Þjóðviljinn - 09.08.1988, Blaðsíða 8
MINNING
FLÖAMARKAÐURINN
Tröppur yfir girðingar
til sölu. Uppl. I síma 91-40379.
Ford Escort GL 1300
Fallegur, vel útlítandi Ford Escort
GL 1300 árg.’83 til sölu. Ekinn
52.000 km. Ný sumardekk og ágæt
nýleg vetrardekk fylgja. Útvarp. Bíll
ítoppstandi. Verðtilboö. Upplýsing-
ar í síma 681310 eða 681331 á
daginn.
Húsnæði óskast
Ung og reglusöm snyrtileg og reyk-
laus hjón með 2 börn, 8 og 11 ára,
óska eftir að taka á leigu 4-5 her-
bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs-
ingar í síma 16249 á kvöldin og
11640 á daginn. Margrét.
Ritvél óskast
Óskum eftir að kaupa góða en
ódýra rafmagnsritvél. Hringið í síma
681310 eða 681331 á daginn.
Óska eftir
fólksbílakerru
á góðu verði. Upplýsingar í síma
71232.
Til sölu
4 sumardekk á felgum undir Tra-
bant. Upplýsingar í síma 18648.
Hraðsuðuketill
Óskum eftir að fá nothæfan hrað-
suðuketil gefins eða mjög ódýrt.
Upplýsingar í síma 681331 eða
681310.
Viltu fara til Spánar
(Barcelona)?
Ég er með húsnæði í Barcelona í
skiptum fyrir húsnæði á íslandi eða
upp í leigu. Má vera hjá fjölskyldu-
fólki. Heppilegt fyrir fólk sem vill
læra spænsku. Ég heiti Jordi og er
að læra jarðfræði við Háskóla Is-
lands. Get kennt spænsku ef fólk
vill. Upplýsingar í síma 625308 eftir
kl. 21.00.
Dýravinir athugið!
Fallegur og vel vaninn kettlingur
fæst gefins. Algjört skilyrði að kett-
lingurinn fari á gott heimili þar sem
hugsað verður vel um hann. Upp-
lýsingar í síma 83119.
Kettlingar gefins
Mjúkir, elskulegir 8 vikna kettlingar
fást gefins. Sími 21903 eftir kl.
17.00.
Uppþvottavél til sölu
Nýyfirfarin uppþvottavél til sölu.
Verð kr. 10.000. Hornsófi óskast á
sama stað. Upplýsingar í sima
28321.
Til sölu
2 sæta svefnsófi til sölu. Upplýsing-
ar í síma 42787 eftir kl. 18.00.
Dúkkuvagn
Óska eftir vel með förnum dúkku-
vagni handa 6 ára stelpu. Upplýs-
ingar í síma 672143 eftir kl. 19.00.
Borðstofuborð og
10 gíra reiðhjól
Til sölu stórt, antik borðstofuborð
og mjög vel með farið 10 gíra DBS
kvenreiðhjól. Upplýsingar í síma
20292.
Tak eftir
Ef þú átt í fórum þínum gamlan vin
sendibifreið sem þú vilt endilega
losna við hið fyrsta fyrir lítið sem
ekkert þá hafið samband. Bifreiðin
má vera vélarlaus. Ég bíð við
símann sem hefur númerið
672378. Sigurbjörn.
Tanzaníukaffi
Gefist áskrifendur að Tanzaníukaff-
inu í síma 621309 þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 13-22. Askrif-
endur geta sótt kaffið á sama tíma.
Fataskápur óskast
til kaups á sanngjörnu verði. Hring-
ið í síma 22507.
Nýlegt leðursófasett
3+1+1 til sölu á kr. 50.000. Upp-
lýsingar í síma 15467 eftir kl. 18.00.
Þarf að losa mig við
2 klósett og vask á fæti. Hvort-
tveggja notað. Upplýsingar í síma
40580.
Til sölu
neðri skápar úr eldhúsinnréttingu,
vaskur og blöndunartæki. Verða
ca. 10.000. Upplýsingar í síma
18138.
Subaru sæti
vantar í '80 árgerð af Subaru stati-
on. Ökumannssæti úr '80-’83 ár-
gerðum ætti að passa. Upplýsingar
í síma 621309.
Til sölu
er þvottavél, frystikista og ónotuð
útihurð. Upplýsingar í síma 15989.
Tll sölu vegna flutninga
mjög fallegt ítalskt borðstofuborð
og stólar. Einnig nokkur málverk og
fleiri listaverk. Upplýsingar í síma
29105.
Gólfteppi til sölu
Ljóst gólfteppi til sölu. Upplýsingar í
síma 30052.
