Þjóðviljinn - 09.08.1988, Síða 3
Svavar Gestsson alþm.
Flugvöllinn
burt
Þingsályktunartillaga
þess efnisflutt í byrjun
nœsta Alþingis
Þegar þing kemur saman í
haust mun Svavar Gestsson
alþingismaður Reykvíkinga flytja
þingsályktunartillögu þess efnis
að flugvöllurinn í Rcykjavík verði
fluttur I burt af öryggisástæðum
og einnig hvað það kostar að
flytja hann frá núverandi stað.
Að sögn Svavars Gestssonar er
brýnt í ljósi síðustu atburða að
gera viðeigandi ráðstafanir strax
til að koma ferjufluginu á annan
flugvöll en Reykjavíkurflugvöll
vegna þeirrar hættu sem af því
flugi stafar, sem og öðru flugi
svona nálægt íbúðarhverfum.
Svavar sagði að í þingsályktunar-
tillögunni yrði ekki bent á neinn
sérstakan stað sem gæti komið í
staðinn fyrir Reykjavíkurflugvöll
en nauðsynlegt væri að huga vel
að öllum þeim kostum sem fyrir
hendi væru fyrir annan flugvöli.
-grh
FRETTIR
Birkidauðinn
Þórsmörk sker sig úr
Astand skóglendis í Þórsmörk
er miklu verra en annars stað-
ar um þessar mundir. Stað-
reyndin er sú að birkidauða varð
vart víða annars staðar sunnan-
lands og vestan á árunum 1984 og
1985 og hefur ekki enn tekist að
finna skýringu á honum, sagði
Jón Gunnar Ottósson, líffræðing-
ur hjá Skógrækt ríkisins, í sam-
tali við Þjóðviljann.
Að sögn Jóns Gunnars, sem nú
vinnur að rannsóknum á íslenska
birkinu ásamt hópi annarra vís-
indamanna, er víðar farið illa
með birkiskóga en í Þórsmörk.
„Átroðningur er talsverður í
uppsveitum Árnessýslu en þó
hefur ástandið þar skánað frá því
er það var verst. Tíðarfar ræður
ákaflega miklu um afkomu og ævi
birkitrjáa, t.d. verður birki á
Vestfjörðum ekki nema þetta 30-
50 ára á meðan það nær 80-120
ára aldri á Norður- og Austur-
landi. Við verðum að bíða fram á
haustið eftir niðurstöðum úr
þeim rannsóknum sem ég er að
gera.“
Ingvi Þorsteinsson hjá RALA
segir að hægt sé að bjarga skóg-
lendinu í Þórsmörk þótt ekki
komi þjóðgarður til. „Það sem
skiptir mestu máli nú er að farið
verði að huga að því að koma á
ítölu á ferðamenn þarna yfir
mesta álagstímann. Hitt er rétt að
það kom fram tillaga á síðasta
þingi Náttúruverndarráðs um að
vinna beri að því að gera Þórs-
mörk að þjóðgarði."
Sjúkraflug
Flugstjórinn
átti leið hjá
Ætlaði að ná í reiðhjól stráksins út á völl en
lenti í sjúkraflugi inn að Öskju
Alaugardaginn fór þyrla Land-
helgisgæslunnar í tvo sjúkra-
leiðangra, annan inn að Öskju og
hinn vestur á Barðaströnd. Und-
anfarið hefur reynst erfitt að
manna þyrlurnar til að sinna
allra nauðsynlegasta fluginu
Loðna
Færeyingar
fiska
Landhelgisgœslan: Fimm
skip á heimleið með
fullfermi
Ieflhiitsflugi TF Sýnar, Fokkerflu-
gvélar Landhelgjsgæslunnar í gær
sáust fimm færeysk loðnuskip á
heimleið með fullfcrini af loðnu, hátt
í 2 þúsund tonn hvert skip. Þá voru
tvö færeysk loðnuskip á veiðum
Grænlandsmegin við miðlínu.
