Þjóðviljinn - 12.08.1988, Side 11
Ferjuflug
Villtist
r
i
blíðunni
Fjögurra sœta Cessna
með tvo Svía
nauðlenti ísjónum
370 sjómílum suður
aflandinu.
Mannbjörg varð
Undir morgunsárið í gærmorg-
un nauðlenti 4ja sæta Cessna 172
Skyhawk með tvo Svía innan-
borðs á sjónum um 370 sjómflur
suður af landinu og var mönnun-
um tveim bjargað um borð í
veðurathugunarskipið Lima, en
flugvél Flugmálastjórnar hafði
leiðbeint vélinni aS skipinu þar
sem sýnt var að hún hefði ekki
eldsneyti til að ná landi. Vélin var
á leið frá Narssassuaq á Græn-
Iandi yfir hafið og ætlaði að hafa
viðkomu á Reykjavíkurflugvelli.
Flugvélin var í sjónflugi undir
5500 fetum og því ekki veitt flug-
umferðarþjónusta. Komutími til
Reykjavíkurflugvallar var áætl-
aður um 01 í fyrrinótt en þegar
hún skilaði sér ekki á tilskyldum
tíma var farið að svipast um eftir
henni. Fyrir utan vél Flugmála-
stjórnar tóku þátt í leitinni Fokk-
er Landhelgisgæslunnar, þyrla og
Herkulesvél frá Keflavíkurflug-
velli auk Nimrod þotu frá Skot-
landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn virðist sem áhöfn
vélarinnar hafi villst á leiðinni frá
Grænlandi til íslands og flogið
framhjá landinu langt suðaustur
við það. Vélin var útbúin öllum
nauðsynlegum flugleiðsögutækj-
um og því óskiljanlegt hvernig
hún gat villst í því blíðskapar-
veðri sem verið hefur.
-grh
_______FÖSTUDAGSFRÉTTIR______________________
Húsnœðisstofnun
Umsvifamikil fasteignasala
Tugir íbúða til sölu hjá Húsnæðisstofnun. Keyptar á
uppboðum afgjaldþrota eigendum. Veð duga ekkifyrir
skuldum. Flestar íbúðanna aflandsbyggðinni
Hjá Húsnæðisstofnun ríkisins
eru nú 39 íbúðir til sölumeð-
ferðar. Aðrar 32 íbúðir hafa ver-
ið seldar hjá stofnuninni undan-
farna mánuði. Um er að ræða
íbúðir sem Húsnæðisstofnun hef-
ur keypt á uppboðum eftir að
eigendur þeirra hafa komist í
greiðsluþrot og koma þær nær
allar af landsbyggðinni. Helgi V.
Guðmundsson lögfræðingur hjá
Húsnæðisstofnun segir nauðsyn-
legt að breyta veðreglum.
Helgi sagði Þjóðviljanum að
þær 39 íbúðir sem nú væru til
sölumeðferðar hefði stofnunin
keypt á uppboðum á þessu ári og
fyrr. Alls hefði stofnunin um 70
íbúðir á skrá. Helgi telur að það
þurfi að endurskoða reglur þær
sem giltu um veðsetningu. Við-
miðun við brunabótamat tryggi
ekki að veðhafar fái sitt bætt
lendi íbúðareigandi í greiðsluerf-
iðleikum. Söluverðmæti eða
markaðsverð íbúðar væri raun-
hæfasti mælikvarðinn.
Að sögn Helga eru flestar
íbúðimar sem Húsnæðisstofnun
hefur leyst til sín af landsbyggð-
inni. Einungis ein til tvær íbúðir
kæmu til stofnunarinnar með
þessum hætti á ári. Það kæmi iðu-
lega í ljós að markaðsverð íbúð-
anna væri langt undir brunabóta-
mati á landsbyggðinni en í
Reykjavík væri markaðsverð og
brunabótamat yfirleitt svipað.
