Þjóðviljinn - 11.08.1988, Qupperneq 14
í DAG
Heggursá...
Venjan hefur verið sú, að Bún-
aðarfélag íslands, - og þá raun-
verulega fyrir hönd ríkisins - hef-
ur látið af hendi rakna lítilsháttar
fjárhæð til að verðlauna þau kyn-
bótahross, sem best hafa talist
hverju sinni á lands- og fjórðungs-
mótum hestamannafélaganna.
Hér hefur þó naumast verið um
umtalsverðar fjárhæðir að ræða,
en þær hafa samt verið vottur um
skilning ráðamanna á þýðingu
þess starfs, sem hrossaræktar-
menn hafa unnið undanfarna
áratugi, endaberað veita þessa
viðurkenningu samkvæmt gild-
andi búfjárræktarlögum.
Nú brá hinsvegar svo við, að á
nýafstöðnu fjórðungamóti á
Kaldármelum kom engin króna
úr þessari átt. Um þetta segir svo
í nýútkomnum Eiðfaxa:
- Hannvarþungurtónninní
Þorkeli Bjarnasyni, hrossarækt-
arráðunaut ríkisins, þegarhann
tilkynnti þetta í hljóðnemana er
verið var að afhenda verðlaunin
fyrir bestu gripina. Máli sínu til
skýringarsagði Þorkell, aðskrif-
stofustjóri landbúnaðarráðuneyt-
isins hafi svarað málaleitan B.í. á
þann veg, að ekki tæki því að
ónáða ráðherra af þessu tilefni,
peningamir, 500 þús. kr., væru
ekki fyrir hendi og fengjust ekki.
Þegar landbúnaðarráðherra var
samt sem áöur inntur eftir þessu
„kannaðist hann ekki við þetta
sérstaka mál“, þótt bundiö sé í
lögum. Og þegar bent var á að
margirbændursinntu hrossa-
ræktinni sem aukabúgrein, með
góðum árangri, varsvar ráðherr-
ans: „að stefnt væri að minni út-
gjöldum almennt til landbúnaðar
og hrossaræktin væri þarekki
undanskilin", sem þýðir, að allt
sem snertir landbúnað skuli fært
undirfallöxina.
Skilningurágildi landbúnaðar
fyrir þjóðina hefurfarið þverrandi
meðal almennings á undanförn-
um árum. Svo að segjadaglega
heyrir maður eða sér einhverja
sleggjudóma, sem í rauninni byg-
gjast einvörðungu á brjóstum-
kennanlegri fáfræði. Vegna tíma-
bundinna erfiðleika þykir þessum
sérkennilegu mannkynsfrelsur-
um landbúnaðurinn liggja vel við
höggi. Hitt gleymist gjarna, að
landbúnaðurinn er hér ekki einn
á báti. Öll heilbrigð atvinnustarf-
semi í þessu landi á undir högg
aðsækja. Hverskonarverslunar-
og viðskiptabrask er það eina,
sem blómstrar.
Bændur hafa brugðist f Ijótt og
vel við þeim búháttabreytingum,
sem þeirvoru eggjaðirtil. Kann-
ski of margir og of fljótt. En í öllu
írafárinu um ný- og aukabúgrein-
ar virðist hrossaræktin hafa
gleymst. Hún hefurþósannað
gildi sitt svo ekki verður um deilt.
Það er því bæði ranglátt og
heimskulegt að skeröa hinn litla
1 hluthennar.
-mhg
ídag
er 11. ágúst, fimmtudagur í
sautjándu viku sumars, nítjándi
dagur heyanna, 224. dagur árs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
5.06 en sest kl. 21.57. Tungl
minnkandi á fjórða kvartili.
Viðburðir
Lokiðsmíði Frúarkirkjunnarí
Múnchen1488.
Þjóðviljinn
fyrir50 árum
Stórorustur við Saosernaja.
Árásumjapanskahersins hrund-
ið. Japanir fara halloka og bíða
mikið afhroð. Sjanku-feng á valdi
Rússa.
Þýzkir sjóliðar á hergöngu um
götur Reykjavíkur. Eiga íslend-
íngar að þola hlutskipti hernum-
inna þjóða? Slík framkoma yrði
hvergi þoluð í frjálsu landi.
Góðursíldarafli nyrðra. Síldin
erþóstygg.
