Þjóðviljinn - 11.08.1988, Qupperneq 11
I kvöld
Mjólkurbikarkeppnin, undanúrslit
kl. 19.00 Víkingur-Valur
kl. 19.00 Leiftur-IBK
Golf
Meðogán
forgjafar
Golfklúbbur Selfoss stendur
fyrir golfmóti um næstu helgi.
Nefnist það Opna Hitachi mótið
og er leikið á Svarfhólsvelli við
Selfoss. Leikurinn verður 18 holu
höggleikur með og án forgjafar og
eru glæsileg verðlaun í boði fyrir
að fara holu í höggi.
Keppendur geta pantað rás-
tíma í síma 98-22417 og fást þar
einnig allar nánari upplýsingar.
-þóm
Hlutu uppreisn æm
íslendingar sigruðu í seinni leiknum gegn Frökkum með
þremur mörkum, 26-23
Fótbolti
Skaginn
mætir Val
Sigraði Stjörnuna
2-1
Skagastúlkur mæta Val í úr-
slitum bikarkeppninnar og er
þetta í fjórða skipti á fimm árum
sem liðin eigast við í úrslitunum.
Stjörnustúlkur náðu ekki að sýna
sitt rétta andlit í leiknum á meðan
Skaginn lék einn sinn besta leik í
sumar og sigurinn var því verð-
skuldaður.
Skaginn hafði sumsé öll völd á
vellinum til að byrja með og upp
úr miðjum fyrri hálfleik náði
Ásta B. Gunnlaugsdóttir að
skora fyrsta mark ieiksins. Mark-
ið skoraði hún með glæsilegum
skalla eftir fyrirgjöf frá írisi. Ekki
voru fleiri mörk skoruð í fyrri
hálfleik en á 15. mínútu síðari
hálfleiks bætti Ásta öðru marki
við. Halldóra Gylfadóttir sendi
boltann inn í teig til Ástu sem
fékk nógan tíma til athafna, sneri
sér í hring og skoraði með góðu
skoti.
Þegar um 15 mínútur voru til
leiksloka náði Stjarnan að
minnka muninn og skoraði Guð-
rún Vala Ásgeirsdóttir markið
með skoti utan vítateigs. Eftir
markið sóttu Stjörnustúlkur í sig
veðrið en náðu þó ekki að jafna
metin og því var sanngjarn
Skagasigur í höfn.
Valur og í A leika til úrslita um
bikarinn 21. ágúst.
-þóm
Það var allt annað að sjá til
íslenska landsliðsins í síðari vin-
áttulandsleiknum við Frakka
heldur en þeim fyrri. Nú var sig-
urviljinn fyrir hendí enda gengur
ekkert án hans. Enda þótt fyrri
hálfleikur væri jafn og tvísýnn
komu strákarnir ákveðnir til
síðari hálfleiks og náðu öruggri
forystu þegar á leið. Síðan var
þetta aðeins spurning um lokat-
ölur en þær urðu 26-23.
Leikurinn mjög jafn framan af
þó að íslendingar hefðu ávallt
frumkvæðið. Frakkar náðu hins
vegar að komast yfir 5-7 og runnu
tvær grímur á íslenska áhorfend-
ur. En sérlega góð markvarsla
Guðmundar Hrafnkelssonar
kom í veg fyrir breiðara bil og
leikurinn var jafn allt til leikhlés,
en þá var staðan jöfn 12-12. Á
þessum tíma hafði franski mark-
vörðurinn verið fslendingum sér-
lega erfiður en það átti eftir að
lagast.
Kristján Arason hóf síðari
hálfleik með marki en Frakkar
svöruðu jafnharðan. Síðan var
jafnt á öllum tölum þar til staðan
var 15-15 er góður leikkafli kom
hjá fslendingum. Þeir breyttu
stöðunni í 18-15 og skoraði Krist-
ján einmitt tvö síðustu mörkin.
Frakkar klóruðu í bakkann en
náðu íslendingum aldrei. Minnst
var bilið tvö mörk, 22-20, 23-21
og 24-22, en íslendingar gerðu út
um leikinn með tveimur mörk-
um, 26-22 þegar ein og hálf mín-
úta var eftir og leikurinn unninn.
