Þjóðviljinn - 11.08.1988, Page 3
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Gengisfall afgangsstærð
Steingrímur Hermannson: Yfirlýsing Matthíasar sýnir ekki
samlyndi á stjórnarheimilinu. Hefáhuga á að kallafulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar á okkarfund
á er verðbólgan ekki stórt
vandamál ef ég er jafn stórt
vandamál og hún, sagði
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra um þá yfirlýsingu
Matthíasar Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra í sjónvarpsfrétt-
um, að ríkisstjórnin ætti við tvö
jafnstór vandamál að etja, verð-
bólguna og yfirlýsingagieði utan-
ríkisráðherra.
„Ég vil að það komi fram að ég
tel þessa heimsókn Þorsteins til
Bandaríkjanna mjög eðlilega.
Það var kominn tími til þess að
hann þægi þetta boð Bandaríkja-
forseta. Það eru ýms mál í sam-
skiptum þjóðanna sem þarf að
koma á hreint, einsog t.d. að af-
nema vísaáritun til Bandaríkj-
anna og fá úr því skorið að
Bandaríkjamenn ætli ekki að
fljúga með plútóníum yfir ís-
lenska lofthelgi.“
- En ekki sýnir þessi yfirlýsing
Matthíasar Á. Mathiesen mikið
samlyndi á stjórnarheimilinu?
„Nei, því miður sýnir þetta
ekki samlyndi. Þetta er bara ein-
hver titringur í Matthíasi, ég
þekki hann vel. Við Framsóknar-
menn erum að undirbúa okkur af
fullum heilindum fyrir þær efna-
hagsaðgerðir sem gripið verður
til um næstu mánaðamót, einsog
forsætisráðherra hefur verið að
tala um, og ég efast ekki um að
hann nýti tímann vel þegar hann
kemur aftur frá Bandaríkjunum
og standi við þær yfirlýsingar."
- Nú er Framsókn að kalla til
sín hina og þessa aðila til þess að
móta tillögur í efnahagsmálum.
Eruð þið búnir að taka að ykkur
hlutverk ríkisstjórnarinnar.
„Nei, einsog ég sagði þá erum
við að búa okkur undir að taka á
þessum málum í samráði við hina
flokkana í ríkisstjórninni í lok
mánaðarins.“
- Þið hafið kallað til ykkar full-
trúa atvinnurekenda en fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar eru
hafðir útundan.
„Það er ekki rétt. Okkar menn
í verkalýðshreyfingunni hafa ver-
ið með okkur allan tímann og ég
hef fullan hug á að kalla aðra full-
trúa verkalýðshreyfingarinnar á
fund okkar.“
- í sjónvarpinu var talað um að
forstjóranefndin svokallaða
hefði það í sínu valdi hvort ríkis-
stjórnin stæði eða félli.
„Þetta var mjög undarleg frétt.
Menn geta haft mismunandi
skoðanir á því hvernig nefndin er
skipuð en ég veit að þessir menn
vinna vel. Það er hinsvegar ekki í
þeirra valdi hver framtíð ríkis-
stjórnarinnar verður.“
- í sömu frétt kom fram að
Sjálfstæðismenn vilja 15-20%
gengisfellingu.
„Það var haft eftir einhverjum
ónefndum heimildarmanni.
Sjálfur vil ég ekki tala um gengis-
fellingu á þessu stigi málsins.
Hún er afgangsstærð.“
En þolir efnahagslífið þessa
bið?
„Þorsteinn gaf frest fram til
mánaðamóta og ég reikna með
að hann standi við það.“
-Sáf
Kartöflur
SÍM fær
Gullaugaö
Fjármálaráðherra afsalaði í
gær fyrir hönd ríkissjóðs eignum
Grænmetisverslunar landbúnað-
arins til Sölusamtaka íslenskra
matjurtaframleiðenda, SÍM.
Um er að ræða húseign Græn-
metisverslunarinnar við Síðu-
múla, svokallað Gullauga.
Kaupsamningur vegna eignar-
innar var undirritaður sumarið
1986 af þáverandi fjármálaráð-
herra og landbúnaðarráðherra en
þeir settu þau skilyrði fyrir útgáfu
afsals að þeir aðilar í kartöflurækt
sem ekki höfðu þá gerst aðilar að
SÍM samþykktu söluna og hags-
munir þeirra yrðu tryggðir. Þessi
skilyrði hafa nú verið uppfyllt.
