Þjóðviljinn - 27.07.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 27. júlí 1988 169. töiublað 53. árgangur
Stóriðjuáform
Einkaframtak ráöherra?
OlafurRagnar Grímsson: Stefna iðnaðarráðherra í andstöðu við Alþýðubandalagið. Álver
sem huggun gegn gjaldþroti í útgerð og útflutningsiðnaði. Orkuverð ekki rœtt
ístjórn Landsvirkjunar. Samningur við útlenda auðhringi ekki rœddur íríkisstjórn
Fulltrúar Alþýðubandalagsins stakrar markaðsskrifstofu iðnað- lenda auðhringi hafi ekki verið
í stjórn Landsvirkjunar viidu að arráðuneytisins og Landsvirkjun- kynntar í ríkisstjórninní.
stefnan í raforkusölumálum yrði ar. Varaformaður Framsóknar- Á síðasta þingi hafði Friðrik
mótuð innan stjórnar stofnunar- flokksins hefur kvartað undan Sophusson iðnaðarráðherra
innar. Málinu var vísað til sér- því að samningaviðræður við er- frumkvæði að því að felld var
þingsályktunartillaga Alþýðu-
bandalagsins um að fram færi á
vegum alþingis úttekt á því
hversu þjóðhagslega hagkvæmt
stórt álver við Straumsvík væri.
Sjá viðtal við Ólaf
Ragnar á síðu 7
Sirkusstemmning verður í bænum næstu vikurnar, en í gær var brautar. Sirkustjaldið tekur tæplega 3000 áhorfendur og er það bæði
spænska sirkusfólkið í óðaönn að koma sér fyrir neðan Suðurlands- regnhelt og eldtraust, að sögn Carlosar Raluy. Mynd: Ari.
Skemmtun
Sirkus
frá
Spáni
Verðafram í
september
Á túninu neðan Suðurlands-
brautar var Zirkus Raluy að
koma sér fyrir í gær og verður
fyrsta sýning næsta föstudags-
kvöld. í Reykjavík verður sýning
öll kvöld til 20. ágúst og tvisvar
um helgar, en síðan liggur leiðin
út á land.
Bræðurnir Carlos og Luis Ral-
uy frá Barcelona hafa ferðast
með sirkusinn um flestar álfur
síðastliðin 15 ár, en þetta er í
fyrsta skipti sem ísland er sótt
heim.
-mj
Verslunarmannahelgin
Útihátíð-
imar áriegu
Sex útihátíðiraðþessu sinni. Þjóðhátíð í
Eyjum ogFjör ‘88 á Melgerðismelum
mestsóttar
Finnur og ísbirnan en Finnur er aðal söguhetjan í Ævintýri á ísnum.
Kolbrún Erna Pétursdóttir og Árni Pétur Guðjónsson.
Leiklist
Leikur án orða
Nú um verslunarmannahelgina
verða haldnar sex útihátíðir víðs-
vegar um landið. í Atlavík,
Galtalækjarskógi, Vík í Mýrdal,
Bjarkarlundi, á Melgerðismelum
og einnig verður haldin Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum að vanda.
í Galtalæk, Vík í Mýrdal og í
Bjarkarlundi eru hátíðirnar með
rólyndislegu yfirbragði. Ekki er
gert ráð fyrir að mikils áfengis sé
neytt á þessum hátíðum og ein
þeirra, hátíðin í Galtalækjar-
skógi, er beinlínis bindindishátíð.
Hinsvegar er minna gert við því
að ölvunar gæti á öðrum hátíðum
um helgina.
Að sögn Flugleiða er mest
ásókn í Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum og á hátíðina Fjör ‘88 á
Melgerðismelum, en einnig virð-
ist nokkuð mikil ásókn vera í Atl-
avík.
Skemmtiatriði eru keimlík frá
einni hátíð til annarrar utan hvað
misjafnlega lokkandi hljóm-
sveitir virðast ráða nokkru um
það hvert yngri kynslóðin sækir.
Kraftasýningar eru á flestum hát-
íðanna.
Engin útihátíð er í næsta ná-
grenni við höfuðborgina en á síð-
ustu árum hafa verið haldnar úti-
hátíðir um verslunarmannahelg-
ar í Húsafelli og Þjórsárdal.
Fylgiskönnun
Boraarar
r ^i||
i eitt
prósent
Steingrímur
vinsœlli en Guðrún
hjá Kvennalista-
kjósendum
Borgarar fá minna fylgi en
Þjóðarflokkurinn og Flokkur
mannsins í nýrri Skáísskönnun
sem birt var á Stöð 2 í gær.
Kvennalistinn lækkar flugið held-
ur en Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur vinna nokkuð á.
Þar var einnig spurt um álit á
stjórnmálamönnum, og er
Steingrímur Hermannsson lang-
vinsælastur. Meðal stuðnings-
manna Kvennalistans virðist
Steingrímur í miklu meiri metum
en Guðrún Agnarsdóttir sem
fremst er í þeim flokki.
Sjá síðu 5
Alþýðuleikhúsið sýnir um
þessar mundir leikritið Ævintýri
á ísnum. Þetta er farandsýning
sem leikhópurinn hefur farið
með víðsvegar um landið við dág-
óðar undirtektir yngstu kynslóð-
arinnar.
í viðtali hér í blaðinu segir
Margrét Árnadóttir, leikstjóri og
sögumaður, frá undirbúningi
sýningarinnar, uppsetningunni,
söguþræðinum og viðtökunum
sem sýningin hefur til þessa feng-
ið.
Hún segir Alþýðuleikhúsið
vera að setja upp tvær nýjar sýn-
ingar um þessar mundir. Auðvit-
að séu húsnæðisvandræði
leikhússins bagaleg en samt sé
það „virkt sem aldrei fyrr!“
Sjá síðu 8 og 9