Þjóðviljinn - 22.07.1988, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.07.1988, Síða 1
Föstudagur 22. júlí 1988 165. tölublað 53. örgangur Nesco Við töpum 50 millum Útvegsbankanum nýja skítsama um Útvegs- bankann gamla. Ríkið tapar 50 milljónum í gær var hlutur Nesco- eigandans Óla Bildtved í jörðinni Óttarsstöðum I sleginn Lands- bankanum fyrir 8 milljónir. Við það hamarshögg tapaði Útvegs- bankinn gamli - það er að segja ríkissjóður - litlum 50 milljónum. Forystumenn Útvegsbankans sátu hjá með hendur í vösum. Sjá síðu 3 Bolvíkingar Hóta að stöðva herframkvæmdir VatnsbóliÖ illa fariÖ vegna vegaframkvœmda hersins. Bolvíkingar hafa hótað utan- ríkisráðuneytinu að stöðva tíma- bundið framkvæmdir við vegal- agningu á vegum hersins, inn í Hlíðardal, ef ráðuneytið kemur ekki með tillögur um til hvaða úrræða það ætlar að grípa vegna mengunar og vatnsskorts í vatns- bólum bæjarbúa, sem vegalagn- ingin hefur orsakað. Vatnsskortsins varð fyrst vart sl. haust og óttast Bolvíkingar að sagan muni endurtaka sig næsta vetur og vilja því úrlausn strax. Vegurinn liggur beint yfir vatnsöflunarsvæði vatnsveitunn- ar, en hún safnar saman yfir- borðsvatni í dalnum. Hjá Varn- armálaskrifstofunni fengust þær upplýsingar að málið væri í at- hugun en þeirri spurningu væri ósvarað hvort framkvæmdirnar ættu hlut í máli eða hvort ástæð- urnar fyrir vatnsskortinum væru aðrar. Ólafur Kristjánsson, bæjar- stjóri, sagði að heimamenn væru mjög óhressir með seinaganginn í ráðuneytinu. Sjá síðu 3 Eru íslendingar neysluóðir eða þurfa þeir að vinna langan vinnudag fyrir fæði og húsnæði? Stefán Ólafsson segir styttingu vinnutímans geta orðið grundvöll nýrrar kjarastefnu. Löng vinnuvika íslendingar vinnuóöir Hœgtað breyta þessu fslendingar eiga að jafnaði mun lengri vinnudag en gengur og gerist í vestrænum ríkjum. Stefán Ólafsson félagsfræðingur segir í nýrri bók að í OECD- löndunum öllum hafi vinnuvika styst jafnt og þétt frá stríðslokum og framleiðni aukist. Engin teikn séu í þessa átt á íslandi. f rann- sókn Stefáns, sem sagt er frá í nýju „Þjóðlífi“ kemur fram að 71% íslenskra verkamanna eiga lengri vinnuviku en 40 stundir, og meðalvika þeirra sem vinna fulla vinnu er um 54 tímar. Ari Skúlason segir þá umgjörð sem þjóðfélagið setur fólki vera því fjandsamleg. Fólk sé neytt til að fara út í íbúðarkaup og þurfi að greiða þau upp á skemmri tíma og greiða hærri útborgun en hægt sé að standa undir án mikill- ar vinnu. Kjartan Jóhannson al- þingismaður segir langan vinnu- dag vera ávana hjá íslendingum og merki um arf gamals þjóð- skipulags. Forsendur séu til að breyta þessu. Sjá síðu 5 Bandaríkin „Duke, Duke, Duke...!!!“ Fulltrúar á flokksþingi Demókrata sigurreifir Það var glatt á hjalla á flokks- þingi Demókrataflokksins í fyrradag þegar Michael Dukakis, fylkisstjóri í Massachussetts, var lýstur réttkjörinn forsetafram- bjóðandi flokksins. Fulltrúar tóku létta sveiflu í ráðstefnusaln- um, klöppuðu, stöppuðu, grétu og veinuðu af kæti. „Duke, Duke, Duke;“ virðist hafa fylkt flokksfélögum að baki sér og segja fróðir menn og minn- ugar konur að ár og dagur séu síðan bandarískir demókratar hafi verið jafn samstíga og nú. Spá þeir „hertoganum“ sigri úr glímunni við varaforsetann en þeir taka fang saman þann 8.nóvember í haust. Sjá bls.12 og 13 Lánskjaravísitalan Misgengið iimbyggt Sturla Þengilsson: Stjórnvöld nauðbeygð til að taka á greiðsluvanda húsnœðiskaupenda. - Stjórnvöld geta ekki látið sem þau taki ekki eftir þeim greiðsluvanda sem blasir við þeim sem standa í húsnæðis- kaupum sökum misgengis lánsk- jaravístölu og launa. Misgengi kemur sér alltaf jafn bagalega, og skiptir þá litlu hvort það mælist í 10 eða 20%, segir Sturla Þengils- son, talsmaður Sigtúnshópsins. - Það kemur mér ekki á óvart að verðtryggingarnefnd skuli komast að þeirri niðurstöðu að misgengi lánskjaravístölu og launa verði 10% á gildistíma bráðabirgðalaganna, segir Stefán Ingólfsson, verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri Fasteigna- mats ríkisins. Stefán segir þó slíkt misgengi ekki á neinn hátt sambærilegt við misgengi áranna 1983-1984 í stjórnartíð ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar. Hann segir að hættan sem vofi yfir núna sé að vextir af útlánum húsnæðislánakerfisins verði hækkaðir, sem gæti haft miklu al- varlegri afleiðingar í för með sér fari vaxtahækkun saman við mis- gengið. Sjá síðu 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.