Forstióranefndin
Öll ráö dýr
Víglundur Þorsteinsson: Okkur œtlað að gera
tillögur um bœttan hagfyrirtœkja sem ekki eru
verðbólguhvetjandi. Það er ekki léttur leikur
Engin stefna hefur enn verið á-
kveðin um úrræði í efnahags-
málunum og enginn ágreiningur
um leiðir því komið fram hjá
nefndinni, sagði Víglundur Þor-
steinsson forstjóri um störf fors-
tjóranefndarinnar svokölluðu.
Nefndin hittist tvisvar á dag í
Rúgbrauðsgerðinni, klukkan
átta á morgnana og klukkan 16
síðdegis.
„Fyrirmælin sem við vinnum
eftir setja okkur mjög þröngar og
stífar skorður. Okkur er ætlað að
gera tillögur um bættan hag
útflutnings- og samkeppnis-
greinanna en taka jafnframt
ákveðið mið af óskum um lága
verðbólgu. Það er ekki léttur
leikur.“
Að sögn Víglundar er nefndin
enn að skoða vandamálið og
reyna að átta sig á stærð þess.
„Menn eru að reyna að átta sig á
heildardæminu og hvaða kostur
er sá skásti til þess að taka á vand-
anum. Kostirnir eru fleiri en einn
og fleiri en tveir en við erum ekki
enn komnir inn á eina braut í
þeim efnum. Við erum að leita
leiða til þess að grípa á vandanum
með samræmdum aðgerðum sem
jafnframt stuðla að friði í þjóðfé-
laginu.“
- Með skipan forstjóranefnd-
arinnar er ekki beint verið að
leita eftir samvinnu við verka-
lýðshreyfinguna.
„Við sjáum hvað setur í þeim
efnum.“
- Nú er Framsókn með aðra
nefnd í gangi sem vinnur að til-
Iögum um úrbætur í efna-
hagsmálunum. Óttist þið ekki að
það geti komið til árekstra þarna
á milli?
„Ég veit það ekki. Það hefur
ekki gerst enn og fulltrúi Fram-
sóknar í nefndinni vinnur af
heilum hug með okkur.“
- Hvaða önnur úrræði en geng-
isfellingu sjá menn í stöðunni?
„Það vil ég ekkert segja um
enn.“
- En er gengið út frá gengisfeli-
ingu sem nauðsyn í stöðunni og
því bara verið að velta því fyrir
sér hversu stór hún verði?
„Engin svör.“
^Sáf
Þorskkvótinn
Litið eflir af þorski
Útgerðarmenn reyna að treina sér kvótann í
lengstu lög. Minna eftir nú en var á sama tíma í
fyrra
Heldur minna er eftir af
botnfiskkvóta togara nú en
var á sama tíma í fyrra og munar
þar mest um minni þorskkvóta nú
en þá sökum meiri þorskafla á
fyrri helmingi ársins.
Hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa hf. á Akureyri eiga togar-
ar fyrirtækisins, sem eru sex að
tölu, eftir um 4800 tonn af
heildarbotnfiskkvótanum sem
var í upphafi ársins 19.200 tonn.
Samtals eiga þeir eftir þorsk-
kvóta uppá 1700 tonn.
Sfldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað gerir út þrjá togara á sóknar-
marki og sagði Jóhann Sigurðs-
son útgerðarstjóri að þeir væru
langt komnir með þorskkvótann í
ár og minna væri eftir af honum
en á sama tfma í fyrra.
Þrír togarar eru gerðir út hjá
Þormóði ramma hf. á Siglufirði
og að sögn Róberts Guðfinns-
sonar framkvæmdastjóra er svip-
aður tonnafjöldi eftir nú og var í
fyrra af botnfiskkvótanum og
sagði hann ástandið vera þokka-
legt. Engin starfsemi hefur verið í
frystihúsi fyrirtækisins frá 25. júlí
sl. vegna sumarleyfa en byrjað
verður á fullu 15. ágúst nk. þrátt
fyrir glórulausan rekstur. Tveir
togarar fyrirtækisins eru á sjó en
einn í slipp í Englandi.
-grh
Bandaríkjamenn sem hingað koma í innkaupaferðir eru miklu færri í ár en undanfarin ár. Þá eru bandarískir
laxveiðimenn miklu færri en áður.
