Þjóðviljinn - 12.08.1988, Qupperneq 3
Ot^
Vide°
pótf01*
Y VIDEO-8
TÆKNI
FYRIR
NUTMAFÓLK
Video-8 videomyndavéla-
kerfið frá Sony fer nú sigurför
um heiminn og fjölgar þeim
stöðugt framleiöendunum
sem veðja á video-8 sem
framtíöarmyndavélakerfið,
enda skiptir ekki máli hvaða
myndbandstæki eða sjón-
varpstæki þú átt, video-8
passar
PASSAR VIÐ ÚLL TflEKI.
r Þar semt myndavélin er líka
afspilunartæki er haégt að
tengja hana við^öll sjónvarps-
tæki og sýna beint af vélinni
eða tengja við heimilismynd-
bandið og „klippa", þ.é.a.s.
færa á milli þau atriði sem
þið viljið varðveita af
upptökunni eða búa til eintök
til aö senda vinum og
vandamönnum.
INNBYGGÐUR SKJAR.
Allt sem er tekið upp sést
jafnóðum í innbyggðum skjá
þannig að það fer aldrei á
milli mála hvað er yerlð að
gera. Þá er skjárinn líka
notaður í afspilun og skiptir
þá ekki máli hvort þú ert
uppi á Vatnajökli, í miðri
Sahara eða bara niðri við
Tjörn. Þú getur hvenær sem
er skoðað upptökurnar á
staðnum.
Einnig gefur innbyggði
skjárinn upplýsingar um allar
gjörðir vélarinnar ásamt
upplýsingum um birtu,
rakastig, ástand rafhlöðu og
svo framvegis.
TÍMA- OG
TITLAINNSETNING.
Hægt er á einfaldan hátt að
setja inn á upptöku daginn,
mánuðinn, árið, klukkutímann
og mínúturnar (t.d.
21.08.88/19:30:00). Eftir að
einu sinni er búið að stilla inn
dagsetningu og tíma er
hvenær sem er hægt að
kalla upplýsingarnar fram
aftur því klukkan gengur þótt
slökkt sé á vélinni. Einnig er
hægt að setja titil inn á
mynd, t.d. Sigga 5 ára eða
Jólin 1988 og velja umátta
liti í letrið.
SJÁLFVIRKUR FÖKUS.
Er myndin í fókus eða ekki?
Á Sony CCD-V50 þurfum við
ekki að hafa áhyggjur af
svoleiðis hlutum eða þá
birtu-og hvítustillingu
þvi hægt er að hafa allar
stillingar sjálfvirkar og sér þá
vélin um að allt sé rétt, þú
þarft bara að fylgjast með því
sem þú ert að taka upp.
Vélin sér um afganginn.
Ótrúlega
litlar spólur 9,4 cm
á breidd og 6 sm á hæð.
Fáanlegar 30 min., 60 min.,
120 mín. og 180 mín.
Sex sinnum Zoom linsa.
Sjálfvirkur og handvirkur
fókus.
CCD myndrásir.
Þriggja tíma upptökuspólur.
Innbyggður hljóðnemi.
Tengi fyrir aukahljóðnema.
Ljósnæmi 12 lux.
Heyrnartólstengi.
Sjálfvirk og handvirk hvítu-
viðmiðun.
Stafrænt (digital) minni til
texta og myndinnsetninga.
Hreinar myndklippingar.
Hrein myndinnsetning.
VERÐ 76.860 STGR.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■
• SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SIMI 96-25611 ■
...á árí drekans
Jónas Ingimundarsonfrumflytur verk eftir Snorra Sigfús Birgisson á
Siglufirði
Siglfirðingar munu á sunnu-
dagskvöld fyrstir manna fá að
hlýða á nýtt tónverk eftir Snorra
Sigfús Birgisson, sem samið var
fyrir Jónas Ingimundarson í til-
efni af tónleikum hans á Siglu-
firði nú á sunnudagskvöld. Tón-
leikarnir eru liður í hátíðahöldum
Siglfirðinga í tilefni 70 ára afmæl-
is kaupstaðarins, en hátíðarhöld-
in hefjast um helgina og standa út
næstu viku.
Jónas sagðist hafa verið beðinn
um að halda þessa tónleika í vor
og þá hefði hann strax haft sam-
band við Snorra Sigfús og spurt
hvort hann gæti samið verk fyrir
þessa tónleika. „Mér fannst fara
vel á því að gera eitthvað stjr-
stakt, því einn að stöplunum í
tónlistarsögu íslands er séra
Bjarni Þorsteinsson, sem var frá
Siglufirði. Hann safnaði saman
og gaf út nærri þúsund síðna verk
með íslenskum þjóðlögum, en
þau þjóðlög lifa með okkur enn
þann dag í dag. Þetta var mikið
menningaraf rek. “
Snorri tók vel í þessa mála-
leitan Jónasar og fyrir þrem vik-
um lauk hann við að semja verkið
...ár jarðardrekans.
„Þetta er úr kínversku daga-
tali, en ár jarðardrekans er árið í
ár. Þetta er stutt og mjög
skemmtilegt verk, meira get ég
ekki sagt um það, því það er
ómögulegt að lýsa tónverki í orð-
um, það verður að hlýða á það.
Auk .. .árs jarðardrekans flytur
Jónas tvær Polonesur, sex Marz-
urka, tvær Etyður og Ballata nr. 2
eftir Chopin. Fjórar Prelúdíur
eftir Debussy og Tungl-
skinssónötu Beethovens.
Á laugardag verður Jónas með
tónleika í Borgarneskirkju og
verður þar með sömu dagskrá,
utan að í stað árs jarðardrekans
flytur hann smáverkið Tónleika-
ferð, eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
sem hann samdi fyrir fyrstu tón-
leika Jónasar.
-Sáf
Jónas Ingimundarson, píanóleikari
Snorri Sigfús Birgisson, tónskáld
Hættir við
Karl Steinar
Jón Baldvin Hannibalsson
er nú orðinn afhuga því að Al-
þýðuflokkurinn reyni að
tryqgja sér embætti forseta
ASI á þingi sambandsins í
haust. Jón telur ekki heppilegt
að kandidat flokksins, Karl
Steinar Guðnason, sé í for-
svari fyrir ASÍ á sama tíma og
kreppir að í efnahagsmálum
og Alþýðuflokkurinn þarf að
skrifa upp á óvinsælar efna-
hagsráðstafanir, gengisfell-
ingu og kjararán. Jóhanna
Sigurðardóttir mun sam-
mála Jóni Baldvin í þessum
efnum.
Jón Sigurðsson vitl hins
vegar fyrir alla muni losna við
Ásmund og koma Karli
Steinari að. Segir sagan að
Jón þoli illa að þurfa að deila
við Ásmund um hagfræði-
legar stærðir og málefni þar
sem hann hafi ekki roð við
forsetanum.B
___________Lifir í
gömlum glæðum
Það fór heldur betur fyrir
brjóstið á stjórn Dagsbrúnar
þegar heimamenn í Skorradal
í Borgarfirði komu ( veg fyrir
að félagið gæti keypt
Hvammsland undir orlofshús.
Hitt hefur farið hljóðlegra að
seljendur jarðarinnar eru af-
komendur úr innsta hring
Kveldúlfs sem Dagsbrún
eldaði grátt silfur við hér á
árum áður; afkomendur
Hauks Thors sem var einn af
sonum Thor Jensens og
bróðir Ólafs Thors fyrrum for-
sætisráðherra og formanns
Sjálfstæðisflokksins.B
r