Þjóðviljinn - 30.06.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 30. júní 1988 146. tölublað 53. árgangur
Húshitunarkostnaður
Misréttið eykst stórlega
Orkubú Vestfjarða: Húshitunarkostnaður hœkkar að meðaltali um 8.400 krónur.
Pétur Sigurðsson: Ósvífni af forsœtisráðherra að segja kjarasamninga valda gengisfellingu.
Davíð Oddsson: Ríkisstjórnin getur ekkifalið eigin óstjórn
Hitunarkostnaður íbúðarhúsn-
æðis á Vestfjörðum hækkar að
meðaltali um 8.400 krónur á ári
og verður 68.400 krónur, eftir að
Orkubú Vestfjarða ákvað að
hækka gjaldskrá sína um 8% í
gær. Hækkunin kemur í kjölfar
hækkunar Landsvirkjunar á
heildsöluverði raforku um 8%.
Pétur Sigurðsson forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða segir þetta
auka líkurnar á því að grænu
strikin í kjarasamningum ASV
bresti í nóvember. ASV krefst
þess að staðið verði við endur-
skoðunarákvæði samninganna en
hóta annars átökum í haust.
Niðurgreiðslur á raforku til
húshitunar eru föst tala og leiðir
því hækkun Orkubúsins til 13-
15% hækkunar raforku til hitun-
ar fbúðarhúsnæðis. Pétur sagði
að Vestfirðingum hefði þótt hit-
unarkostnaðurinn ærinn fyrir og
yki þessi hækkun enn meira á það
misrétti sem væri á milli lands-
hluta í þessum efnum.
Davíð Oddsson borgarstjóri er
ekki par hrifinn af frammistöðu
ríkisstjórnarinnar undanfarið.
Borgarstjóri segir þá ríkisstjórn
feiga sem tekur sér hlutverk
gj aldskrárnefndar. Ríkisstjórn
geti ekki falið afleiðingar eigin
óstjórnar með þeim hætti.
Sjá síðu 3
Fossvogsdalur
Hraðbraut
eðaútivist?
- Það er tímaskekkja að tala
um hraðbraut í Fossvogsdalnum
á tímum þegar áhugi fólks á nátt-
úruvernd fer vaxandi og ég er
ekki í vafa um að leysa megi um-
ferðarmál borgarinnar á annan
hátt en að eyðileggja eitt besta
útivistarsvæði höfuðborgarinnar,
segir Gunnar Steinn Pálsson sem
er einn úr undirbúningshópi um
stofnun samtaka til verndar Foss-
vogsdalnum.
Reykjavíkurborg og Kópa-
vogskaupstaður hafa lengi deilt
um framtíð Fossvogsdals og
vegna þessara deilna hafa engar
framkvæmdir verið hafnar í daln-
um. í skipulagi sveitarfélaganna
er gert ráð fyrir ólíku hlutverki
Fossvogsdals í framtíðinni;
Reykjavíkurborg vill leggja
hraðbraut eftir endilöngum daln-
um en bæjarstjórn Kópavogs vill
að dalurinn verði útivistarsvæði
fyrir alla höfuðborgarbúa. í síð-
ustu viku samþykkti Skipulags-
stjórn aðalskipulag fyrir Reykja-
víkurborg með þeim fyrirvara að
öllum framkvæmdum í Fossvogs-
dal verði frestað um 5 ár enn.
Bæjarstjórnin í Kópavogi hefur í
hyggju að kæra þessa afgreiðslu
málsins, einkum vegna þess að
hér er verið að taka ákvörðun um
land sem með réttu tilheyrir Kóp-
avogi, í skipulagi fyrir Reykjavík.
Sjá síðu 6-7
Frekar þunnskipað er um þessar mundir í matsal Granda hf. í Norðurgarði, enda bæði búið að segja upp starfsfólki og svo þykir kosturinn
bæði rýr og dýr. Mynd: Ari.
Grandi hf.
Þjónustan skorin við nögl
^ Megn óánœgja meðal starfsfólks Granda hf. í Norðurgarði
Megn óánægja ríkir meðal
starfsfólks Granda hf. í Norður-
garði vegna niðurskurðar fyrir-
tækisins á þeirri þjónustu sem
það hefur hingað tií veitt starfs-
fólkinu. Búið er að fækka rútum
sem keyrt hafa starfsmennina til
og frá vinnu úr þremur í eina, í
mötuneytinu er boðið uppá bæði
rýran og dýran kost en búið að
afnema hefðbundnar heitar mált-
íðir í hádeginu og fyrirhugað er
að loka mötuneytinu og setja upp
sjoppu í staðinn. Af þessum
sökum ma. helst fyrirtækinu ekki
eins vel á starfsfóiki og áður.
Sjá síðu 3
Ráðhúsið
Jóhanna guggnaði
Davíð fœr að byggja áfram
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sér ekki ástæðu til
að nema úr gildi byggingarleyfi
fyrir ráðhúsið í Tjörninni, þrátt
fyrir að umtalsverðar breytingar
hafi átt sér stað á einstaka bygg-
ingarþáttum og að hún telji vinn-
ubrögð borgaryfirvalda við
undirbúning framkvæmda mjög
ámælisverð.
- Ég skil þetta ekki, og ég er
mest uggandi yfir afleiðingunum,
að þetta hafi fordæmisgildi fyrir
aðra, segir Guðrún Jónsdóttir
arkitekt og fulltrúi í Skipulag-
stjórn.
Sjá síðu 3