Þjóðviljinn - 09.08.1988, Síða 9
I ÍÞRÓTTIR
I kvöld
Fótbolti
Blkarkeppni kvenna, undanúrsllt:
kl. 20.00 Stjarnan-ÍA
kl. 20.00 Valur-KR
3. d.A kl. 20.00 Grindavík-Njarðvík
4. d.A kl. 20.00 Augnablik-Ægir
4.d.B kl. 20.00 Hveragerði-Fyrirtak
4.d.B kl. 20.00 Ármann-Skallagrímur
4.d.B kl. 20.00 Hvatberar-Vík. Ól.
arssyni og þegar Valov ver, en efst til vinstri sést knötturinn stefna í
markhorn Búlgara og annað mark landans staðreynd.
Markvörður Búlgara ver hér vítaspyrnu Péturs Ormslevs og eins og
sjá má þá er hann búinn að hreyfa sig frá marklínunni þegar Pétur
skýtur. A innfelldu myndunum má sjá þegar brotið er á Sigurði Grét-
W 1 -
Fótbolti
Léttleikandi landsliðið
lak niður í lokin
íslendingar komust Í2-0 en töpuðu samt, 2-3. Pétur Ormslev
skoraði bæði mörkin en misnotaði síðan vítaspyrnu.
Sigurmark Búlgara á síðustu mínútunni
Það cr alveg ótrúlegt hvað íslenska landsliðið á erfitt með að halda
fullri einbeitingu í 90 mínútur. Liðið lék oft stórskemmtilega knatt-
spyrnu gegn Búlgörum á sunnudag og komst í tveggja marka forystu,
2-0, eftir aðeins 17 mínútna leik, en augnabliks einbeitingarleysi gerði
útslagið og Búlgarir sigruðu 2-3. Þá fengu íslendingar mörg ágæt
marktækifæri sem fóru forgörðum, þar á meðal vítaspyrnu. íslenskir
vallargestir vita að þetta er ekki fyrsta vítaspyrnan í landsleik sem
misnotast, og þeir vita einnig að þetta er ekki í fyrsta skipti sem úrslit
leiksins ráðast á síðustu mínútunum. Hins vegar er þetta örugglega í
fyrsta skipti í óraiangan tíma að íslendingar ná forystu 2-0 í fyrri
hálfleik.
Fyrri hálfleikur var mjög
skemmtilegur og fengu áhorfend-
ur talsvert fyrir aurana sína. Lið-
in reyndu bæði að leika léttan fót-
bolta og tókst bærilega upp. Strax
á 7. mínútu náðu íslendingar for-
ystunni en þá fengu þeir auka-
spyrnu utan vítateigs Búlgara.
Ragnar Margeirsson skaut föstu
skoti á markið, Ulia Valov hélt
ekki boltanum og Pétur fylgdi vel
á eftir og lagði knöttinn í hornið.
Leikurinn var áfram opinn og
skemmtilegur eftir markið og
bættu íslendingar öðru marki við
eftir aðeins tíu mínútur. Aftur
skoraði Pétur, að vísu með að-
stoð eins Búlgarans, en markið
var stórglæsilegt. Aukaspyma
var dæmd á Búlgari vinstra megin
við vítateig þeirra og bjuggust
flestir við fyrirgjöf frá Pétri.
Hann skaut hins vegar mjög föstu
skoti í átt að markinu, boltinn
skall £ höfuð eins leikmanna
Búlgara, og í markhornið fjær.
Óverjandi, og sannarlega óvænt-
ur glaðningur í nepjunni í stúk-
unni.
íslendingar bakka
Eftir annað markið komust
gestirnir meira inn í leikinn og
bökkuðu íslendingar of mikið í
kjölfarið. Sjálfsagt hafa margir
ætlað íslenskan sigur í höfn en sú
von varð að engu á 36. mínútu
þegar Búlgarir náðu að minnka
muninn. Þá fengu þeir auka-
spyrnu rétt utan vítateigs íslend-
inga, vinstra megjn við miðju.
Iordanov tók spyrnuna og lyfti
knettinum yfir vamarvegginn,
efst í nærhornið a la Maradona.
