Þjóðviljinn - 12.08.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 12.08.1988, Síða 11
Ferjuflug Villtist r i blíðunni Fjögurra sœta Cessna með tvo Svía nauðlenti ísjónum 370 sjómílum suður aflandinu. Mannbjörg varð Undir morgunsárið í gærmorg- un nauðlenti 4ja sæta Cessna 172 Skyhawk með tvo Svía innan- borðs á sjónum um 370 sjómflur suður af landinu og var mönnun- um tveim bjargað um borð í veðurathugunarskipið Lima, en flugvél Flugmálastjórnar hafði leiðbeint vélinni aS skipinu þar sem sýnt var að hún hefði ekki eldsneyti til að ná landi. Vélin var á leið frá Narssassuaq á Græn- Iandi yfir hafið og ætlaði að hafa viðkomu á Reykjavíkurflugvelli. Flugvélin var í sjónflugi undir 5500 fetum og því ekki veitt flug- umferðarþjónusta. Komutími til Reykjavíkurflugvallar var áætl- aður um 01 í fyrrinótt en þegar hún skilaði sér ekki á tilskyldum tíma var farið að svipast um eftir henni. Fyrir utan vél Flugmála- stjórnar tóku þátt í leitinni Fokk- er Landhelgisgæslunnar, þyrla og Herkulesvél frá Keflavíkurflug- velli auk Nimrod þotu frá Skot- landi. Samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn virðist sem áhöfn vélarinnar hafi villst á leiðinni frá Grænlandi til íslands og flogið framhjá landinu langt suðaustur við það. Vélin var útbúin öllum nauðsynlegum flugleiðsögutækj- um og því óskiljanlegt hvernig hún gat villst í því blíðskapar- veðri sem verið hefur. -grh _______FÖSTUDAGSFRÉTTIR______________________ Húsnœðisstofnun Umsvifamikil fasteignasala Tugir íbúða til sölu hjá Húsnæðisstofnun. Keyptar á uppboðum afgjaldþrota eigendum. Veð duga ekkifyrir skuldum. Flestar íbúðanna aflandsbyggðinni Hjá Húsnæðisstofnun ríkisins eru nú 39 íbúðir til sölumeð- ferðar. Aðrar 32 íbúðir hafa ver- ið seldar hjá stofnuninni undan- farna mánuði. Um er að ræða íbúðir sem Húsnæðisstofnun hef- ur keypt á uppboðum eftir að eigendur þeirra hafa komist í greiðsluþrot og koma þær nær allar af landsbyggðinni. Helgi V. Guðmundsson lögfræðingur hjá Húsnæðisstofnun segir nauðsyn- legt að breyta veðreglum. Helgi sagði Þjóðviljanum að þær 39 íbúðir sem nú væru til sölumeðferðar hefði stofnunin keypt á uppboðum á þessu ári og fyrr. Alls hefði stofnunin um 70 íbúðir á skrá. Helgi telur að það þurfi að endurskoða reglur þær sem giltu um veðsetningu. Við- miðun við brunabótamat tryggi ekki að veðhafar fái sitt bætt lendi íbúðareigandi í greiðsluerf- iðleikum. Söluverðmæti eða markaðsverð íbúðar væri raun- hæfasti mælikvarðinn. Að sögn Helga eru flestar íbúðimar sem Húsnæðisstofnun hefur leyst til sín af landsbyggð- inni. Einungis ein til tvær íbúðir kæmu til stofnunarinnar með þessum hætti á ári. Það kæmi iðu- lega í ljós að markaðsverð íbúð- anna væri langt undir brunabóta- mati á landsbyggðinni en í Reykjavík væri markaðsverð og brunabótamat yfirleitt svipað. Helgi telur Húsnæðisstofnun eiga rétt á raunhæfu veði. Lán stofnunarinnar væru með lág- marksvöxtum eða 3,5% á meðan bankavextir væru 9,5% og láns- tími væri langur sem yki á áhættu Húsnæðisstofnunar. Eins og veð- um væri háttað nú kæmi þetta minna að sök með nýbyggingar þar sem Húsnæðisstofnun ætti þá yfirleitt fyrsta veðrétt. En ýmis önnur lán hefðu þá reglu að veð færu ekki yfir 70% brunabóta- mats. Aðspurður sagðist Helgi ekki vel geta lagt mat á það hvort það hefði færst í vöxt að Húsnæðis- stofnun þyrfti að leysa til sín íbúðir með þessum hætti, þar sem hann hefði einungis verið rúmt ár í starfi. Hann héldi þó að þetta hefði heldur færst í vöxt. Miðað við útlánamagn biði Húsnæðis- stofnun ekki mikið fjárhagslegt tjón vegna þessa. Húsnæðisstofnun sér um sölu íbúðanna sjálf þó hún hafi heim- ild til að láta fasteignasölur sjá um það fyrir sig. Helgi sagðist vera að taka saman lista yfir íbúð- Kjarnorkubann irnar og hann myndi liggja frammi hjá stofnuninni og hjá sveitarfélögum um allt land. Þá væri hann að vinna að ýtarlegri skýrslu um málið fyrir formann Húsnæðismálastjómar og inn- heimtunefnd og væri hennar að vænta á næstunni. -hmp Óskað stuðnings frá íslandi Ólafur Ragnar áfundum með utanríkisráðherrra. Ríkisstjórnin lýsi yfir stuðningi við samningaráðstefnu um tilraunabann á kjarnorku Afundi sem Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðu- bandalagsins og forseti alþjóð- legu þingmannasamtakanna