íbúð óskast
1 -2 herbergja íbúð sem leigist ódýrt
óskast sem fyrst í 6 mánuði. Örugg-
um mánaðargreiðslum og góðri
umgengni heitið. Upplýsingar gefur
Ingibjörg í síma 687122.
Ódýr Skoda-vél til sölu
Vil selja vél í góðu lagi í Skoda 120
árgerð '82, keyrð 40.000 km. Vil
einnig selja ýmsa aðra hluti í sama
bíl s.s. bretti, hurðir, sæti, húdd,
rúður, dekk á felgum og fleira. Upp-
lýsingar í síma 91-43452 eftir kl.
17.00.
Froskbúningur
til sölu. Upplýsingar í síma 29892.
fbúð óskast
Kennari og fóstra óska eftir 2-3 her-
bergja íbúð helst miðsvæðis í
Reykjavík. Greiðslugeta 30.000 á
mánuði. Algjör reglusemi. Upplýs-
ingar í síma 29892 á kvöldin.
Amstrad tölva
Lítið notuð Amstrad tölva PC 1512
með litaskjá til sölu. Upplýsingar í
síma 13527.
Bíll á vergangi - bíll óskast
Óska eftir að kaupa notaðan bíl
skoðaðan eða í skoðunarástandi.
Staðgreitt eða tvískiptar greiðslur.
Verðhugmynd: Hleypur á einhverj-
um þúsundum. Sími 13846.
Ný hljómflutnings-
tækjasamstæða TCK 2344
tvöfalt segulband, útvarp og plötu-
spilari. Upplýsingar í síma 38587.
Herbergi með eldunaraðstöðu
Róleg, eldri kona óskar eftir her-
bergi með eldunaraðstöðu til leigu.
Upplýsingar í síma 18281.
Skrlfborð
Dökkt, vel með farið skrifborð fæst
fyrir lítið. Sími 17102.
Auglýsið í Þjóðviljanum
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Ritari óskast á bókasafn frá 1. september 1988.
Ensku- og vélritunarkunnátta áskilin.
Upplýsingar gefa bókaveröir í síma 196001264
frá kl. 8- 16.
Þér guðir sem ráðið
brunnum og geislum:
megi líf mitt líkjast þessu
niðandi regni,
tœru og svölu,
þessum smáu dropum sem
brynna vorfrjóum dal
og laufkvikum hlíðum,
falla á tún bóndans,
vœta bert andlit örœfalands
og glitra um stund í hári
lítilla barna.
Þegar Ólafur Jóhann Sigurðs-
son er kvaddur fyrir aldur fram
finnst manni hálfvegis eins og
heilt tímabil sé liðið undir lok,
heil kynslóð sé kvödd. Það féll í
hans hlut öðrum fremur að færa
annál síðustu áratuga; ekkert
skáld hefur túlkað skýrar lífs-
vanda þess fólks sem er vaxið upp
í gamla bændasamfélaginu og
komið til manndómsára þegar sú
holskefla reið yfir sem gerbreytti
ásýnd þjóðfélagsins á örfáum
árum. Sýn Ólafs á íslenskt
þjóðfélag eftirstríðsáranna ein-
kennist af mikilli bölsýni. Því fór
þó fjarri að hann sæi sveitalíf
uppvaxtarára sinna í neinum
rómantískum hillingum. Til þess
var honum hin harða lífsbarátta
og misrétti í of fersku minni.
Hann boðaði ekki afturhvarf til
gamalla lífshátta þótt honum
hugnaðist ekki það siðferðilega
rótleysi sem þessar breytingar
höfðu í för með sér. Fulltrúar
gamla tímans í sögum hans eru
engar einhliða málpípur höfund-
ar, engarsögu-hetjur, heldurein-
att hálfbrjóstumkennanlegir eins
og séra Böðvar í þeirri snjöllu
sögu sem við hann er kennd og
Páll Jónsson blaðamaður í Gang-
virkissögunum. Þær sögur hljóta
að teljast metnaðarfyllsta verk
Ólafs Jóhanns. Ekkert annað
verk í íslenskum bókmenntum
setur sér það markmið að komast
til botns í þjóðfélagsþróun síð-
ustu áratuga, einhverjum afdrif-
aríkustu tímum sem gengið hafa
yfir þessa þjóð. Jafnframt verður
þetta stóra verk til þess að tengja
bækur Ólafs í samfelldari og
skiljanlegri heild, jafnt sveitasög-
urnar og Ijóðin sem Hreiðrið og
bölsýnar þéttbýlissögur. Auðvit-
að hafa verk Ólafs víðari skír-
skotun, fjalla jafnhliða um vanda
mannsins í heiminum, Páls Jóns-
sonar í veröldinni, á viðsjárverð-
um tímum, „öld hrævarelds og
grímu“.