Ferðamenn
Könum fækkar enn
Konráð Guðmundsson, Hótel Sögu: Erum aðeins með 20%
þeirra viðskipta sem við höfum haft við þá síðustu ár. Þeim
hefurfækkað um 3.615 manns síðustu þrjá mánuði. Á sama
tíma hafa 5.536fleiri ferðamenn komiðfrá Norðurlöndunum
Bandarískum ferðamönnum
hefur fækkað hér um 3.998
manns fyrstu sjö mánuði ársins
miðað við sama tíma í fyrra. Síð-
ustu þrjá mánuði, maí, júní og
júlí, hefur þeim fækkað um 3.615
manns borið saman við sömu
mánuði í fyrra. I nýliðnum júlí
komu hingað 4,397 Bandaríkja-
menn en á sama tíma í fyrra voru
þeir 6.295. Á sama tíma fjölgaði
ferðamönnum frá Norðurlöndum
og Evrópu. í maí, júní og júlí
komu hingað til lands 5.536 fleiri
ferðamenn frá þessum löndum en
á sama tíma í fyrra.
Þessar tölur benda eindregið til
þess að hér sé eitthvað að gerast
og geta alls ekki talist eðlilegar
hvernig sem á þær er litið.
Áróður gegn íslandi og íslend-
ingum vegna hvalveiða okkar eru
að koma hér fram að einhverju
leyti. Að sögn Konráðs Guð-
mundssonar, hótelstjóra á Hótel
Sögu, verða þeir mikið varir við
þessa fækkun bandarísku ferða-
langanna. „Við erum með samn-
inga við tvær stórar ferðaskrif-
stofur í Bandaríkjunum og miðað
og Evrópu
við undanfarin ár erum við nú að-
eins með um 20% þeirra við-
skipta sem við höfðum. Banda-
ríkjamenn hafa mikið dvalið á
hótelum hér í Reykjavík og þetta
kemur auðvitað mest niður á
þeim. Miklu færri laxveiðimenn
koma nú frá Bandaríkjunum en
áður og er lélegri veiði í fyrra og
of dýrum veiðileyfum um að
kenna. Þá virðast svokallaðir
verslunarhópar sem hingað hafa
komið vera detta upp fyrir hvort
sem það er háu verðlagi að kenna
eða áróðri Greenpeace-
samtakanna,“ sagði Konráð
Guðmundsson.
í maí, júní og júlí í ár komu
9.809 Bandaríkjamenn en á sama
tíma í fyrra voru þeir 13.424.
Norðurlandabúar voru 20.956 en
voru í fyrra 18.327 þessa mánuði.
Frá Evrópu komu 24.966 ferða-
menn en voru 22.059 frá sömu
löndum í fyrra. í Evróputölunum
eru eftirtalin lönd (tölurnar sýna
fjölda ferðamanna í maí, júní og
júh' í ár): V-Þýskaland; 9.947,
Stóra-Bretland; 4.694, Frakk-
land; 3.174, Sviss; 2.533,
Austurríki; 1.466, Italía; 1.453,
Holland; 1.329 og Belgía; 370.
Ferðamönnum fækkar aðeins frá
Austurríki og Belgíu og svipaður
fjöldi virðist koma frá Stóra-
Bretlandi og í fyrra en að öðru
leyti er um að ræða fjölgun ferða-
manna frá helstu þjóðum Evrópu
sem hingað sækja.
Þessa þrjá mánuði voru Svíar
flestir frá Norðurlöndunum eða
7.232, Danir; 7000, Norðmenn;
4.591 og Finnar voru 2.133. Mið-
að við sömu þrjá mánuði í fyrra
fjölgaði sænskum ferðamönnum
hér um 1.113, dönskum um 614,
norskum um 358 og finnskum um
544.
Engar aðrar stórvægilegar
breytingar hafa átt sér stað í þess-
um málum. Þó komu tæplega 200
færri ferðamenn frá Asíulöndum
í maí, júní og júlí í ár heldur en í
fyrra eða 609 manns. Frá Afríku
komu 94, Suður- og Mið-
Ameríku 139 og lengst að komnir
voru 317 ferðamenn frá
Nýja-Sjálandi og Ástralíu.
-gís.
Fimmtudagur 11. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3