átti með Steingrími Hermannssyni utanríkisráðherra í vikunni fór hann fram á það að ríkisstjórnin ritaði ríkisstjórnum Bandaríkj- anna, Sovétríkjanna og Bretlands formlegt bréf til að styðja þá til- lögu sem 5 ríki hafa sent til kjarn- orkuveldanna um að haldin verði sérstök samningaráðstefna um samning sem banni allar tilraunir með kjarnorkuvopn. Ólafur Ragnar kynnti utan- ríkisráðherra þá tillögu sem ríkin 5 hafa sent til kjarnorkuveld- anna, en tillaga er sett fram á grundvelli samnings um tak- Hvalveiðar Vertíðinni lokið Síðustu dýrin á land ígœr. Tvær langreiðarfylltu mælinn Hvalvertíðinni lauk í gær þegar hvalbátarnir komu með tvær langreyðar að landi í bítlð í gær- morgun og mun hvalskurði ljúka í dag. Vertíðinni lauk núna mun fyrr en venjulega, en vertíðinni í fyrra lauk ekki fyrr en langt var áliðið á september. Kemur þar bæði til að sandreyðin gekk mun fyrr á hefð- bundna veiðislóð en í fyrra og fjöldi dýra sem heimilt var að veiða var nokkru minni í ár en áður. _rk markaðar tilraunir með kjarna- vopn sem gerður var árið 1963 og er ísland meðal 116 ríkja sem hafa undirritað samninginn. Samkvæmt samningum er það réttur sérhvers aðildarríkis að styðja tillögu um breytingar og ber að kalla ráðstefnu saman ef þriðjungur aðildarnkjanna send- ir formlegt bréf þar sem lýst er yfir stuðningi við slíka ráðstefnu. Lýsti Ólafur Ragnar þeirri skoðun við utanríkisráðherra að mikilvægt væri að ríkisstjóm ís- lands yrði í hópi þeirra sem þann- ig lýstu formlegum stuðningi við gerð samnings sem bannaði allar tilraunir með kjarorkuvopn. Utanríkisráðherra hefur óskað eftir frekari upplýsingum um gang málsins og stuðning frá öðr- um ríkjum og munu þeir Ólafur Ragnar eiga frekari fundi um þetta efni á næstunni. -Ig- Fótbolti Ertt-núll fyrir norðan og sunnan Valsmenn ekki í vandræðum með slaka Víkinga. Bikardraumur Ólafsfirðinga úrsögunni Valur og ÍBK keppa til úrslita um mjólkurbikarinn í ár og verður úrslitaleikurinn laugardaginn 27. ágúst. Valsmenn tryggðu sér úrslita- sætið með því að leggja Vflringa að velli á heimavelli þeirra síðarnefndu við Stjörnugróf, en Keflvflringar glímdu við Leiftur, mölina og áhorf- endur á Ólafsfirði og fóru með sigur af hólmi. Markaskorun var í algeru lágmarki á báðum vígstöðum þ.e. aðeins eitt mark á hvorum leikvelli. Jón Grétar Jónsson enn á fleygi ferð eftir að hafa skallað boltann í netið og tryggt Valsmönnum sigurinn. Mynd: E. Ól. Víkingur-Valur Valsmenn áttu þennan sigur á Víkingum fyllilega skilið því þeir höfðu tögl og hagldir mest allan leikinn. Engu að síður fengu þeir ekki ýkja mörg marktækifæri í fyrri hálfleik nema þá helst á 23. mínútu er Atli Eðvaldsson komst inn í vítateig Víkinga og skaut þrumuskoti sem Guðmundur Hreiðarsson varði meistaralega. Boltinn hrökk til Jóns Grétars Jónssonar en Guðmundur varði einnig skot hans. Skömmu síðar áttu Víkingar ágæta skyndisókn sem hófst með langri sendingu Andra Marteins- sonar á Atla Einarsson. Hann lagði boltann út á Trausta Óm- arsson sem skaut að marki en boltinn fór yfir Valsmarkið. Á markamínútunni, 43. mínútu, skoruðu Valsarar en markið var dæmt af. Guðmundur Baldurs- son var þá dæmdur rangstæður en hann átti hjólhestarspyrnu í sam- skeytin á markinu og Jón Grétar fylgdi á eftir en línuvörðurinn hafði þegar veifað flaggi sínu. í síðari hálfleik voru Valsmenn enn betri og áttu ótal marktæki- færa sem fóru forgörðum. Vík- ingar, á hinn bóginn, áttu enn erf- iðara um vik og tókst ekki að beita skyndisóknum sínum svo að hætta stafaði af. Á 61. mínútu skoruðu Valsmenn síðan sigur- markið og var vel af því staðið. Guðmundur fékk þá góða send- ingu upp í hægra fornið, lagði boltann vel fyrir sig og sendi glæsilega sendingu fyrir markið hvar Jón Grétar kom á siglingu og skoraði með góðum skalla. Þetta var sumsé sigurmarkið en mörk Vals hefðu getað orðið enn fleiri. Leiftur-ÍBK Bikardraumur Ólafsfirðinga náði ekki langra en í undanúr- slitin því Keflvíkingar sigruðu sanngjarnt enda þótt aðstæður væru þeim ekki í hag. Grétar Ein- arsson skoraði eina mark leiksins strax á 9. mínútu með skoti utan úr vftateig. Þrátt fyrir mikið basl tókst heimamönnum ekki að jafna og Keflvíkingar fara því í úrslit í fimmta skipti. —þóm NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.