í vitund Ólafs Jóhanns var
skáldskapariðjan framlag í þjón-
ustu lífsins, eins og tilvitnunin hér
að ofan er glöggt dæmi um. Þessi
ábyrgðartilfinning birtist ekki síst
í vönduðum og nostursamlegum
vinnubrögðum. Mér eru minnis-
stæð handritin sem hann sendi frá
sér til prentunar, þar sem allt var
þaulunnið í minnstu smáatriðum
og ekki stafkrók breytt upp frá
því. Allt vélritað aftur og aftur á
gömlu ferðaritvélina sem var orð-
in lúin af áralöngum barningi’.
Við hana sat hann eftir því sem
heilsan leyfði. Skáldæðin var
síður en svo þorrin þrátt fyrir
margar sjúkdómslegur á síðustu
árum. Ólafur var með nýja sögu í
takinu og samtímis að leggja síð-
ustu hönd á nýja ljóðabók, átti
eftir að fullvinna tvö ljóð; fýrr
skyldi hún ekki frá honum fara.
Fyrir nokkrum mánuðum sendi
hann mér í bréfi nokkur þessara
ljóða og mér er til efs að hann hafi
nokkurn tíma ort jafnVel og þessi
síðustu misseri.
Ólafur Jóhann Sigurðsson var
einlægur vinur vina sinna. Svo-
lítið tortrygginn á ytra borði eins
og oft vill verða um menn sem
sitja svo löngum stundum ein-
angraðir við vinnu sína. En undir
þeirri skel var mjög grunnt á þá
þætti sem voru ríkastir í fari hans,
mannúð, velvild og smáglettni og
djúpan mannskilning. Um þessa
eðliskosti þarf ekki að fjölyrða,
svo ljóslifandi sem þeir birtast í
öllum skáldskap hans.
Lífsverk Ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar var orðið mikið og
gott, en sjálfur þóttist hann eiga
margt ógert og fann að tíminn var
naumur.
Hönd þín er þreytt og önd
þín ekki síður.
Endalaus þögnin kann við
fáu svör.
Þér finnst sem tifið segi:
Tíminn líður!
Tak pennann, karl minn!
Senn mun Ijúka för!
Ólafur fann að hann hafði
skamman tíma til stefnu. Ekkert
hefði verið honum þungbærara
en að geta ekki skrifað lengur.
Afstaða hans til dauðans í sfðustu
ljóðunum einkenndist af æðru-
leysi og sátt.
Ekki verður Óiafs Jóhanns
minnst svo að nafn Önnu komi
ekki upp í hugann, svo nátengd
eru þau í vitund þeirra sem þeim
hafa kynnst. Samhentari hjón hef
ég varla þekkt, og það var Anna
sem bjó honum þau skilyrði að
geta helgað tíma sinn skáld-
skapnum í þeim mæli sem raun
bar vitni. Til hennar leitar hugur
okkar í dag í samúð og þökk.
Þorleifur Hauksson
Þegar skáld deyja og fiðla
þeirra hljóðnar verður líf okkar
sem eftir sitjum fátækara, undra-
veröld mannsandans hefur
smækkað. Aðrir deyja og lífið
heldur sinn gang: Ungir bændur
taka við að yrkja jörðina; sjó-
menn ráðast í auð rúm og verka-
fólk er ráðið í laus störf. Þótt ein-
staklinga sé sárt saknað, þá kem-
ur maður í manns stað.
En það kemur ekkert annað
skáld í stað þess sem kveður. Það
yrkir ekkert nýtt skáld óortu ljóð-
in þess látna, og hálfunnin skáld-
saga verður ekki kláruð af öðr-
um. Við hættum að bíða í eftir-
væntingu eftir nýju verki, því við
vitum að það verður aldrei skrif-
að. Með skáldi kveðjum við ekki
aðeins einstakling heldur ákveð-
inn heim sem við vorum þátttak-
endur í.
Andlegt ríkidæmi þjóðarinnar
er fátækara.
Ólafur Jóhann Sigurðsson er
allur. Skáld hins lygna Álfta-
vatns, lyngása og brokmýra og
nýgræðings í vorkaidri jörð, hef-
ur lagt frá sér pennann fyrir fullt
og allt. Þessi undursamlega
næmni á litbrigði hrjóstrugrar
jarðar, á ævintýrið og veruleik-
ann og mannlegan hjartslátt, sem
er allstaðar til staðar, er einstök í
íslenskum skáldskap.
Þótt Ólafur Jóhann hafi aldrei
verið tekinn í tölu þjóðskálda, þá
var þjóðin, örlög og hennar og
saga sífellt viðfangsefni hans.
