Þjóðviljinn - 12.08.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 12.08.1988, Blaðsíða 9
• • Palestína Af tveim palestínskum ungmennum Israelskir hermenn skutu ung- an Palestínumann til bana í fyrra- kvöld. 1 gær hófust réttarhöld í máli „landnemaforingja“ af gyð- ingaættum sem lét það eftir sér að skjóta ungmenni til bana í janúar. Snemma á aðfararnótt gær- dagsins lést 17 ára gamall piltur, Ahmed Daraghmeh að nafni, á sjúkrahúsinu í Nablus vestan Jór- danar. Kvöldið áður höfðu her- menn skotið hann í brjóstið þegar í harðbakka sló milli þeirra og heimamanna í þorpinu Tubas. „Landnemaforinginn“ kapp- sami heitir Pinhas Wallerstein og er hann búsettur í Ofra. Hann er annar landræninginn sem gert hefur sér það að leik að skjóta Palestínumann og verið dreginn fyrir rétt af þeim sökum frá því uppreisn heimamanna hófst á herteknu svæðunum í árslok í fyrra. Wallerstein er ekki sakað- ur um morð heldur manndráp. f janúar munu Wallerstein og lífvörður hans hafa ekið inní pal- estínskt þorp nærri Jerúsalem í því eina augnamiði að því er best verður séð að lenda í erjum við heimamenn. Þeir óku fram á hóp ungmenna sem veifuðu palest- ínskum fánum og hrópuðu slag- orð gegn herraþjóðinni. Nokkrir úr þeim hópi grýttu bifreið tví- menninganna en það notaði „landnemaforinginn“ sem átyllu til þess að hefja skothríð og drepa pilt á sautjánda aldursári. Reuter/-ks. Mótmælendur í miðborg Rangoon. Erlendir sendimenn segja um 1.000 manns hafa látið lífið í róstunum undanfarna fjóra daga. Burma Enn hundsar fólk herlögin Stjórnvöldsegja 95 hafafallið en erlendir sendimenn bera brigður á þessa tölu og staðhœfa að látnir séu allt að þúsund J| ð minnsta kosti 17 manns létu n lífíð í heiftarlegum átökum mótmælenda og „öryggissveita“ í Burma í gær. Að sögn útvarpsins í Rangoon réðst fólk á birgða- skemmur og lét greipar sópa um hrísgrjónasekki. Ennfremur lagði það eld að lögreglustöðvum. Þetta var fjórða daginn í röð að almenningur víðsvegar um landið hefur herlög og mótmælabann ráðamanna að engu. Útvarpsþulur sagði að her- sveitir hefðu skotið aö minnsta kosti 18 sinnum á hópa mótmæ- lenda í höfuðborginni. í hópi þeirra sem biðu bana í gær hafi verið lögregluþjónn er nokkrir mótmælendur náðu á sitt vald og borgari sem andófsmenn tóku í misgripum fyrir böðul og börðu í hel. Ríkisstjórn Burma gaf í gær út sína fyrstu yfirlýsingu frá því róst- Iran/Irak Verslað með Kúrda Mótmæli á múrnum sem verður 27 ára gamall á morgun. A ustur-Pýskaland Þúsund samviskufangar Að sögnfélaga 13. ágúst Ar er liðið frá því austur] valdsherrar gáfu þorra þýskir i fanga upp sakir og létu Ijúka upp dyrum fangelsa. Þá voru nær allir and- ófsmenn látnir lausir en nú eru um þúsund úr þeirra röðum inni- lokaðir á ný. Þetta staðhæfa félagar mannréttindasamtakanna 13. ág- úst. Af þessum þúsund hefðu 400 verið stungið inn fyrir þær „sakir“ að reyna að flýja land. Hinir 600 hefðu allir sótt um brottflutnings- leyfi en komið bónleiðir til búð- ar. Þeir hafi ekki látið deigan síga heldur gripið til ýmissa ráða í því augnamiði að reyna að telja vald-' höfum þughvarf, dreift bæk- lingúm á fjölförnum slóðum eða tekið opinberar byggingar her- skildi. Heimildamenn í Vestur-Berlín fullyrða að um 300 þúsund Austur-Þjóðverjar hafi sótt um leyfi til þess að fá að flytjast úr landi. í Austur-Þýskalandi búa 16,6 miljónir manna. Ugglaust leikur mörgum hugur á að ég færi þeim sanninn heim um það hversvegna mannrétt- indasamtök í Austur-Þýskalandi kenna sig við þann stórmerka dag, 13. ágúst. Orsök þessa kvað vera sú að þennan drottinsdag árið 1961 hófu austurþýskir her- menn að reisa þann múr sem frægastur er slíkra mannvirkja næst Kínamúr og Grátmúr, nefnilega Berlínarmúr. Reuter/-ks. --------i------------------------ Þótt ráðamenn