Þjóðviljinn - 09.08.1988, Síða 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Íran/Irak
Vopnahlé 20. ágúst!
Perez de Cuellar lætur það boð útganga að íranir og írakar skuli
hœtta hernaðaraðgerðum í lofti, láði og legi klukkan þrjú eftir
miðnœtti20. ágúst
r ,
Irönum og Irökum ber að hætta
öllum vopnaviðskiptum á
slaginu klukkan þrjú aðfaranótt
20. ágúst 1988. Þetta tilkynnti að-
alritari Sameinuðu þjóðanna, Ja-
vier Perez de Cuellar, í New York
í gærkveldi. Hann skýrði enn-
fremur frá því að hann hygðist
bjóða leiðtogum Irana og Iraka
að senda fulltrúa sína til Genfar
og hefja þar samningaviðræður
„augliti til auglitis“. Fyrsti fund-
urinn færi fram þann 25. ágúst og
myndi hann sjálfur stýra viðræð-
unum.
„Ég beini nú orðum mínum til
forystumanna íslamska lýðveld-
isins írans og lýðveldisins fraks
að virða í einu og öllu vopnahlé
og láta af hverskyns hernaðarað-
gerðum í lofti, láði og legi þegar
klukkan verður þrjú þann 20. ág-
úst 1988,“ sagði aðalritarinn á
fundi með fréttamönnum í gær.
Viðstaddir risu úr sætum og
fögnuðu ákaflega.
„Styrjaldaraðilar hafa full-
vissað mig um að þeir muni virða
þetta vopnahlé og fara eftir því
með hliðsjón af ályktun númer
598,“ bætti hann við og vísaði til
ályktunar Öryggisráðsins frá því í
fyrra um tafarlaust hlé á bar-
dögum. „Ríkisstjórnir íslamska
lýðveldisins írans og lýðveldisins
Iraks hafa ennfremur fallist á að
fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
ákveði hvaða dag og klukkan
hvað vopnahléð hefjist.“
Undanfarnar tvær vikur hefur
de Cuellar lagt nótt við dag í
friðarviðleytni sinni og hefur átt
tíða fundi með fulltrúum beggja í
New York, utanríkisráðherrun-
um Ali Akbar Velajatí frá íran og
Tareq Aziz frá írak. Og loksins er
útlit fyrir að honum hafi tekist að
bera ídæði á vopnin.
Umliðna daga höfðu viðræð-
urnar í New York einkum snúist
um það hvort friðarviðræður
valdsherranna í Bagdað og Te-
heran ættu að fara fram „augliti
til auglitis" eða hvort fulltrúar
Sameinuðu þjóðanna ættu að
ganga á milli með tilboð. írakar
kröfðust „beinna viðræðna" fyrir
vopnahlé en íranir sögðu þá
kröfu fjenda sinna vera „gersam-
lega óviðunandi vífilengjur."
Á laugardaginn dró Saddam
Hussein, hæstráðandi í Bagdað,
nokkuð í land. Sagði til greina
koma að fresta „beinum við-
ræðum“ þangað til eftir að sverð
væru slíðruð svo fremi íranir
settu fram tryggingar fyrir því að
þeir mættu þeim síðar „augliti til
auglitis." Daginn eftir gáfu íranir
eftir; til greina kæmi að funda
með erkifjandanum „Satan“
einsog ajatollah Khomeini nefnir
Hussein jafnan í ræðu og riti.
Reuter/-ks.
Javier Perez de Cuellar hefur unnið baki brotnu að því að íranir og
írakar fallist á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 598
um frið. Nú hefur hann uppskorið árangur erfiðis síns.
ÖRFRÉTTTIR ■■“
Neyðarástandi
var lýst yfir í Súdan í gær vegna
flóða í höfuðborginni Khartoum
og víðar í kjölfar gífurlegra rign-
inga á fimmtudag og föstudag.
Talið er að ein miljón manna hafi
misst heimili sín í höfuðborginni,
mestmegnis fátæklingar sem
bjuggu í hreysaþyrpingum út-
hverfanna. Fjölmargir hafa látið
lífið en stjórnvöld vilja ekki segja
hve margir. Neyðarástandið á að
vara í sex mánuði hið minnsta.
George Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
var sýnt banatilræði í La Paz, höf-
uöborg Bólivíu, í gær. Engan sak-
aði. Shultz var í bifreið sinni á leið
til fundar við gestgjafa sína þegar
fjarstýrð sprengja sprakk aftar-
lega í bílalest hans. Þrjár límú-
sínur skemmdust óverulega, þar
á meðal ökutækið er flutti Helenu
Shultz, eiginkonu utanríkis-
ráðherrans. Síðar í gær lýsti áður
óþekktur stjórnmálahópur til-
ræðinu á hendur sér, „Sveit Sím-
onar Bólivars." Enginn virðist vita
haus né sporð á þeim félags-
skap, hvorki í Bólivíu né utan.
Fjendurnir
í sunnanverðri Afríku, Angólu,
Namibíu og Suður-Afríku, féllust í
gær á að slíðra sverðin klukkan
15 næstkomandi mánudag. Því-
næst hefjist viðræður í Genf af
enn meiri krafti en fyrr. Það voru
fulltrúar Angólu, Suður-Afríku og
Kúbu sem greindu frá þessu í
gær. Þeir sögðust einnig hafa
ákveðið að veita Sameinuðu
þjóðunum langþráða heimild til
þess að hefja undirbúning sjálf-
stæðisyfirlýsingar Namibíu þann
fyrsta nóvember næstkomandi.
Aldursforseti
heimsins er kúbönsk heiðurs-
kona, frú Luisa Heredia Ruano,
en hún verður 117 ára gömul
þann 25. þessa mánaðar. Þessar
upplýsingar var að fá í kúbanska
dagblaðinu „Trabajadores" í
gær. Frú Ruano fæddist sem
sagt árið 1871! Hún er dóttir þel-
dökkrar ambáttar og átti sjálf eina
dóttur barna. Afkomendur henn-
ar eru nú 42 talsins. f heims-
metabók Guinnes er frönsk kyn-
systir frú Ruano sögð elst allra
mannskepna. En frú Calment,
sem býr í Arles, fæddist þann 21.
febrúar árið 1875. Hún er með
öðrum orðum „ekki nema“ 113
ára gömul.
í gœr var:
8.8788.
Madame Sheli: „Heppilegtfyrir rómantíska ást“
ótt það sé alkunna að mánu-
dagar eru til mæðu þá létu
vesturþýsk kærustupör það ekki
aftra sér frá því að ganga í það
heilaga í gær, þann áttunda átt-
unda ‘88. Þúsundir frímerkjas-
afnara ruddust inná pósthús í
smábæ einum til þess að verða sér
úti um stimpilinn 8888, þeir al-
hörðustu fengu 88888.
Um gervallt Vestur-Þýskaland
flykktust hjátrúarfullir elskendur
inná vígsluskrifstofur og létu
pússa sig saman. Sú saga hafði
nefnilega komist á kreik að 8888
væri til ótvíræðrar hjónabands-
sælu og gerði happatalan sú mun
Sameinuðu þjóðirnar hyggjast
beita sér fyrir stórátaki í rann-
sóknum og upprætingu á barna-
þrælkun, barnavændi og barna-
klámi. Þetta þrennt er talið eyði-
leggja líf miljóna barna víðsvegar
í heiminum.
Ásbjörn heitir maður Eide,
norskur að ætt og uppruna. Hann
er formaður starfsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna sem safnar upp-
lýsingum um og vinnur að útrým-
ingu þrælahalds í heiminum.
Hann sagði við fréttamenn í gær
að hópnum hefðu borist óyggj-
andi heimildir um barnasölu á
Haítí, í Bangladesh og Pakistan
auk fáeinna ríkja í Rómönsku
Ameríku sem hann vildi ekki
nefna.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hve viðamikið þetta vandamál er
nú,“ sagði Eide, „en það er eng-
um vafa undirorpið að barna-
vændi, barnaklám og barna-
þrælkun eiga sér stað víðsvegar í
heiminum.“
Hann kvað starfshóp sinn hafa
í hyggju að hrinda í framkvæmd
viðamikilli áætlun um útrýmingu
þessa þríeina ófagnaðar úr
heiminum. Þetta væri áætlun sem
tæki þrjú ár að framkvæma og
betur en að vega bara upp á móti
mánudagsmæðunni.
