Þjóðviljinn - 12.08.1988, Qupperneq 12
Kennarar - Akranes
Okkur vantar kennara í eftirtaldar stööur viö
grunnskólana á Akranesi.
Við Grundaskóla:
Almenna kennara
Sérkennara.
Upplýsingar veita skólastjóri og yfirkennari í síma
12811.
Við Brekkubæjarskóla:
Kennara í 7.-9. bekk: Aöalgreinar líffræði og
stæröfræði.
Upplýsingar veita skólastjóri og yfirkennari í
símum 11388 og 12012.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 17. ÁGÚST
NÆSTKOM ANDI!
Skólanefnd grunnskóla
Akranesi
Hjúkrunarfræðingar
Tvær stööur hjúkrunarfræöinga, af fjórum, eru
lausar til umsóknar. Ráðningartími til lengri eða
skemmri tíma. í Skjólgaröi eru 25 hjúkrunarsjúk-
lingar og 22 ellivistmenn auk fæöingardeildar
meö 12-20 fæðingum á ári. Boðið er uppá fríar
feröir til skoöunar á aðstæöum ef óskaö er.
Allar upplýsingar veitir Ásmundur Gíslason,
ráösmaöur, eða Amalía Þorgrímsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, símar 97-81118 og 97-81221.
Skjólgarður
Höfn, Hornafirði
Holtaskóli Keflavík
Kennara vantar aö Holtaskóla næsta skólaár.
Æskilegar kennslugreinar: stærðfræöi, raun-
greinar, samfélagsfræði og enska. Jafnframt er
laus staöa smíöakennara.
Skólinn er einsetinn og öll aöstaöa mjög góö.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597 og
yfirkennari í síma 92-11602.
Skólastjóri
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuöina maí og júní er
15. ágúst nk. Sé launaskattur greiddur eftir ein-
daga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem
vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda aö greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóös, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármáiaráðuneytið
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar, óskar eftir
tilboöum í frágang á leikvelli við Ásgarð í Reykja-
vík.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, aö
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 5.000 kr. skila-
tryggingu. Tilboðin veröa opnuð á sama stað
miövikudaginn 24. ágúst kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
SKAÐI SKRIFAR:
Lyftum
gullfætinum,
eða peningamagn úr umferð
Ég, Skaði, hefi haft nokkrar áhyggjur af pening-
amálunum. Ég hefi til dæmis aldrei skilið þetta
með peningamagnið í umferð. Hvað er það eigin-
lega?
Ég spurði vin minn, Guðjón hagfræðing, að
þessu um daginn. Ég sagði si sona:
Það er verið að segja mér Guðjón að ef pening-
amagnið í umferð er of mikið þá sé þensla og
verðbólga og vesin. En samt er það alltaf of lítið og
því er mikil eftirspurn eftir því og háir vextir og þá er
líka verðbólga og vesin.
Vinur minn, sagði Guðjón. Peningamálin eru
ekkert teboð eins og Maó oddviti sagði um bylting-
una. Þau eru eins og fornsögur: þú ferð til vinstri
og þú verður höggvinn, þú ferð til hægri og þú
verður brenndur.
Já en hvað eru peningar, Guðjón?
Þeir eru svo margt, kæri vin, sagði Guðjón.
Seðlar og tíkallar og víxlar og verðbréf og kredít-
kort. En þegar á heildina er litið er peningamagn í
umferð samsafn allra loforða um greiðslur sem
menn hafa gefið í þjóðfélaginu og menn hafa sam-
þykkt að láta sem þeir taki mark á.
Jesúsminn, sagði ég. Stöndum við ekki fastari
fótum en þetta?
Nei, sagði Guðjón.
Ætiarðu að segja mér að okkar þjóðarhús sé
ekki einusinni reist á sandi heldur bara loforðum
sem íbúarnir gefa hver öðrum?
Jamm, sagði Guðjón.
Ég fór heim og ég verð að játa að mér varð ekki
svefnsamt. Ég bylti mér og bylti þar til ég glað-
vaknaði kortér fyrir þrjú og hrópaði upp yfir mig í
fögnuði.
Ég hafði fundið lausnina á efnahagsvanda ís-
lendinga.
Hún er sú að taka peninga úr umferð. Við af-
nemum barasta alla þá peninga sem eru ekki
annað en skeinisblöð og loforð og þess í stað
lyftum við gullfætinum hátt í sigurgöngu þjóðarinn-
ar til hins sanna frelsis.
Hvernig ætla ég að fara að því?