Sérlega vel framkvæmt og mér er
það til efs að Friðrik hefði getað
varið þessa spyrnu. Á síðustu
mínútu hálfleiksins munaði litlu
að Pétri tækist að skora sitt þriðja
mark er hann komst einn inn fyrir
vörn Búlgara. Pétur gaf sér nóg-
an tíma, Valov renndi sér til
vinstri og Pétur skaut því til
hægri, en Valov náði að verja
með fætinum.
Síðari hálfleikur var alls ekki
eins skemmtilegur á að horfa og
sá fyrri. Hafði vindur nú aukist til
muna og erfiðara að halda bolt-
anum en áður. íslendingar voru
ekki eins sprækir og í fyrri hálf-
leik og vakti athygli að Ragnari
Margeirssyni var skipt útaf fyrir
Halldór Áskelsson en Ragnar og
Sigurður Grétarsson höfðu náð
ágætlega saman fyrr í leiknum.
Það var því ekki gegn gangi
leiksins að Búlgömm tókst að
jafna á 65. mínútu. Þá misstu ís-
lendingar knöttinn á miðjum
vallarhelmingi sínum, Mladenov
lék á nokkra íslendinga og lét
skot ríða af á vítateig - óverjandi
fyrir Friðrik markvörð og boltinn
festist í netinu.
Víti í súginn
Skömmu síðar fengu íslend-
ingar kjörið tækifæri til að ná for-
ystu á nýjan leik er þeir fengu
vítaspyrnu. Halldór Áskelsson
gaf þá skemmtilega sendingu á
Sigurð Grétarsson sem var kom-
inn í gott færi er honum var
bmgðið. Pétur Ormslev fékk því
færi á að skora „hat-trick“ en
honum brást bogalistin og Valov
varði. Að vísu var Valov löngu
búinn að hreyfa sig frá marklín-
unni þegar Pétur skaut en slíkt er
alveg bannað í knattspyrnu.
Aðeins mínútu fyrir leikslok
munaði litlu að íslendingum tæk-
ist að komast yfir þegar mikil
þvaga myndaðist fyrir framan
búlgarska markið. Búlgarir náðu
að hreinsa frá og uppskáru mark í
næstu sókn. Alexandronov, sem
hafði komið inná sem varamað-
ur, fékk þá háa sendingu fyrir
markið og skallaði knöttinn efst í
markið, yfir Friðrik sem hefði
jafnvel átt að verja. Ömurlegur
endir á ágætum landsleik enda
vom áhorfendur mjög fúlir yfir
úrslitunum.
Eins og áður sagði þá léku ís-
lendingar oft mjög vel í þessum
leik. Fyrri hálfleikur var mjög
skemmtilegur með marktækifæri
á báða bóga en liðin slökuðu að-
eins á í síðari hálfleik. Pétur
Ormslev hefði með örlítilli
heppni getað skorað fjögur mörk
en varla verður við hann sakast
því kappinn átti hreint ágætan
leik. Þá var Sigurður Grétarsson
mjög frískur í framlínunni og
vörnin var ^ sterk mest allan
leikinn. Sigurður Jónsson lék oft
ágætlega á miðjunni en var engu
að síður skipt út af fyrir Pétur
Arnþórsson. -þóm
Golf
Sigurður
bestur
Nýbakaður íslandsmeistari í
golfi, Sigurður Sigurðsson, sigr-
aði í Coca Cola mótinu sem hald-.
ið var á Hólmsvelli við Leim um
helgina. Hann lék 72 holur á 306
höggum en Hilmar Björgvinsson,
GS, varð annar á 309 höggum og
Sveinn Sigurbergsson, GK, þriðji
á 310 höggum.
í kvennaflokki sigraði Karen
Sævarsdóttir, GS, á 341 höggi,
Steinunn Sæmundsdóttir, GR,
varð önnur á 344 höggum og
Alda Sigurðardóttir þriðja á 354
höggum.
Ulfar Jónsson, fyrmm íslands-
meistari, var ekki með á mótinu
en hann tók um helgina þátt í
Sviss Open. Hann stóð sig frá-
bærlega á mótinu og hafnaði í 2,-
4. sæti eftir að hafa haft forystu
um hríð. Úlfar lék á 298 höggum
en sigurvegarinn, heimamaður-
inn Borset, lék á tveimur höggur’
betur, eða 296 höggum.
Þrlðjudagur 9. ógúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9