Helgi telur Húsnæðisstofnun
eiga rétt á raunhæfu veði. Lán
stofnunarinnar væru með lág-
marksvöxtum eða 3,5% á meðan
bankavextir væru 9,5% og láns-
tími væri langur sem yki á áhættu
Húsnæðisstofnunar. Eins og veð-
um væri háttað nú kæmi þetta
minna að sök með nýbyggingar
þar sem Húsnæðisstofnun ætti þá
yfirleitt fyrsta veðrétt. En ýmis
önnur lán hefðu þá reglu að veð
færu ekki yfir 70% brunabóta-
mats.
Aðspurður sagðist Helgi ekki
vel geta lagt mat á það hvort það
hefði færst í vöxt að Húsnæðis-
stofnun þyrfti að leysa til sín
íbúðir með þessum hætti, þar sem
hann hefði einungis verið rúmt ár
í starfi. Hann héldi þó að þetta
hefði heldur færst í vöxt. Miðað
við útlánamagn biði Húsnæðis-
stofnun ekki mikið fjárhagslegt
tjón vegna þessa.
Húsnæðisstofnun sér um sölu
íbúðanna sjálf þó hún hafi heim-
ild til að láta fasteignasölur sjá
um það fyrir sig. Helgi sagðist
vera að taka saman lista yfir íbúð-
Kjarnorkubann
irnar og hann myndi liggja
frammi hjá stofnuninni og hjá
sveitarfélögum um allt land. Þá
væri hann að vinna að ýtarlegri
skýrslu um málið fyrir formann
Húsnæðismálastjómar og inn-
heimtunefnd og væri hennar að
vænta á næstunni.
-hmp
Óskað stuðnings frá íslandi
Ólafur Ragnar áfundum með utanríkisráðherrra. Ríkisstjórnin lýsi
yfir stuðningi við samningaráðstefnu um tilraunabann á kjarnorku
Afundi sem Ólafur Ragnar
Grímsson formaður Alþýðu-
bandalagsins og forseti alþjóð-
legu þingmannasamtakanna átti
með Steingrími Hermannssyni
utanríkisráðherra í vikunni fór
hann fram á það að ríkisstjórnin
ritaði ríkisstjórnum Bandaríkj-
anna, Sovétríkjanna og Bretlands
formlegt bréf til að styðja þá til-
lögu sem 5 ríki hafa sent til kjarn-
orkuveldanna um að haldin verði
sérstök samningaráðstefna um
samning sem banni allar tilraunir
með kjarnorkuvopn.
Ólafur Ragnar kynnti utan-
ríkisráðherra þá tillögu sem ríkin
5 hafa sent til kjarnorkuveld-
anna, en tillaga er sett fram á
grundvelli samnings um tak-
Hvalveiðar
Vertíðinni lokið
Síðustu dýrin á land ígœr. Tvær langreiðarfylltu mælinn
Hvalvertíðinni lauk í gær þegar
hvalbátarnir komu með tvær
langreyðar að landi í bítlð í gær-
morgun og mun hvalskurði ljúka
í dag.
Vertíðinni lauk núna mun fyrr
en venjulega, en vertíðinni í fyrra
lauk ekki fyrr en langt var áliðið á
september. Kemur þar bæði til að
sandreyðin gekk mun fyrr á hefð-
bundna veiðislóð en í fyrra og
fjöldi dýra sem heimilt var að
veiða var nokkru minni í ár en
áður. _rk
markaðar tilraunir með kjarna-
vopn sem gerður var árið 1963 og
er ísland meðal 116 ríkja sem
hafa undirritað samninginn.
Samkvæmt samningum er það
réttur sérhvers aðildarríkis að
styðja tillögu um breytingar og
ber að kalla ráðstefnu saman ef
þriðjungur aðildarnkjanna send-
ir formlegt bréf þar sem lýst er
yfir stuðningi við slíka ráðstefnu.
