Þjóðviljinn - 11.08.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 11.08.1988, Blaðsíða 14
í DAG Heggursá... Venjan hefur verið sú, að Bún- aðarfélag íslands, - og þá raun- verulega fyrir hönd ríkisins - hef- ur látið af hendi rakna lítilsháttar fjárhæð til að verðlauna þau kyn- bótahross, sem best hafa talist hverju sinni á lands- og fjórðungs- mótum hestamannafélaganna. Hér hefur þó naumast verið um umtalsverðar fjárhæðir að ræða, en þær hafa samt verið vottur um skilning ráðamanna á þýðingu þess starfs, sem hrossaræktar- menn hafa unnið undanfarna áratugi, endaberað veita þessa viðurkenningu samkvæmt gild- andi búfjárræktarlögum. Nú brá hinsvegar svo við, að á nýafstöðnu fjórðungamóti á Kaldármelum kom engin króna úr þessari átt. Um þetta segir svo í nýútkomnum Eiðfaxa: - Hannvarþungurtónninní Þorkeli Bjarnasyni, hrossarækt- arráðunaut ríkisins, þegarhann tilkynnti þetta í hljóðnemana er verið var að afhenda verðlaunin fyrir bestu gripina. Máli sínu til skýringarsagði Þorkell, aðskrif- stofustjóri landbúnaðarráðuneyt- isins hafi svarað málaleitan B.í. á þann veg, að ekki tæki því að ónáða ráðherra af þessu tilefni, peningamir, 500 þús. kr., væru ekki fyrir hendi og fengjust ekki. Þegar landbúnaðarráðherra var samt sem áöur inntur eftir þessu „kannaðist hann ekki við þetta sérstaka mál“, þótt bundiö sé í lögum. Og þegar bent var á að margirbændursinntu hrossa- ræktinni sem aukabúgrein, með góðum árangri, varsvar ráðherr- ans: „að stefnt væri að minni út- gjöldum almennt til landbúnaðar og hrossaræktin væri þarekki undanskilin", sem þýðir, að allt sem snertir landbúnað skuli fært undirfallöxina. Skilningurágildi landbúnaðar fyrir þjóðina hefurfarið þverrandi meðal almennings á undanförn- um árum. Svo að segjadaglega heyrir maður eða sér einhverja sleggjudóma, sem í rauninni byg- gjast einvörðungu á brjóstum- kennanlegri fáfræði. Vegna tíma- bundinna erfiðleika þykir þessum sérkennilegu mannkynsfrelsur- um landbúnaðurinn liggja vel við höggi. Hitt gleymist gjarna, að landbúnaðurinn er hér ekki einn á báti. Öll heilbrigð atvinnustarf- semi í þessu landi á undir högg aðsækja. Hverskonarverslunar- og viðskiptabrask er það eina, sem blómstrar. Bændur hafa brugðist f Ijótt og vel við þeim búháttabreytingum, sem þeirvoru eggjaðirtil. Kann- ski of margir og of fljótt. En í öllu írafárinu um ný- og aukabúgrein- ar virðist hrossaræktin hafa gleymst. Hún hefurþósannað gildi sitt svo ekki verður um deilt. Það er því bæði ranglátt og heimskulegt að skeröa hinn litla 1 hluthennar. -mhg ídag er 11. ágúst, fimmtudagur í sautjándu viku sumars, nítjándi dagur heyanna, 224. dagur árs- ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 5.06 en sest kl. 21.57. Tungl minnkandi á fjórða kvartili. Viðburðir Lokiðsmíði Frúarkirkjunnarí Múnchen1488. Þjóðviljinn fyrir50 árum Stórorustur við Saosernaja. Árásumjapanskahersins hrund- ið. Japanir fara halloka og bíða mikið afhroð. Sjanku-feng á valdi Rússa. Þýzkir sjóliðar á hergöngu um götur Reykjavíkur. Eiga íslend- íngar að þola hlutskipti hernum- inna þjóða? Slík framkoma yrði hvergi þoluð í frjálsu landi. Góðursíldarafli nyrðra. Síldin