Jú. íslendingar taka upp gullpeninga og viður-
kenna ekki aðra peninga. Myntin stærsta heitir
landaur og samsvarar tíu þúsund krónum. í hverj-
um landaur eru tíu gullkrónur. í hverri gullkrónu
eru tíu silfurkrónur. í hverri silfurkrónu eru tíu kop-
arhlunkar. Og svo framvegis. Gullinnihald eða
annað málminnihald myntarinnar er náttúrlega
alltaf samsvarandi verðgildi peninganna, óþarft
að táka það fram
íslendingar verða eina þjóðin í heiminum sem
höndlar með alvörupeninga. Þar með er okkur
tryggð meiri virðing í heiminum en við höfum notið
síðan á víkingaöld þegar við gátum höggvið mann
og annan í okkar athafnaskáldskap. Við munum
efla verðskyn okkar og sparsemi, vegna þess aö
það verður svo fyrirhafnarmikið að gera innkaup
•að maður er ekki að því í tíma og ótíma. Við
munum efla snertiskyn okkar, því að við höfum
eitthvað alminnilegt að þukla á í vösum okkar. Við
munum efla bæði fegurðarskyn okkar og
einstaklingshyggju vegna þess að myntin verður
þannig, að öðrummegin verður löggillt íslenskt
skjaldarmerki með verðgildi penings en hinum-
megin geta menn slegið einhverja fallega og per-
sónulega mynd að eigin smekk.
Um leið leysast okkar atvinnumál. Ekki bara
vegna þess að fjöldi atvinnutækifæra verður til við
að sauma pyngjur sem menn reiða við belti sér -
leðurpyngjur, silkipyngjur, plastpyngjur,
segldúkspyngjur, perlusaumaðar pyngjur - allt
eftir aldri og kynferði þegnanna. Mestu skiptir að
peningarnir verða sjálfir okkar helsta framleiðslu-
og útflutningsvara, því náttúrlega vilja allir eiga
einu alvörupeningana í heiminum. Þar með vær-
um við líka alveg inni í miðjum markaðslögmálun-
um sem hafa leitt til þess á síðustu árum, eins og
allir vita, að það borgar sig ekki að vera að fram-
leiða fisk eða kjöt eða ál eða peysur, því það er
stórtap á öllu saman. Það eina sem borgar sig er
að versla með peninga.
Og það mun borga sig enn meir og margfalt
meir að versla með peninga peninganna.
Upp upp mittgeð og gullfótur....
NEI, ÞEIRÆTLA AÐ
TALA UM VEÐRID
Forsætisráðherra mun í
dag eiga viðræður við Re-
agan Bandaríkjaforseta.
Vafalaust verður þar rætt
um samskipti ríkjanna
tveggja.
Leiöarí Morgunblaósins
LEYNDARDÓMAR
MARKAÐSÞJÓÐ-
FÉLAGSINS
Dó músin í bjórdósinni
fyrir eða eftir átöppun?
Fyrírsögn
7 Morgunblaóinu
<
0
<
co
O
DH
ALLTOF
MARGIR SLEPPA
Séu borin saman við-
skipti lögreglunnar og
fjöldans sfðastliðin 50-60
ár, þá hefur lögreglan
hlotið þar meira tjón en
vissar manneskj ur innan
fjöldans.
Morgunblaðið
SÆLIRERU
HÓGVÆRIR
Eins og kunnugt er lætur
Tíminn ekkert framhjá sér
fara sem stórtíðindum sæt-
ir, bæði hér á landi sem og
úti í hinum stóra heimi.
Gildir þá einu hvort at-
burðurinn er í framtíðinni,
nútíðinni eða fjarlægri
fortíð. Því þótti ritstjórn
meira en sjálfsagt að leita
eftir svörum við því hvort
ske kynni að gata ein í
hafnarborginni Genóa á
Ítalíu héti í höfuðið á ekki
ómerkari kappa en sjálf-
um Sturlu Sighvatssyni.
Innganguraö
frétt í Tímanum
HÍ Á STEINGRÍM!
Það er sérstakt fagnað-
arefni að Þorsteini
Pálssyni forsætisráðherra
hefur verið boðið í opin-
bera heimsókn til Banda-
ríkjanna.
Leiöarí í
Morgunbiaöinu
LJÓSIÐ SEM HVARF
Ennfremur er tekið
fram í skeytinu að fleiri ár
eða staðir á Liguriasvæð-
inu, íkringum Genoa, beri
heiti sem endi á -urla og
-rla. Og þannig bendi flest
til þess að götuheitið
Sturla í Genoa tengist ekki
hinum rammíslenska
Sturlu Sighvatssyni.
Seínna í sömu
frétt í Tímanum
MIKILHUGGUN
HARMIGEGN
Fólki sem finnst hann
(Michael Dukakis) leiðin-
legur og hrokafullur líkar
vel við hana (frú Dukakis)
af eftirtöldum ástæðum:
Hún reykir en hann hefur
viðbjóð á reykingum. Hún
er ekkert að horfa í aurana
en hann er alræmdur fyrir
nísku.
Tíminn
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