Að sögn Berents Sveinssonar hjá
Landhelgisgæslunni sáu Gæslu-
menn einnig þrjá borgarísjaka á
loðnumiðunum þama norður frá
sem geta verið hættulegir skipum.
Fyrsta íslenska skipið, Hólmaborgin
frá Eskifirði, hélt á miðin í gær.
Norðmenn eru famir út úr land-
helginni; þeir höfðu fengið leyfi til
að veiða 40 þúsund tonn af loðnu en
fundu enga.
-grh
Að sögn Þórodds Þórodds-
sonar hjá Náttúruverndarráði er
ekkert farið að huga að þessari
tillögu sem samþykkt var á síð-
asta þingi ráðsins. „Landgræðsl-
an er nú að semja við bændur um
að friða svæðið frekar fyrir beit,
um annað veit ég ekki. Þessi til-
laga sem samþykkt var á síðasta
þingi heíur komið fram áður og
ég tel líklegt að hún verði skoðuð
á næsta ári.“
Tillagan um Þórsmörk var svo-
hljóðandi: „SjöttaNáttúruvernd-
arþing íslands skorar á stjórnvöld
að beita sér fyrir því að þjóðgarði
verði komið upp í Þórsmörk.“
-gís.
Mikill erill var í gjaldeyrisdeildum bankanna í gær. Kröfur atvinnurekenda um gengisfellingu og almennar
umræður um að gengisfelling sé á næsta leyti hefur rekið á eftir þeim sem hyggja á langferð að sækja
skotsilfrið hið fyrsta. Mynd: E.ÓI.
Seðlabankinn
Gjaldeyrisútstreymi
eðlilegt
Sigurður Örn Einarsson, Seðlabanka: Tœplega merkjanleg aukningí
eftirspurn eftirgjaldeyri. Seðlabankinn vakinn ogsofinnyfir
breytingum á gjaldeyrissölunni
vegna þeirrar deilu sem flug-
mennirnir eiga nú í við ráðuneyt-
ið. En betur fór en á horfðist á
laugardaginn.
Einn af flugmönnum Gæslunn-
ar, sem nú er reyndar í löglegu og
fyrirframákveðnu sumarfríi, átti
leið niður á flugvöll til þess að ná í
reiðhjól stráksins síns sem hann
hafði skilið þar eftir. Hann vissi
ekki fyrri til en hann var kominn
upp í þyrlu og á leið inn að Öskju í
sjúkraleiðangur. Hann fór einnig
í seinni leiðangurinn á Barðast-
röndina en þar var um mjög al-
varlegt tilfelli að ræða. Ekki er
víst að Landhelgisgæslan hefði
getað sinnt þessu mikilvæga
sjúkraflugi ef strákurinn hefði
ekki skilið eftir hjólið sitt niðri á
flugvelli og pabbinn verið svo
græskulaus og velviljaður að ná í
hjólið fyrir strákinn.
Að sögn Gunnars Bergsteins-
sonar forstjóra vildi svo vel til að
einn flugstjóranna var í öðrum
erindagjörðum þarna niðri á velli
þegar kallið kom og hann brást
vel við þótt hann væri í sumarfríi.
„Ég skal ekki segja hvort við
hefðum lent í erfiðleikum ef hann
hefði ekki verið þarna, ég held nú
ekki,“ sagði Gunnar.
Að sjúkraflug Landhelgisgæsl-
unnar skuli rekið með slíkri
slembilukku eins og virðist eiga
sér stað þessa dagana er ekki
þegnum þessa iands né nokkurs
annars bjóðandi. -gís.