í íran og írak eigi vafalaust eftir að rífast lengi um allskyns álitamál í við- ræðunum sem brátt fara í hönd þá voru þeir skjótir að ná samkomulagi á einu sviði. Því að láta af öllum hernaðarstuðningi við uppreisnarmenn Kúrda í ríkj- um hvorra annarra. Nokkrir skæruliðar Kúrda flúðu til Tyrklands í síðustu viku eftir harða bardaga við íraska stjórnarherinn. Þeir greindu frá því að íranir væru hættir að ljá Kúrdum vopn og vistir. Hinsveg- ar heimuluðu þeir enn óvopnuð- um mönnum að ferðast óhindrað yfir landamærin og útveguðu lyf og sjúkragögn. „Iraskir" Kúrdar, undir for- ystu Massoud Barzanis, réðu lögum og lofum á stóru svæði í norðurhluta íraks meðan Persa- flóastríðið var í algleymingi. Þeir nutu ríkulegs stuðnings frana og endurguldu hann með því að hafa ofanaf fyrir all mörgum hersveit- um óvinarins. Aðrir heimildamenn úr röðum Kúrda fullyrða að íranir hafi fall- ist á að snúa baki við þessum fyrrum vopnabræðrum sínum í norðri ef írakar segðu skilið við Mujahideen Khalq hreyfinguna. Það hefði síðan verið bundið fast- mælum. Kúrdarnir sem flúðu til Tyrk- lands segja ekkert lát hafa orðið á notkun íraka á efnavopnum. „Við óttumst hvorki skriðdreka né orrustuþotur en Sameinuðu þjóðirnar ættu að sjá til þess að þeir hætti að nota efnavopn,“ sagði einn þeirra við fréttamann. Reuter/-ks. Norðursjór Bjargið selunum! Vísindamenn leggja nú nótt við dag í rannsóknum sínum á dular- fullri pest sem komið hefur nær helmingi allra sela á Norðursjó fyrir kattarnef. Þeir skoruðu í gær á ríkisstjórnir í Norður- Evrópu að draga stórlega úr los- un úrgangs- og eiturefna í þetta hafsvæði. Sérfræðingarnir sitja skyndi- fund í Lundúnum vegna sela- dauðans. Þeir segja um sjö þús- und dýr hafa drepist frá því fyrst varð vart við pláguna í apríl. Fundarmenn telja sterkar líkur benda til þess að mengun af völd- um manna geri ónæmiskerfi sel- anna óvirkt og því veiti þeir pláguveirunni enga mótspyrnu. Því sé brýnt að þegar verði dregið stórlega úr losun úrgangsefna í Norðursjó. Reuter/-ks. urnar hófust á mánudag. Hyggst einræðisstjórnin ekki slaka á klónni og hvergi hvika frá þeim ásetningi sínum að brjóta upp- reisnina á bak aftur. Forsætisráðherrann, Tun Tin, var hvergi banginn er hann ávarpaði landsmenn í útvarpi- í gær. Sagði hann „öryggissveitirn- ar“ einvörðungu vinna það nauðsynjaverk að „tryggja öryggi og varnir ríkisins." Þegar hann hafði lokið sér af tók æðsti yfirmaður hersins til máls, Saw nokkur Maung. Hann reyndi að reka fleyg í fylkingu mótmælenda með því að segja þorra þeirra friðsama og valin- kunna sómamenn sem „skríll og skemmdarverkamenn" hefðu leitt afvega. Gegn þessum stjórnleysisöflum yrði herinn að vinna til þess að koma á friði að nýju. Hið opinbera staðhæfir að 95 menn hafi látist í óeirðunum frá því á mánudag en útvarp ráða- manna hefur ætíð sagt þetta vera lágmarkstölur, „vera kynni“ að fleiri væru dánir. Þessar tölur um mannfall, þótt háar séu, eru hvergi nærri þeim tölum sem ýmsir erlendir sendi- menn í Rangoon hafa nefnt. Þeir hafa borið saman bækur sínar og voru á einu máli um það í gær að fórnarlömb átakanna væru ekki færri en þúsund. Sendimennirnir segjast enn- fremur hafa upplýsingar um að stjórnendur Pegu, 50 þúsund manna bæjar norðaustan höfuð- borgarinnar, hefðu gefist upp og flúið eftir linnulaus átök „örygg- issveita“ og almennings. ítalskir ferðamenn komu í gær til Bankok á Tælandi frá Burma. Sögðu þeir sínar farir ekki sléttar. Skammt frá Pegu hefðu þeir orð- ið að stíga útúr lestarvögnum og síðan ferðast á vörubílum til Rangoon undir vernd hersveita. Einn ítalanna sagði að járn- brautarteinar hefðu verið sprengdir í loft upp við Pegu og því gengju engar lestir til og frá bænum. Reuter/-ks. NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.