Þjóðviljinn - 09.08.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 09.08.1988, Page 9
I ÍÞRÓTTIR I kvöld Fótbolti Blkarkeppni kvenna, undanúrsllt: kl. 20.00 Stjarnan-ÍA kl. 20.00 Valur-KR 3. d.A kl. 20.00 Grindavík-Njarðvík 4. d.A kl. 20.00 Augnablik-Ægir 4.d.B kl. 20.00 Hveragerði-Fyrirtak 4.d.B kl. 20.00 Ármann-Skallagrímur 4.d.B kl. 20.00 Hvatberar-Vík. Ól. arssyni og þegar Valov ver, en efst til vinstri sést knötturinn stefna í markhorn Búlgara og annað mark landans staðreynd. Markvörður Búlgara ver hér vítaspyrnu Péturs Ormslevs og eins og sjá má þá er hann búinn að hreyfa sig frá marklínunni þegar Pétur skýtur. A innfelldu myndunum má sjá þegar brotið er á Sigurði Grét- W 1 - Fótbolti Léttleikandi landsliðið lak niður í lokin íslendingar komust Í2-0 en töpuðu samt, 2-3. Pétur Ormslev skoraði bæði mörkin en misnotaði síðan vítaspyrnu. Sigurmark Búlgara á síðustu mínútunni Það cr alveg ótrúlegt hvað íslenska landsliðið á erfitt með að halda fullri einbeitingu í 90 mínútur. Liðið lék oft stórskemmtilega knatt- spyrnu gegn Búlgörum á sunnudag og komst í tveggja marka forystu, 2-0, eftir aðeins 17 mínútna leik, en augnabliks einbeitingarleysi gerði útslagið og Búlgarir sigruðu 2-3. Þá fengu íslendingar mörg ágæt marktækifæri sem fóru forgörðum, þar á meðal vítaspyrnu. íslenskir vallargestir vita að þetta er ekki fyrsta vítaspyrnan í landsleik sem misnotast, og þeir vita einnig að þetta er ekki í fyrsta skipti sem úrslit leiksins ráðast á síðustu mínútunum. Hins vegar er þetta örugglega í fyrsta skipti í óraiangan tíma að íslendingar ná forystu 2-0 í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikur var mjög skemmtilegur og fengu áhorfend- ur talsvert fyrir aurana sína. Lið- in reyndu bæði að leika léttan fót- bolta og tókst bærilega upp. Strax á 7. mínútu náðu íslendingar for- ystunni en þá fengu þeir auka- spyrnu utan vítateigs Búlgara. Ragnar Margeirsson skaut föstu skoti á markið, Ulia Valov hélt ekki boltanum og Pétur fylgdi vel á eftir og lagði knöttinn í hornið. Leikurinn var áfram opinn og skemmtilegur eftir markið og bættu íslendingar öðru marki við eftir aðeins tíu mínútur. Aftur skoraði Pétur, að vísu með að- stoð eins Búlgarans, en markið var stórglæsilegt. Aukaspyma var dæmd á Búlgari vinstra megin við vítateig þeirra og bjuggust flestir við fyrirgjöf frá Pétri. Hann skaut hins vegar mjög föstu skoti í átt að markinu, boltinn skall £ höfuð eins leikmanna Búlgara, og í markhornið fjær. Óverjandi, og sannarlega óvænt- ur glaðningur í nepjunni í stúk- unni. íslendingar bakka Eftir annað markið komust gestirnir meira inn í leikinn og bökkuðu íslendingar of mikið í kjölfarið. Sjálfsagt hafa margir ætlað íslenskan sigur í höfn en sú von varð að engu á 36. mínútu þegar Búlgarir náðu að minnka muninn. Þá fengu þeir auka- spyrnu rétt utan vítateigs íslend- inga, vinstra megjn við miðju. Iordanov tók spyrnuna og lyfti knettinum yfir vamarvegginn, efst í nærhornið a la Maradona. Sérlega vel framkvæmt og mér er það til efs að Friðrik hefði getað varið þessa spyrnu. Á síðustu mínútu hálfleiksins munaði litlu að