erþóstygg. UM ÚTVARP & SJONVARP J Einar Már Guðmundsson Malbikunarvélin Rás 1, kl. 22.30 Malbikunarvélin nefnist smá- saga eftir Einar Má Guðmunds- son, sem flutt verður á Rás 1 í kvöld. Höfundur les. Þarna eru á kreiki tveir gamlir og prýðilegir sérvitringar. Annar þeirra er fyrrverandi ráðuneytisstjóri en hinn er ritari stjórans. Báðir eru þeir hatramar grænmetisætur og leggja vart annað sér til munns. Grýlukertin Rás 2, kl. 22.07-01.00 Að undanförnu hafa konur í síauknum mæli skotist upp á stjörnuhimininn í poppinu og líð- ur nú vart sá mánuður að ekki sé hampað nýrri valkyrju af popp- pælurum. Er þar skemmst að minnast vinsælda Tracy Chap- man hér heima sem erlendis. í þessum þætti verður einmitt fjall- að um hana og aðrar efnilegar söngkonur og eru flestar hverjar einnig ágætir lagasmiðir, svo sem Sinead O’Connor, Melisse Et- heridge, Michelle Schoked, Nat- alie Merchant, Kristín Hersh og margar fleiri. Einnig láta eldri og þekktari söngpíur í sér heyra, t.d. Joni Mitchell, Patti Smith og Annie Lennox. Umsjón með þættinum, sem nefnist „Það logar á grýlukertunum“, hefur Skúli Helgason. -mhg Tónlistarkvöld Hafa þeir sínar eigin skoðanir á flestum fyrirbærum lífsins og eru yfirleitt sérvitrir í meira lagi. Eins og nærri má geta er krökkum uppsigað við þessa karla en þeir láta það ekkert á sig fá og svara í sömu mynt. - En svo er það mal- bikunarvélin. Hvernig hún skiptir sköpum í lífi þessara herramanna kemur í ljós í kvöld. - mhg Tveir þættir frá Listahátíðinni verða á dagskrá Rásar 1 í kvöld. Sá fyrri er frá tónleikum kam- mersveitar undir stjórn Hákonar Leifssonar, en þeir voru fluttir í íslensku óperunni 6. júní sl. Lék sveitin þrjú verk. Fyrst „Hvörf“ eftir Hauk Tómasson, samið á þessu ári, tileinkað Guðna Franz- syni, en hann leikur einleik á klarinettu með hljómsveitinni. - Þá er það „Styr“, eftir Leif Þórar- insson. Þorsteinn Gauti Sigurðs- son leikur einleik á píanó. Verkið samdi Leifur sl. vor fyrir þennan hóp, sem frumflutti það þarna og er tileinkað stjórnandanum, Há- koni Leifssyni. - Loks er það Kammersinfónía op. 9 fyrir 15 einleikara, eftir Arnold Schen- berg. Seinni liður tónlistarkvöldsins er svo tónleikar Hamrahlíðar- kórsins í íslensku óperunni 7. júní sl. Þá söng kórinn, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, „Tímann og vatnið“, kórverk eftir Jón Asgeirsson við ljóð Steins Steinarrs. Hamrahlíðark- órinn var stofnaður 1982 og hefur Þorgerður Ingólfsdóttir stjómað honum frá upphafi. Kórinn hefur lagt áherslu á að æfa og flytja ís- lenska tónlist. Hefur það orðið tónskáldum mikil hvatning og mörg þeirra hafa samið verk fyrir kórinn sérstaklega. - Tónskáldið Jón Ásgeirsson, segist telja „Tímann og vatnið“ ástarljóð en ekki úthugsaðan leik með orð og form, eins og ýmsir telji. - mhg GARPURINN KALLI OG KOBBI FOLDA — -^mi ■ Hún þýðir bækur. Launin hans pabba nægja rétt fyrir leigunni Frakkar skrifa til dæmis^ 1 bækurnar sínar á frönsku. Mamma þýðir þær á íslensku og kaupir / ' mat fyrir peningana. Hvað er mamma \ þín að vélrita? I v J ir-'' N sr7\ ? Æ U& 3j ( yp )v ■yjmjl 14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.