Vonlaus barátta heiðarbúans
við náttúruöfl og fátækt, krepp-
an, rótleysið á mölinni og smán
hinnar svívirtu og sviknu þjóðar
ganga í gegnum skáldskap hans
eins og rauður þráður. Allt þetta
hjúpaði hann lýrískum undravef
íslenskrar náttúru. Hjá þjóðinni
sló hans hjarta, þar fann hann til,
hér tók hann afstöðu.
Ólafur Jóhann var jafnvígur á
skáldsögur, smásögur og ljóða-
gerð. Á seinni árum varð ljóðið,
sem farvegur ljóðrænnar tjáning-
ar og innileiks fyrirferðarmeira í
skáldskap hans. Sumir sakna þess
að Ólafur Jóhann skyldi ekki tak-
ast meira á við snarpar og hrika-
legar andstæður, en sennilega
hefur hin ljóðræna fiðla verið of
viðkvæm, vefjaþræðirnir of fínir
til að takast á við grófleik og
hrotta stríðandi tíma.
Ég kynntist manninum Ólafi
Jóhanni ekki fyrr en alllöngu eftir
að ég hafði þekkt skáldið Ólaf
Jóhann. Þá hafði hann í smíðum
skáldsöguna Seið og hélog og
ljóðabókin Virki og vötn lét hann
aldrei í friði, eins og hann sagði
mér. Um langan tíma hafði ekki
komið skáldsaga frá hendi Ólafs
og biðu lesendur hans fullir eftir-
væntingar eftir þessari nýju
skáldsögu. Útkoma hennar var
stórviðburður á íslenska bóka-
markaðnum. Þá var og skollinn á
heimur auglýsingaprjáls og fjöl-
miðlar vöktuðu hvert fótspor.
Þeir tímar, þegar jákvæð um-
sögn Kristins E. dugði til að selja
bók voru liðnir. Það var Ólafi
heitnum ekki auðvelt að laga sig
að þessum breyttu aðstæðum, en
útgerðin, eins og hann kallaði
það, tókst vel, móttökurnar voru
prýðilegar.
‘í framhaldi af þessu árang-
ursríka samstarfi var ákveðið að
gefa út heildarútgáfu af verkum
hans.
Á þessum árum áttum við sam-
an marga samræðustund þar sem
spjallað var um stjórnmál, útgáf-
umál, skáldskap og annað sem á
fjörur okkar rak.
Einu sinni spurði ég hann,
hvert verka sinna honum væri
kærast. Hann hikaði en svaraði
síðan eftir nokkra þögn. „Hreiðr-
ið - það stendur mér næst“. Það
mun þó vera „Bréf séra Böðvars"
sem er hans þekktasta verk inn-
anlands sem utan.
Ólafur Jóhann var sósíalisti að
lífskoðun sem ásamt því vega-
nesti sem kreppan og sérstakar
aðstæður heimsmála gaf ungum
mönnum mótaði afstöðu og lífs-
viðhorf hans.
Sigurganga nasismans í Þýska-
landi hlaut að kalla á menningar-
legt endurmat allra hugsandi
manna. Háskinn og hyldýpið
voru of nálæg til að hægt væri að
komast hjá því að taka afstöðu.
Þær vonir sem bundnar voru við
hin ungu Ráðstjórnarríki, sem í
senn var eina tilraunin til að gera
að raunveruleika síungan draum
mannkyns um stéttlaust alþýðu-
ríki og harðasta andstaðan við
Hitlers- Þýskaland hlaut að fylkja
mönnum saman til nvrrar Jifls-
skipunar.
Hann var félagi í Félagi bylt-
ingarsinnaðra rithöfunda og einn
af höfundum Rauðra penna.
Ekki er mér kunnugt um hvort
Ólafur Jóhann sat stofnfund Máls
og menningar þann 17. júní 1937,
en hann gerðist örugglega félagi
þar það sama ár og í félagsráði
var hann til æviloka.
All frá því að „Fjallið og
draumurinn" kom út árið 1944
hafa öll hans helstu verk að frá-
töldum tveimur ljóðabókum
komið út hjá Máli og menningu.
Fyrir hönd Máls og menningar
vil ég hér að ieiðarlokum þakka
Ólafi Jóhanni fyrir samfylgdina,
tryggð hans við félagið og frjótt
samstarf í hálfan fimmta áratug.
Sjálfur þakka ég honum og
konu hans Önnu Jónsdóttur ein-
læga og góða vináttu og mjög
ánægjuleg kynni.
Aðstandendum öllum votta ég
innilega samúð mína.
Þröstur Ólafsson
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 9. ágúst 1988