Þjóðviljinn - 30.07.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 30.07.1988, Side 1
Varmá Allsherjar skólpræsi Iðnaðarúrgangi og skólpi dœlt látlaust íána. Lífríkið í hœttu. - Það eru engar reglur til hér á landi um leyfilegt magn meng- andi efna sem renna í ár, þannig að það er ekki von á góðu, eins og raun ber vitni í Varmá í Ölfusi, segir Birgir Þórðarson hjá Holl- ustuvernd ríkisins í Þjóðvilianum í dag. Birgir segir að ýmsum úrgangs- efnum sé veitt eftirlitsiaust í ána og lífríki árinnar sé veruleg hætta búin af. Mikið magn af mengandi efn- um, lífrænum sem ólífrænum, rennur reglulega í ána. Þar á meðal er úrgangsefnum frá ullar- þvottastöð Sambandsins í Hvera- gerði veitt tvisvar til þrisvar sinn- um í viku í ána, sem veldur því að magn fosfórs og köfnunarefna í ánni er langt umfram viðmiðun- arstuðla sem í gildi eru á hinum Norðurlöndunum. Sjá síðu 3 Ríkisstjórnin Hótað á báðabóga Skoðanakönnunin í vikunni gerir kosningar líklegri en áður. í Innsýn er athugað hvað stendur á bakvið hótanir stjórnarflokk- anna hvers í annars garð. Eru gíf- uryrðin innantóm eða stendur eitthvað að baki þeim?_ Sjá Innsýn síðu 7 Verslunarmannahelgin Vegir liggja tii allra átta Helgarveðrið mun væntanlega leika við þá sem eru á faraldsfæti um verslunarmannahelgina. Mikill straumur bfla var á öllum helstu þjóðvegum í gær. Að sögn mótshaldara virtist fjöldi gesta strax í gær lofa góðu um fram- haldið á flestum útihátíðum. Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum virtist ætla að draga að sér flesta gestina að venju. Sjá síðu 5 Æskulýðurinn í fullum herklæðum og tilbúinn að halda á vit ævintýranna um verslunarmannahelgina. Þessi æskumenni við Umferðar- miðstöðina í gær voru komin í hörkustuð og tilbúin að leggja í hann. Mynd: Ari. Indverskt Víetnam? Um þessar mundir er eitt ár liðið frá því indverskt herlið steig á land á Srí Lanka til þess að „gæta friðar“. Þetta var í sam- ræmi við samkomulag ráða- manna í Nýju-Delhi og Kól- ombó. Áttu Indverjarnir aðeins að dvelja skamma hríð á eynni og gæta þess að sinhalesar í stjórnar- — hernum níddust ekki á tamflum. Raunin varð sú að „friðargæslu- liðið“ tók að sér að brjóta helstu uppreisnarhreyfingu tamfla, Frelsistígrana, á bak aftur og sér ekki fyrir endann . á þeim ósköpum. Sjá síðu 12 \ Þingvellir Framtíðin mörkuð Skemmdir á gróðri og minjum vegna mikils ágangs Eftir þriggja ára vinnu við að létta umferð af þinghelginni í að vera óáreyttur og til stendur rannsóknir og skipulag liggur nú Almannagjá og næsta nágrenni. að byggja veglega fræðslu- og fyrir stefnumörkun Þingvalla- Þar er gróður orðinn niðurtrað- þjónustumiðstöð við Kárastaða- nefndar um framtíðarskipulag kaður og búðarústir liggja undir stíg. þjóðgarðsins á Þingvöllum. skemmdum, ef umferð verður Til verndar náttúru og sögu- ekki sveigt hjá þeim. -—--- legum minjum er talið aðkallandi Veitingarekstur í Valhöll fær Sjá síðu 8

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.