33. hxg5 fxgó 34. Bc4+ Kg7 35. eS
Kh6 36. e6 Bc5 37. Kg2 g4 38.
Bf4+ Kh5 39. Be3 Bxe3 40. e7
Hxf2+ 41. Kg3 Hf3+
- Jafntefli.
í dag verður áttunda umferð
tefld og þá beinast sjónir manna
að viðureign Kasparovs og Jó-
hanns Hjartarsonar. Kasparov
hefur hvítt.
I tilefni kosninga
Opið bréftil Sigrúnar Porsteinsdótturforsetaframbjóðandafrá Helgu
Harðardóttur
Ágæta Sigrún, þú, sem gefið
hefur kost á þér til embættis for-
seta þessa lands. Hvers væntirðu
af okkur kjósendum?
Þú væntir þess að við gefum
upp á bátinn þá löngun okkar, að
eiga okkur verðugt þjóðartákn.
Þú væntir þess af okkur, að við
veljum frekar að forseti okkar
stjórni en að þar til kjörið Alþingi
geri það, og þú væntir þess núna
að launþegar þessa lands lýsi yfir
stuðningi við þá einræðisstefnu er
þú boðar.
En þar skjátlast þér Sigrún, því
launþegarnir eru alls ekki tilbúnir
að taka þátt í þeim óskapar-
kostnaði, sem þjóðaratkvæða-
greiðslur þínar koma til með að
kosta.
Við þessir sömu launþegar höf-
um þegar kosið okkur menn til að
sjá um efnahagsmálin. Ekki þar
með sagt að við séum öll sammála
um ráðstafanir þeirra, en meiri-
hluti ræður, og er það ekki lýð-
ræði? Er það ekki lýðræði, sem
þú eilíft stagast á?
Þú segir: „Völdin til ykkar-því
þar eiga þau heima“ (tilvitnun).
Mér er spurn, hafa þau ekki alltaf
átt þar heima frá því við fengum
fyrst að kjósa til Álþingis íslend-
inga? Ætlar þú að taka þetta vald
af almenningi? Svo virðist mér,
því þú ætlar greinilega að stjórna
okkur ein og breyta forsetaemb-
ætti íslands, sem hingað til hefur
verið og verður vonandi í fram-
tíðinni, það embætti, sem við
metum mest embætta og erum
stolt af. Við kærum okkur ekki
um pólitískan forseta, það hefur
sýnt sig gegnum árin. Eg er bál-
reiður meðlimur í BSRB og tel
það freklega móðgun við félaga-
samtök mín að senda þeim beiðni
um stuðning við þig í væntan-
legum kosningum. Það er vissa
mín, að launþegasamtök þessa
lands munu svara þér á verðugan
hátt á kjördag.
Ég kýs ekki einræði og því
verður þú, Sigrún, án atkvæðis
míns á kjördag.
Helga Harðardóttir er búsett í
Reykjavík og vinnur á bæjarskrif-
stofunni á Seltjarnarnesi.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN! Fimmtudagur 23. júnt 1988