Starfsmenn Seðlabankans hafa
ekki merkt að neinu ráði
aukna ásókn í erlendan gjaldeyri
á undanförnum dögum þrátt fyrir
sífellt þyngri kröfur forsvars-
manna flskvinnslunnar um geng-
isfellingu og almenna spádóma
um að gengisfelling sé á næsta
leyti. í Seðlabankanum er þó
fylgst grannt með gjaldeyrisút-
streyminu og þar eru menn við-
búnir að grípa í taumana ef útlit
er fyrir að „svarti miðvikudagur-
inn“ 25. maí í vor endurtaki sig.
- Það eina sem við verðum var-
ir við er að fólk sem ætlar að ferð-
ast tekur gjaldeyrinn um leið og
það getur, sagði Sigurður Örn
Einarsson í deild erlendra við-
skipta í Seðlabankanum.
- Við fáum tölur daglega frá
bönkunum og þeir hafa ekki ver-
ið að kaupa gjaldeyri af okkur,
sem sýnir ljósast hvert útstreymið
er, sagði Sigurður.
Að sögn Sigurðar hefur Seðla-
bankinn heimild til að fella gjald-
eyrisskráningu, sýnist ástæða til,
sem leiðir sjálfkrafa til þess að
gjaldeyrissala stöðvast. - Venju-
lega hefur það verið þannig að
þegar sala hefur verið stöðvuð er
það gert í samráði við viðkom-
andi ráðherra eða ríkisstjórnina í
heild, sagði Sigurður.
Landhelgisgœslan
Deilt um skatt á dagpeninga
Flugmenn Gœslunnar vilja halda sömu launakjörum og aðrir flugmenn.
Fjármálaráðuneytið: Óskattlagðir dagpeningar eru lögbrot
Deilan á milli flugmanna hjá
Landhelgisgæslunni og fjár-
málaráðuneytisins stendur um að
þeir vilja fá sömu laun og aðrir
flugmenn í landinu og hafa sett
fram sömu kröfur og flugmenn
hjá Flugleiðum fengu í gegn eftir
að bráðabirgðalögin gengu í
gildi. Krafa þeirra um að þurfa
ekki að borga skatt af dagpening-
unum virðist vera helsti ást-
eytingarsteinninn. Fjármálar-
áðuneytið hefur alveg frá því í
vetur tekið illa í þessa kröfu og á
laugardaginn kváðu starfsmenn
þess upp úr með að skattfrjálsir
dagpeningar væru lögbrot.
Þar með er komin opinber yfir-
lýsing um það að samningar Flug-
leiða við flugmenn sína, þar sem
þetta ákvæði er m.a. inni í samn-
ingnum, séu ólöglegir. „Þetta
kemur manni mjög á óvart og allt
frá því í febrúar í vetur hefur eng-
inn haft orð á því af hálfu við-
semjenda okkar að slíkt væri ó-
löglegt. Við höfum staðið í samn-
ingum við þessa menn allan
þennan tíma og svo kemur þetta
eins og köld vatnsgusa framan í
mann í fréttum um helgina. Ég er
farinn að halda að ríkið vilji hafa
okkur á lélegra kaupi en flug-
menn fá almennt í landinu. Við
höfum alltaf fylgt þeim hvað
launakjör varðar og það er ekki
lengra síðan en fyrir 2-3 árum að
annað hljóð fór að heyrast úr
fj ármálaráðuneytinu. Við erum
orðnir langþreyttir á þessu. Mað-
ur gæti haldið að við værum
eitthvað lélegri starfskraftar nú
en áður eða að við inntum okkar
verk ekki eins vel af hendi og
áður. Eitthvað hlýtur að valda
þessu breytta viðhorfi hjá ríkinu í
okkar garð,“ sagði einn flug-
manna Gæslunnar í samtali við
blaðið.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er menn enn að funda í
þessari deilu en iítið virðist
ganga. Á meðan gengur illa að
manna þyrlur Gæslunnar til
nauðsynlegasta sjúkraflugs eins
og kemur fram annars staðar hér í
blaðinu. -gís-
Þrlðjudagur 9. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3