Pétri tækist að skora sitt þriðja mark er hann komst einn inn fyrir vörn Búlgara. Pétur gaf sér nóg- an tíma, Valov renndi sér til vinstri og Pétur skaut því til hægri, en Valov náði að verja með fætinum. Síðari hálfleikur var alls ekki eins skemmtilegur á að horfa og sá fyrri. Hafði vindur nú aukist til muna og erfiðara að halda bolt- anum en áður. íslendingar voru ekki eins sprækir og í fyrri hálf- leik og vakti athygli að Ragnari Margeirssyni var skipt útaf fyrir Halldór Áskelsson en Ragnar og Sigurður Grétarsson höfðu náð ágætlega saman fyrr í leiknum. Það var því ekki gegn gangi leiksins að Búlgömm tókst að jafna á 65. mínútu. Þá misstu ís- lendingar knöttinn á miðjum vallarhelmingi sínum, Mladenov lék á nokkra íslendinga og lét skot ríða af á vítateig - óverjandi fyrir Friðrik markvörð og boltinn festist í netinu. Víti í súginn Skömmu síðar fengu íslend- ingar kjörið tækifæri til að ná for- ystu á nýjan leik er þeir fengu vítaspyrnu. Halldór Áskelsson gaf þá skemmtilega sendingu á Sigurð Grétarsson sem var kom- inn í gott færi er honum var bmgðið. Pétur Ormslev fékk því færi á að skora „hat-trick“ en honum brást bogalistin og Valov varði. Að vísu var Valov löngu búinn að hreyfa sig frá marklín- unni þegar Pétur skaut en slíkt er alveg bannað í knattspyrnu. Aðeins mínútu fyrir leikslok munaði litlu að íslendingum tæk- ist að komast yfir þegar mikil þvaga myndaðist fyrir framan búlgarska markið. Búlgarir náðu að hreinsa frá og uppskáru mark í næstu sókn. Alexandronov, sem hafði komið inná sem varamað- ur, fékk þá háa sendingu fyrir markið og skallaði knöttinn efst í markið, yfir Friðrik sem hefði jafnvel átt að verja. Ömurlegur endir á ágætum landsleik enda vom áhorfendur mjög fúlir yfir úrslitunum. Eins og áður sagði þá léku ís- lendingar oft mjög vel í þessum leik. Fyrri hálfleikur var mjög skemmtilegur með marktækifæri á báða bóga en liðin slökuðu að- eins á í síðari hálfleik. Pétur Ormslev hefði með örlítilli heppni getað skorað fjögur mörk en varla verður við hann sakast því kappinn átti hreint ágætan leik. Þá var Sigurður Grétarsson mjög frískur í framlínunni og vörnin var ^ sterk mest allan leikinn. Sigurður Jónsson lék oft ágætlega á miðjunni en var engu að síður skipt út af fyrir Pétur Arnþórsson. -þóm Golf Sigurður bestur Nýbakaður íslandsmeistari í golfi, Sigurður Sigurðsson, sigr- aði í Coca Cola mótinu sem hald-. ið var á Hólmsvelli við Leim um helgina. Hann lék 72 holur á 306 höggum en Hilmar Björgvinsson, GS, varð annar á 309 höggum og Sveinn Sigurbergsson, GK, þriðji á 310 höggum. í kvennaflokki sigraði Karen Sævarsdóttir, GS, á 341 höggi, Steinunn Sæmundsdóttir, GR, varð önnur á 344 höggum og Alda Sigurðardóttir þriðja á 354 höggum. Ulfar Jónsson, fyrmm íslands- meistari, var ekki með á mótinu en hann tók um helgina þátt í Sviss Open. Hann stóð sig frá- bærlega á mótinu og hafnaði í 2,- 4. sæti eftir að hafa haft forystu um hríð. Úlfar lék á 298 höggum en sigurvegarinn, heimamaður- inn Borset, lék á tveimur höggur’ betur, eða 296 höggum. Þrlðjudagur 9. ógúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.