Þjóðviljinn - 09.08.1988, Blaðsíða 16
r-SPURNINGBN—1
Verður gengið fellt á
næstunni?
Óskar Thedórsson
tannsmiður:
Ætli það ekki og nú um 6% enn
eina ferðina. Fyrir mig persónu-
lega verður afleiðingin ekkert
annað en meiri kostnaðarhækk-
anir frá því sem nú er. Maður
hreinlega þorir ekki spá um af-
komuna í haust og í vetur.
Jakobína Ingibergsdóttir
setjari:
Það bendir allt til þess því miður
og þá um 6-10% en vonandi ekki
meira en það. Það er Ijóst að ný
gengisfelling mun hafa í för með
sór dýrari heimilisrekstrur og
minni kaupmátt auk þess sem
vextir og öll lán munu hækka.
Guðmundur Hallgrímsson
lyfjafræðingur:
Landsmenn hafa þegar fellt
gengið og það er síðan spurning
hvað stjórnvöld gera. Ég tel að
þau komist ekki hjá að fella það
um 10%. En því miður er það
bara skammgóður vermir og
mun ekki stemma stigu við efna-
hagsóstjórninni sem hér ríkir.
Lárus Johnsen
starfsmaður Háskólans:
Alveg örugglega. Hversu mikil
hún verður er ekki gott að segja
en í f Ijótu bragði gæti ég trúað að
hún verði á bilinu 15-20%. Ég tel
að stjórnin muni falla í haust og
þá verður ráðist í efnahagslega
uppstokkun með aðgerðum
nýrrar stjómar sem þá mun taka
við.
Gunnar Nílsen
verkamaður:
Já, það verður örugglega fellt á
næstunni og þá í þriðja sinn á
þessu ári. En hversu mikil hún
verður get ég ómögulega spáð
fyrir um. Hitt veit ég fyrir víst að
róður heimilanna mun þyngjast
all verulega og er þó erfiður fyrir.
þJÓÐVIUINN
Þriðjudagur 9. ógúst 177. tölublað 53. árgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
Á LAUGARDÖGUM
681663
Stein Aasheim, Odd Eliassen, Jo Toftdahl og Nils Hagen með sýnishom af útbúnaði til Grænlandsferðarinnar. Svefnpokinn sem er úr hrein-
dýraskinni er áreiðanlega ekki síður hlýr en nútímadúnpokar en þyngd hans er 7 sinnum meiri - áður en hann blotnar! Mynd Ari.
Grœnlandsfarar
I fótspor forfeðranna
¦ —
Pað hefur oft verið haft á orði
við okkur að fjallgöngur nú til
dags væru nú lítiil hetjuskapur
miðað við það sem frumkvöðlar
fyrri alda lögðu á sig til að komast
sömu leiðir og má segja að þessar
athugasemdir hafi orðið kveikjan
að ferðinni, sagði Stein Aasheim,
leiðangursstjóri í hópi Norð-
manna sem hér eru staddir á leið
sinni til Grænlands að feta í fót-
spor Friðþjófs Nansens sem fyrir
nákvæmlega 100 árum fór á
skíðum yfir Grænlandsjökul.
Leiðangursmenn hafa undan-
farin 2 ár unnið að undirbúningi
ferðarinnar og keppt að því að
finna allan þann búnað sem
Nansen og félagar notuðst við í
sinni ferð.
- Fyrst þurftum við að verða
okkur úti um upplýsingar um
hverslags útbúnaður var notaður
í ferðinni og síðan að fá slíkt búið
til fyrir okkur sem ekki hefur
alltaf verið auðvelt því það eru
ekki margir sem kunna hið gamla
handverk og gátu orðið við ósk-
um okkar, sagði Stein.
Það eru ekki bara gömlu tré-
skíðin, þungu hreindýrasvefn-
pokarnir og skinnskór fylltir með
hálmi sem eru eins og Nansen
notaðist við heldur er maturinn
líka af sama toga.
Súkkulaði blandað með kjöti,
kjötkexkökur og Pemmikan, sem
er massi úr þurrkuðu kjöti og
fitu, verður aðaluppistaðan í
fæðu þeirra á meðan á ferðinni
stendur, skolað niður með tei eða
kakói.
- Við höfum ekki prófað að
lifa eingöngu á þessari fæðu svo
það er bara að bíða og sjá hvort
við lifum af ferðina, sögðu þeir
félagar og gáfu blaðamönnum að
smakka á matnum. Þótt engum
hafi orðið meint af eru eflaust f áir
sem treysta sér til að lifa ein-
göngu á þessum mat í langan
tíma.
Ferð Nansens og félaga yfir
Grænlandsjökul tók 43 daga og
sporgöngumenn þeirra ætla sér
álíka langan tíma til fararinnar en
hafa matarbirgðir til 50 daga.
iþ.
Nils Hagen með fótabúnað þann sem þeir félagar munu nota á leið
sinni yfir jökulinn. Skórnir eru úr hreindýraskinni og fylltir með hálmi.
Mynd Ari.