Þjóðviljinn - 06.07.1988, Blaðsíða 16
P—SPURNINGI
Ætlar þú að ferðast inn-
anlands í sumar?
"1
Ásdís Lilja Ragnarsdóttir
garöyrkjumaður:
Nei ég reikna ekki með því.
Ætli ég láti ekki öll ferðalög bíða
þartil næsta sumar.
Unnur Magnúsdóttir hús-
móöir:
Ég hef ekki tekið ákvörðun um
það. Ég hef mjög gaman af
innanlandsferðum en þetta er
bara spurningin um að koma sér
af stað.
Guðni Guðmundsson lög-
fræðingur:
Nei það eru hvorki innan né
utanlansferðir á dagskrá hjá mér
í sumar.
Róbert Arnarsson verka-
maður:
Það getur vel verið að ég
skreppi í útilegu um verslunar-
mannahelgina en annars er ég
að vinna í allt sumar.
«
Agnes Magnúsdóttir, starfs-
maður sjúkrasamlagsins:
Ég er nú búin að taka mitt
sumarfrí og fór ekki í neitt ferða-
lag. Ég hef þó hugsað mér að
fara í nokkrar helgarferðir t.d. á
Þingvöll.
þlÓÐVILIINN
Miðvikudagur ó. júlí 1988 151. tölublað 53. örgangur
SÍMI681333
Á KVÖLDIN
681348
Á LAUGARDÖGUM
681663
öræfakyrrðin var allsráðandi við Álftavatn þar sem fagur fjallhringurinn speglaðist í lygnu vatninu.
Hálendið
Allar leiðir að opnast
Ferðafélagið með skála á27 stöðum
Landmannalaugar efstar á lista útlendinga,
en Islendingar scekja í gróðurinn í Þórsmörk
í ár hefur verið unnt að opna
helstu hálendisvegi hálfum mán-
uði fyrr en venjulega og eflaust
hafa margir brugðið sér á fjöll í
góðviðrinu um helgina. Nú er
verið að gera við vegaskemmdir á
Syðri-Fjallabaksleið og Eyja-
ijarðarleið á Sprengisand og
standa vonir til að þær verði opn-
aðar um næstu helgi.
Hjá starfsmanni vegaeftirlits-
ins fengust þær upplýsingar að
flestar aðrar leiðir væru vel færar
stórum bílum, snjór farinn og
vatnsmagn orðið lítið í ám. Hann
vildi þó benda á að aurbleyta væri
í Hvítárnesafleggjara frá Kjal-
vegi og sandfok á hálendinu
norðan Vatnajökuls gerði vegi
austantil illfæra öðrum en 4 hjól-
adrifs bflum.
Vítt og breitt um óbyggðirnar
hefur Ferðafélag íslands reist
skála og eru þeir nú 27, þar af 12 í
eigu deildanna á Norður- og
Austurlandi. Að sögn Þórunnar
ÞórðardótturhjáF.L eru verðirá
5 stöðum yfir sumartímann: f
Þórsmörk, Landmannalaugum,
Herðubreiðarlindum, Hvera-
völlum, Nýjadal og Kverkfjöll-
um. Auk þess eru sjálfboðaliðar
um tíma í Snæfelli, Hvítárnesi og
við Álftavatn.
Hún sagði að salernisaðstaða
hefði áhrif á verð fyrir gistingu í
skálunum og í ár kostar nóttin í
nálægð við vatnssalerni 550 kr.,
en 100 kr. minna þar sem aðeins
eru kamrar. Ef fólk notar sér
þessa gistiaðstöðu mikið, marg-
borgar sig að ganga í félagið.
Árgjaldið er nú 1.600 kr. og fyrir
það fæst árbók Ferðafélagsins,
auk afsláttar á gistingu og í ferðir.
Einungis í Þórsmörk eru sturt-
ur, en á Hveravöllum og í Land-
mannalaugum eru náttúrulegar
laugar sem hafa mikið aðdráttar-
afl. Er blaðamaður var á ferð í
Landmannalaugum um síðustu
helgi eyddu margir ísiensku gest-
anna sumarnóttinni í laugunum á
meðan útlendingarnir sváfu og
söfnuðu kröftum fyrirgönguferð-
ir næsta dags.
Þórunn sagði að útlendingar
sæktu langmest í Landmanna-
laugar. Þeir vildu komast í virki-
legar óbyggðir og heilluðust af lit-
adýrðinni og gróðurlausum
auðnum. íslendingar væru hins
vegar fjölmennastir í kjarrinu í
Þórsmörk. Margir taka báða
þessa staði í einni ferð og ganga
mjög fallega leið, svokallaðan
Laugaveg, úr Landmannalaug-
um í Þórsmörk. mi
Tápog fjörog frískirmenn .... Svolítið kalt en hressandi að skolaaf sér
ferðarykið í fossi í Fljótshlíðinni. Myndir: mj.