Þjóðviljinn - 23.07.1988, Page 1
Bílainnflytjendur hafa varla átt
fegurri stundir en í bílakaupa-
æðinu síðustu misseri. Nú eru
blikur á lofti, fjárfestingarnar hafa
verið miklar og fjármagnskostn-
aðurinn geysilegur, útþenslu-
draumamir of stórir.
Laugardagur 23. júlí 166. tölublað 53. árgangur
ppa
í bflabransanum
Veltir valt í gœr, fleiri gœtu fylgt á eftir
Stjórnendur Daihatsu um-
boðsins, Brimborgar hf., skrif-
uðu undir kaupsamning í gær um
að kaupa fyrirtækið Velti hf.
Þetta þykja nokkur tíðindi í bfla-
viðskiptunum því fyrirtækið
Veltir hafði fengið orð á sig fyrir
að vera vel rekið og stöndugt fyr-
irtæki. Tap þess var þó orðið á
annað hundrað milljónir króna
þegar lífdögum þess lauk í gær
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum blaðsins.
Meira hangir þó á spýtunni en
þetta eina fyrirtæki því eftir því
sem Þjóðviljinn kemst næst hrjáir
rekstrarvandi fleiri bflaumboð
þessa dagana. Haldnar eru út-
sölur á fleiri hundruð nýjum bfl-
um og þeir afhentir kaupendum á
uppboðsverði. Forsvarsmenn
þessara umboða segja að verið sé
að rýma fyrir nýjum árgerðum og
að þetta sé ódýrasta lausnin við
að losa sig við bflaua. Fólk getur
sótt þá óskráða, óryðvarða og ó-
þrifna fyrir skít og ekki neitt.
Að sögn þeirra sem gerst vita
er harla ólíklegt að vel rekin um-
boð með þokkalega greiðslu-
stöðu geti Ieyft sér þvíumlíkt. Þau
fyrirtæki sem helst er talið að séu
í erfiðleikum þessa daga eru Bfla-
borg, Jöfur og Egill Vilhjálms-
son.
Ástæðurnar eru fyrst og fremst
offjárfesting og sölutregða eftir
gengisfellingarnar og efna-
hagsráðstafanirnar.
Sjá síðu 3
Sveitarfélög
Stórfé hjá ríkinu?
Líkuráað sveitarfélögin eigi stórfé íríkissjóði. Vaxtalaust út
árið
Sveitarstjórnarmenn telja lík-
legt að sveitarfélögin eigi talsvert
fé inni hjá ríkissjóði, þar sem
starfsmenn fjármálaráðuneytis-
ins segja innheimtu mjög góða,
en peningarnir frá ríkissjóði til
sveitarfélaga eru hinsvegar af
skornum skammti.
Til Siglufjarðar eiga sam-
kvæmt áætlun að fara 73 milljónir
gegnum ráðuneytið, en bæjar-
stjórinn þar telur að hin raun-
verulega tala verði um 90
milljónir. Þeir fjármunir sem
rynnu til sveitarfélaganna að
loknu uppgjöri í árslok standa
vaxtalausir út árið.
Sjá síðu 3
Heilsufar
Vinnustreita allt að drepa
Landlœknir: Streita
og vinnuþrœlkun
helst í hendur
„Samfara miklu vinnuálagi
hefur vinnustreita aukist gífur-
lega og margs konar sjúkdómsá-
stand fylgt í kjölfarið,“ segir í ný-
útkomnu riti Landlæknisembætt-
isins, en það nefnist Mannvernd í
velferðarþj óðfélagi.
Ólafur Ólafsson, landlæknir,
kynnti ritið í gær og talaði af því
tilefni tæpitungulaust um hvar
það þjóðfélag væri á vegi statt
sem gerði þegnum sínum að eyða
sífellt lengri tíma við vinnu til að
sjá sér og sínum farborða.
Sjá síðu 5
Lánskjara vísitalan
Rauðu strikin
standa!
Steingrímur hervœðist
gegn Jóni Sig og kó
Steingrímur Hermannsson
segir að laun á íslandi séu vísi-
tölutryggð. Rauðu strikin í samn-
ingunum séu enn í fullu gildi.
Hann segir að misgengi launa og
verðlags verði ekki þolað og segir
verðtryggingarnefnd hafa brugð-
ist hlutverki sínu.
Sjá síðu 3
Ægilegir mannætusvertingjar. Aldrei til nema fyrir tilverknað
ímyndunaraflsins.
Goðsögur
Mannætumar
aldrei til
Sennilega hefur mannát aldrei um hann fyrst og fremst upp sjálf.
verið stundað reglulega nema í Skrýtin skepna, mannskepnan.
hugarheimi mannskepnunnar,
segja fræðimenn. Við getum _■,
varla ímyndað okkur verri ver- ,
knað eða ógeðslegri, - en hugs- Sjá Sunnudsgsblaðíð