Þjóðviljinn - 29.07.1988, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 29.07.1988, Blaðsíða 32
Nýjar, vandaðar þáttaraðir í sumar. ■V' 'fáfi1-' ^ ÞÆTTIR í sumarskapi “¥* Lifandi og bráðskemmtilegur íslenskur skemmtiþáttur. Fjöldi gesta kemur í heimsókn. Þættimir eru fluttir á Hótel Island og sendir út beint á Stöð 2 og Stjömunni samtimis. -Föstudagar. Ruglukollar 4i (Marblehead Manor) Bandarískirþættir. Snarrugluð kímni og stráksskapur. Afar vinsælir þættir erlendis. -Laugardagar. Kona í karlaveldi (She's the sheriff) Hildy er engin venjuleg kona. Hún tók upp merki látins eiginmanns síns sem var lögreglustjóri. Hún gefur ekkert eftir og karlrembusvínin mega gæta sín. - Þriðjudagar. Ánýjum slóðum w (Aaron's way) Vinsæll fjölskylduþáttur. Fylgst er með Aron og fjölskyldu hans þegar þau segja skilið við lifnaðarhætti gamla tímans og þurfa að aðlagast nýjum háttum. -Sunnudagar. Kataog Allí J* (Kate and Allie) Þær eru einstæðar mæður sem hafa nýlega gengið í gegnum skilnaði. En þær láta ekki að sér hæða. Taka höndum saman og búa sér sameiginlegt heimili. Kata vinnur á ferða- skrifstofu en Allí sér um heimilishaldið og drífur sig í skóla. -Miðvikudagar. Dómarínn (Night Court) ‘ Næturvaktin reynist oft erfið hjá dómaranum Harry Stone, en hann leysir hin ólíklegustu mál á hinn ólíklegasta hátt. - Laugardagar. Áfram hláturl- (Carry on Laughing) ’ Bráðskemmtilegir þættir. Ýmsir gullmolar úr gömlu, góðu Áfram myndunum. Allir muna hina skrautlegu og óforbetranlegu leikara myndanna. - Mánudagar. ÞÆTTIR Morðgáta 4 (Murdershewrote) ■ Sívinsælir þættir. Þegar Jessica Fletcher er á svæðinu er stutt í magnaða spennu. - Fimmtudagar. Víetnam FramhaldsmVndafiokkur í 10 þáttum byggður á sannsögulegum atburðum. Þetta er saga hinnafjölmörgu hermannasem börðust í Víetnam og guldu jafnvel sumir fyrir mistök annarra. Raunsannur og mjög vel gerður þáttur. -Sunnudagar. Pilsaþytur^ (Legwork) Hin unga og fallega Claire er einkaleynilög- regla. Hún vílar ekki fyrir sér hlutina. En hún er síblönk og verður að leita ýmissa ráða. - Miðvikudagar. Leyndardómar og ráðgátur \ Mögnuð þáttaröð. Tekin eru fyrir mál sem vakið hafa athygli almennings og jafnvel óhug. Óupplýstir glæpir, dularfull'mannshvörf, furðuleg náttúrufyrirbrigði, skrímsli, draugar o.m.fl. Mjög forvitnilegir þættir. -Miðvikudagar. Spegilmyndin \ (Le regard Dans le Miroir) v Æsispennandi, ný frönskframhaldsmynd í 4 hlutum. Myndin hefur hlotið frábæra dóma erlendis, sem mögnuð spennumynd. - Mánudagar. MENNINGAR-OG FRÆÐSLUÞÆTTIR Viðskiptaheimurinn m (Wall Street Journal) Þekktirfjármálasérfræðingarfjalla um það helsta sem upp kemur í efnahagsmálum heimsins á hverjum tíma. Þættirnir eru sýnir á Stöð 2 í sömu viku og þeir eru framleiddir. Afar athyglisvert efni. - Fimmtudagar, endursýndir í hádeginu á laugardögum. Listamannaskálinn # (The South Bank Show) Nýir, breskir þættir um listir og listamenn. I þessum þáttum er m.a. ævisaga Andy Warhol, upptökur af söng Maríu Callas, viðtöl við Eric Clapton, Doris Lessing og fleiri. - Laugardagar. Ópera mánaðarins % Óperuflutningur verður nú mánaðarlega á dagskrá Stöðvar 2 í þáttunum Menning og listir. Um er að ræða vandaðan flutning, heimsþekkta söngvara og stjórnendur. Á næstunni munum við m.a. sýna Don Giovanni, II Trovatore, Madame Butterfly. -Sunnudagar. Mannslíkaminn # (Living Body) Mjög vel gerðir þættir þar sem fjallað er um mannslíkamann, líffæri hans, líkamshlutaog starfsemi. Fyrsti þátturinn fjallar um hita- og kuldaþol og aðlögun á breytilegu hitastigi. - Miðvikudagar. MountbattenS Vandaður sjónvarpsmyndaflokkur í 7 þáttum um Lord Louis Mountbatten sem var síðasti landstjóri Breta á Indlandi. - Miðvikudagar. Fjalakötturínn e Við endursýnum nú á síðkvöldum margar af perlum Kvikmyndaklúbbs Stöðvar 2. -Mánudagar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.