Lýsti Ólafur Ragnar þeirri
skoðun við utanríkisráðherra að
mikilvægt væri að ríkisstjóm ís-
lands yrði í hópi þeirra sem þann-
ig lýstu formlegum stuðningi við
gerð samnings sem bannaði allar
tilraunir með kjarorkuvopn.
Utanríkisráðherra hefur óskað
eftir frekari upplýsingum um
gang málsins og stuðning frá öðr-
um ríkjum og munu þeir Ólafur
Ragnar eiga frekari fundi um
þetta efni á næstunni.
-Ig-
Fótbolti
Ertt-núll
fyrir norðan
og sunnan
Valsmenn ekki í vandræðum með slaka
Víkinga. Bikardraumur Ólafsfirðinga
úrsögunni
Valur og ÍBK keppa til úrslita um mjólkurbikarinn í ár og verður
úrslitaleikurinn laugardaginn 27. ágúst. Valsmenn tryggðu sér úrslita-
sætið með því að leggja Vflringa að velli á heimavelli þeirra síðarnefndu
við Stjörnugróf, en Keflvflringar glímdu við Leiftur, mölina og áhorf-
endur á Ólafsfirði og fóru með sigur af hólmi. Markaskorun var í
algeru lágmarki á báðum vígstöðum þ.e. aðeins eitt mark á hvorum
leikvelli.
Jón Grétar Jónsson enn á fleygi ferð eftir að hafa skallað boltann í netið og tryggt Valsmönnum sigurinn.
Mynd: E. Ól.
Víkingur-Valur
Valsmenn áttu þennan sigur á
Víkingum fyllilega skilið því þeir
höfðu tögl og hagldir mest allan
leikinn. Engu að síður fengu þeir
ekki ýkja mörg marktækifæri í
fyrri hálfleik nema þá helst á 23.
mínútu er Atli Eðvaldsson komst
inn í vítateig Víkinga og skaut
þrumuskoti sem Guðmundur
Hreiðarsson varði meistaralega.
Boltinn hrökk til Jóns Grétars
Jónssonar en Guðmundur varði
einnig skot hans.
Skömmu síðar áttu Víkingar
ágæta skyndisókn sem hófst með
langri sendingu Andra Marteins-
sonar á Atla Einarsson. Hann
lagði boltann út á Trausta Óm-
arsson sem skaut að marki en
boltinn fór yfir Valsmarkið. Á
markamínútunni, 43. mínútu,
skoruðu Valsarar en markið var
dæmt af. Guðmundur Baldurs-
son var þá dæmdur rangstæður en
hann átti hjólhestarspyrnu í sam-
skeytin á markinu og Jón Grétar
fylgdi á eftir en línuvörðurinn
hafði þegar veifað flaggi sínu.
í síðari hálfleik voru Valsmenn
enn betri og áttu ótal marktæki-
færa sem fóru forgörðum. Vík-
ingar, á hinn bóginn, áttu enn erf-
iðara um vik og tókst ekki að
beita skyndisóknum sínum svo að
hætta stafaði af. Á 61. mínútu
skoruðu Valsmenn síðan sigur-
markið og var vel af því staðið.
Guðmundur fékk þá góða send-
ingu upp í hægra fornið, lagði
boltann vel fyrir sig og sendi
glæsilega sendingu fyrir markið
hvar Jón Grétar kom á siglingu
og skoraði með góðum skalla.
Þetta var sumsé sigurmarkið en
mörk Vals hefðu getað orðið enn
fleiri.
Leiftur-ÍBK
Bikardraumur Ólafsfirðinga
náði ekki langra en í undanúr-
slitin því Keflvíkingar sigruðu
sanngjarnt enda þótt aðstæður
væru þeim ekki í hag. Grétar Ein-
arsson skoraði eina mark leiksins
strax á 9. mínútu með skoti utan
úr vftateig. Þrátt fyrir mikið basl
tókst heimamönnum ekki að
jafna og Keflvíkingar fara því í
úrslit í fimmta skipti. —þóm
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11