UM ÚTVARP & SJONVARP
J
Einar Már Guðmundsson
Malbikunarvélin
Rás 1, kl. 22.30
Malbikunarvélin nefnist smá-
saga eftir Einar Má Guðmunds-
son, sem flutt verður á Rás 1 í
kvöld. Höfundur les. Þarna eru á
kreiki tveir gamlir og prýðilegir
sérvitringar. Annar þeirra er
fyrrverandi ráðuneytisstjóri en
hinn er ritari stjórans. Báðir eru
þeir hatramar grænmetisætur og
leggja vart annað sér til munns.
Grýlukertin
Rás 2, kl. 22.07-01.00
Að undanförnu hafa konur í
síauknum mæli skotist upp á
stjörnuhimininn í poppinu og líð-
ur nú vart sá mánuður að ekki sé
hampað nýrri valkyrju af popp-
pælurum. Er þar skemmst að
minnast vinsælda Tracy Chap-
man hér heima sem erlendis. í
þessum þætti verður einmitt fjall-
að um hana og aðrar efnilegar
söngkonur og eru flestar hverjar
einnig ágætir lagasmiðir, svo sem
Sinead O’Connor, Melisse Et-
heridge, Michelle Schoked, Nat-
alie Merchant, Kristín Hersh og
margar fleiri. Einnig láta eldri og
þekktari söngpíur í sér heyra, t.d.
Joni Mitchell, Patti Smith og
Annie Lennox. Umsjón með
þættinum, sem nefnist „Það logar
á grýlukertunum“, hefur Skúli
Helgason.
-mhg
Tónlistarkvöld
Hafa þeir sínar eigin skoðanir á
flestum fyrirbærum lífsins og eru
yfirleitt sérvitrir í meira lagi. Eins
og nærri má geta er krökkum
uppsigað við þessa karla en þeir
láta það ekkert á sig fá og svara í
sömu mynt. - En svo er það mal-
bikunarvélin. Hvernig hún
skiptir sköpum í lífi þessara
herramanna kemur í ljós í kvöld.
- mhg
Tveir þættir frá Listahátíðinni
verða á dagskrá Rásar 1 í kvöld.
Sá fyrri er frá tónleikum kam-
mersveitar undir stjórn Hákonar
Leifssonar, en þeir voru fluttir í
íslensku óperunni 6. júní sl. Lék
sveitin þrjú verk. Fyrst „Hvörf“
eftir Hauk Tómasson, samið á
þessu ári, tileinkað Guðna Franz-
syni, en hann leikur einleik á
klarinettu með hljómsveitinni. -
Þá er það „Styr“, eftir Leif Þórar-
insson. Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son leikur einleik á píanó. Verkið
samdi Leifur sl. vor fyrir þennan
hóp, sem frumflutti það þarna og
er tileinkað stjórnandanum, Há-
koni Leifssyni. - Loks er það
Kammersinfónía op. 9 fyrir 15
einleikara, eftir Arnold Schen-
berg.
Seinni liður tónlistarkvöldsins
er svo tónleikar Hamrahlíðar-
kórsins í íslensku óperunni 7.
júní sl. Þá söng kórinn, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
„Tímann og vatnið“, kórverk
eftir Jón Asgeirsson við ljóð
Steins Steinarrs. Hamrahlíðark-
órinn var stofnaður 1982 og hefur
Þorgerður Ingólfsdóttir stjómað
honum frá upphafi. Kórinn hefur
lagt áherslu á að æfa og flytja ís-
lenska tónlist. Hefur það orðið
tónskáldum mikil hvatning og
mörg þeirra hafa samið verk fyrir
kórinn sérstaklega. - Tónskáldið
Jón Ásgeirsson, segist telja
„Tímann og vatnið“ ástarljóð en
ekki úthugsaðan leik með orð og
form, eins og ýmsir telji.
- mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
— -^mi ■ Hún þýðir bækur. Launin hans pabba nægja rétt fyrir leigunni Frakkar skrifa til dæmis^ 1 bækurnar sínar á frönsku. Mamma þýðir þær á íslensku og kaupir / ' mat fyrir peningana.
Hvað er mamma \ þín að vélrita? I v J ir-''
N sr7\ ? Æ
U& 3j ( yp )v ■yjmjl
14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. ágúst 1988