Þjóðviljinn - 02.07.1988, Page 1
Laugardagur 2. júlí 148. tölublað 53. órgangur
Hverfjögurra mannafjölskylda veðsett erlendum lánardrottnumfyrirl,6
Skák/Belfort
Karpov
lagði
meistarann
miljónir króna. Olafur Ragnar Grímsson: Ríkisstjórnin virðist ekki œtla að
snúafrá villu síns vegar. Utlitfyrirfrekariskuldasöfnun. ÞórðurÓlafsson,
Verðbréfaviðskiptum Samvinnubankans: Skuldavandinn kann að ógna
efnahagslegu sjálfstœði okkar
ísland er eitt skuldugasta ríki í
heimi og komast skuldir annarra
landa með sambærileg lffskjör
ekki námunda við okkar. Er-
lendar skuldir þjóðarbúsins hafa
aukist jafnt og þétt að rauntölu,
en þessa stundina eiga erlendir
lánardrottnar ítök í okkur uppá.
litla 100 miljarða. Það jafngildir
tæpri hálfri miljón á hvern lands-
mann. Líklegt er talið að er-
Lektorsstaðan
Sameinast
gegn Birgi
Nœr allar stofnanir innan
Háskólans kallaðar
saman. Hannes hefur
ekki lokið neinu prófi í
stjórnmálafrœði. Svanur
Kristjánsson krefurBirgi
svara við ásökunum
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son hefur ekki lokið neinu prófi í
stjórnmálafræði. Sú niðurstaða
dómnefndar að hans fræðiskrif
séu á sviði stjórnmálaheimspeki
er ekki sú fyrsta. Þórólfur Þór-
lindsson deildarforseti félagsvís-
indadeildar segir það ekki réttu
leiðina að dómur harðvítugra
pólitískra flokksleiðtoga komi í
stað álits faglegra dómnefnda.
Nær allar stofnanir og hópar
sem snertir þetta mál, innan Há-
skólans hafa boðað til funda í
næstu viku. Rektor hefur boðað
til aukafundar um málið og Stúd-
entaráð hefur gert hið sama. Þá
verður deildarfundur um málið
og nemendur í stjórnmálafræði
hafa boðað til neyðarfundar á
þriðjudag.
Sjá síðu 2, 4 og 5
lendar skuldir aukist enn um 10
til 15 miljarða á árinu. Þetta kem-
ur fram í „svartri skýrslu" Verð-
bréfaviðskipta Samvinnubank-
ans.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins,
segir að þessar tölur sýni að
stjórnarstefnan ógni efnahags-
legu sjálfstæði þjóðarinnar.
- Enn sem komið er bendir
ekkert til að ríkisstjórnin ætli að
snúa af þessari óheillabraut.
Verði blaðinu ekki snúið við má
ráðgera að skuldir þjóðarbúsins
verði á næsta ári orðnar hátt á
annað hundrað miljarða króna,
segir Ólafur Ragnar.
Þórður Ólafs, forstöðumaður
Verðbréfaviðskipta Samvinnu-
bankans, segir að nánast ekkert
ríki með sambærileg lífskjör
komist í samjöfnuð við ísland,
hvað erlendar skuldir áhrærir. -
Við erum ein skuldugasta þjóð
veraldar.
Verði blaðinu ekki snúið við
segir Þórður, að það kunni að
koma okkur í koll og ógna efna-
hagslegu sjálfstæði okkar.
Sjá síðu 3
Jóhann neðstur eftir tap
gegn Timman
Karpov náði fram hefndum á
Kasparov í 129. skák þeirra
fjandvinanna, og skilur vinning-
ur þá að fyrir síðustu umferðina í
heimsbikarmótinu í Belfort.
Karpov lagði heimsmeistarann
í uppáhaldsbyrjun hans,
Grunfelds-vörn.
Jóhann Hjartarson tapaði fyrir
Hollendingnum Jan Timman og
er ásamt honum neðstur á þessu
geysisterka móti.
Sjá skákfréttir Helga
Ólafssonar síðu 7
Sumarstemmning á Grund í gær. Séra Gylfi Jónsson þandi nikk- enda ekki á hverjum degi sem klerkar landsins bregða á glens og
unaafmiklummóðíhitabrækjunniígærogundirtókuheimilismenná grallaraskap við sóknarbörnin. Það er þá ekki víst að þeir kembi
Grund. Ekkivarannaðaðsjáenallirviðstaddirskemmtusérhiðbesta, hærurnar í embætti á þessum síðustu og verstu tímum. Mynd Sig.
Sovétríkin
Hvað torveldar
áform Gorbatsjovs?
í Sunnudagsblaðinu heldur
Árni Bergmann áfram frásögn
sinni af kristnihaldi og perest-
rojku í Sovétríkjunum. I grein
um „þriðja dauða Stalíns“ er
fjallað um ástæður þess að
myrkraverk úr fortíðinni verða
mikilvæg í umræðu dagsins. Og í
annarri samantekt segir frá því,
hvernig á því stendur að miklu
betur gengur að halda úti glas-
nost, opinni umræðu um vanda-
mái, en að fylgja henni eftir með
áþreifanlegum umbótum og ár-
angri í framleiðslu. Þar er og fjall-
að um þá hagsmuni sem standa í
vegi fyrir áformum Gorbatsjovs,
kenndum við perestrojku.
Sjá sunnudagsblað
síðu 5-7
og laugardagsblað
síðu 13
Myndlist
Leitin að
sjálfum sér
„Samband mitt við móður
mína er nokkuð sem ég hef velt
mikið fyrir mér og skiptir miklu
máli í mínum myndum,“ segir
sænska listakonan Lena Cronqu-
ist sem kom hingað til lands í ti-
Iefni sýningar á verkum hennar
sem nú stendur yfir í Norræna,
húsinu.
Lena segist sækja sitt myndefni
í sjálfa sig, og að margar af mynd-
unum hafi orðið til þegar hún var
að reyna að kafa í sjálfa sig til að
átta sig á viðbrögðum sínum við
sinni eigin reynslu.
Sjá síður 8 og 9