Vegna ofannefndrar mæðu
mánudaganna hefur hann óorð á
sér í hópi hjónaleysa. Fyrir vikið
eiga vesturþýskir vígslumenn ein-
att náðuga daga á mánudögum,
náðuga mæðudaga. En gærdag-
urinn var ekki náðugur heldur
réttnefndur mæðudagur. Fyrir
vígsiumenn.
Þeir urðu nefnilega að vinna til
miðnættis í gær og öll leyfi sem
hefjast áttu þann áttunda áttunda
voru ógilt. Alla jafna vinna
vígslumenn ekki nema 4-6 tíma á
yrði hafist handa eftir næstu ára-
mót. Aðaláherslan yrði lögð á að
afla upplýsinga og koma þeim til
Atvinna jókst nokkuð í aðildar-
ríkjum Evrópubandalagsins í
júni. Af þeim aragrúa sem enginn
vildi ráða i maímánuði fengu 55
þúsund manns eða 0,4 af hundr-
aði vinnu í júní. Fyrir vikið voru
„aðeins" 15,4 miljónir manna
atvinnulausar í EB-ríkjunum 12.
Þetta eru nýjar upplýsingar frá
Tölfræðistofnun EB, „Eurostat“.
Það er athyglisvert að frá ára-
mótum hefur atvinnuleysi aukist í
Danmörku og á ftalíu. Þessu er
þveröfugt farið um Bretland og
Spán. Þó hefur síðastnefnda ríkið
algera sérstöðu hvað þessa fé-
lagsmeinsemd áhrærir.
En lítum á tölurnar. Einsog sjá
má eru Grikkir ekki með á töfl-
unni en þeir kváðu nota aðrar
dag þótt þeir fái greitt fyrir 40
stunda vinnuviku.
Einhversstaðar í Bæjaralandi
liggur smáþorpið Blindheim.
Þaðan bárust þær fréttir í gær að
um 20 þúsund manns hefðu lagt
leið sína í pósthúsið í því eina
augnamiði að láta stimpla frí-
merkjaumslög. Að sögn þorps-
búa voru áköfustu safnararnir
mættir strax í rauðabítið. Þeir
hugðust allir freista þess að fá
stimpilinn 88888 á umslagið sitt.
Þ.e.a.s. áttundi dagur ág-
ústmánaðar árið ‘88 klukkan átta
að morgni.
Spor þykir víst mikið gæfuspor
löggæslumanna, jafnt alþjóð-
legra sem og í einstökum ríkjum.
Reuter/-ks.
formúlur við útreikning atvinnu-
leysis en félagarnir 11. Tölurnar
sýna vitaskuld hlutfall atvinnu-
lausra af heildarfjölda vinnu-
Belgía
Danmörk
Vestur-Þýskaland
Spánn
Frakkland
írland
Ítalía
Lúxemborg
Holland
Portúgal
Bretland
„Til lukku ástin mín!“
ef það er stigið á degi sem hefur
sömu tölu og mánuður og ár.
Stjörnuspekingur Reuters, ísra-
elinn madame Sheli, sagði um
happatölur gærdagsins að „þær
skapa kringumstæður sem eru í
hæsta máta heppilegar fyrir
hverslags ást af rómantíska tag-
inu.“
Pör sættu víðar færi en í
Vestur-Þýskalandi og létu gifta
sig á þessum happadegi. Sams-
konar fréttir bárust frá Svíþjóð,
Austurríki og Sviss. Þriðjungi
fleiri en vant er gengu í það heil-
aga í Stokkhólmi í gær. IMálmey
gengu 26 einstaklingar í hjóna-
band á einu bretti en nærri lætur
að það hafi verið 13 pör, mikil
happatala einsog alkunna er.
Reuter-ks.
færra manna. Að framanverðu
eru upplýsingar um júnímánuð í
ár en í þeim aftari eru tölurna frá
því í sama mánuði í fyrra:
Júní1988 Júní1987
10,6 11,6
6,8 5,8
6,7 6,6
20,2 21,3
10,3 10,6
18,8 19,4
12,3 10,8
2,8 3,1
10,2 9,9
6,4 6,8
8,6 10,5
Sameinuðu þjóðirnar
Herferð gegn bamaþræikun
Evrópubandalagsríki
55.000 fa vinnu
Þriðjudagur 9. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13