Frakkar áttu síðan síðasta orðið
rétt fyrir leikslok.
Sigur íslendinga var fyllilega
verðskuldaður enda eiga þeir
ekki að vera í vandræðum með
þetta franska lið. Tapið í fyrri
leiknum er kannski skiljanlegt
því þeir eru vafalaust orðnir mjög
þreyttir eftir geysilega stífa törn.
Það sem helst stóð í vegi fyrir
íslendingum í leiknum í gær var
markvörður Frakka en Guð-
mundur átti einnig góðan leik í
íslenska markinu. Nú gengu víta-
köstin ágætlega og Kristján Ara-
son og Þorgils Óttar Mathiesen
sýndu sínar réttu hliðar. Þá átti
Júlíus Jónasson góðan leik og
skoraði 6 mörk.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson
6, Kristján Arason 6/2, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Bjarki Sig-
urðsson 4, Jakob Sigurðsson 2,
Sigurður Gunnarsson 2, Geir
Sveinsson 1.
-þóm
IÞROTTIR
Júlíus Jónasson sannaði ágæti sitt í leiknum gegn Frökkum í gær með því að skora sex mörk.
Handbolti
Karfa
Pétur og Pálmar
Körfuboltaskóli Hauka í næstu viku
Körfuknattleiksdeild Hauka
verður með körfuboltaskóla fyrir
drengi og stúlkur dagana 15.-20.
ágúst. Farið verður í helstu
undirstöðuatriði körfuknatt-
leiksins og leikið á „minni körfu“.
Auk þess verður boðið upp á
körfuknattleiksmyndir af mynd-
böndum og þekktir leikmenn og
þjálfarar koma í heimsókn, s.s.
Pétur Guðmundsson, atvinnu-
maður, og Pálmar Sigurðsson.
Námskeiðinu er skipt í fjóra
hópa og verður sem hér segir:
1. hópur(7,8og9áradrengir)kl.
9.00-10.30
2. hópur (11 ára og yngri stúlkur)
kl. 10.30-12.00
3. hópur (10 og 11 ára drengir) kl.
13.00-14.30
4. hópur (12,13 og 14 ára) kl.
14.30-16.00
Kennsla fer fram f íþróttahúsi
Hauka og hefst mánudaginn 15.
ágúst. Þá verður einnig innritað
en námskeiðinu lýkur laugardag-
inn 20. ágúst með móti fyrir þátt-
takendur o.fl. Kennari er Ingvar
5. Jónsson íþróttakennari og
þjálfari.
-þóm
Frinhnr
UMSE stigTfrá 1. deild
UMSKog USAHupp íl. deild. UMSSog USÚÍ2. deildí
stað HSH og UMFK
Keppni í 2. og 3. deild bikar-
keppni Frjálsíþróttasambandsins
lauk um helgina og því ljóst hvaða
félög flytjast milli deilda. í 2.
deild var keppni gifulega jöfn og
spennandi og áttu fjögur lið jafna
möguleika á sigri. Svo fór að
UMSK sigraði með 135,5 stig en
USAH varð í öðru sæti með 131,5
stig. Þau keppa því í 1. deiid að
ári en HSH og UMFK falla í 3.
deild.
Lokastaðan í 2. deild varð ann-
ars þessi:
1. UMSK...........135,5 stig
2. USAH ..........131,5 stig
3. UMSE............130 stig
4. Ármann..........129 stig
5. HSH............102,5stig
6. UMFK...........81,5 stig
Keppnin í 3. deild, sem haldin
var í Vík, var ekki eins spennandi
en þó var tvísýnt um annað sætið.
UMSS sigraði í keppninni með
136 stig en USÚ varð í öðru sæti
með 104,5 stig, aðeins fimm stig-
um á undan ÚSVS. UMSS og
USÚ flytjast því upp í 2. deild í
stað HSH og ÚMFK eins og áður
sagði.
Lokastaða í 3. deild varð þann-
'g:
1.UMSS 136 stig
2. USÚ 104,5stig
3. USVS 99,5 stig
4. UDN 92 stig
5. HSS 90,5 stig
6.HSÞ 83 stig
7.UNÞ 56,5 stig
8.HHF 40 stig
-þóm
Flmmtudagur 11. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11